Forsetafrúin tekin fram fyrir sex ára dreng með brotinn sköflung

Móðir í Keflavík er ósátt við að Dorrit Moussaieff for­seta­frú hafi verið tekin fram fyrir son hennar á slysa- og bráða­mót­töku Land­spít­al­ans eftir að hún meidd­ist á hendi.

Forsetafrúin tekin fram fyrir sex ára dreng með brotinn sköflung
For­seta­hjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff fóru ekki fram á for­gang á Land­spít­al­anum. Mynd: Pressphotos

Móðir sex ára gam­als drengs, sem hafði orðið fyrir því að sköfl­ungs­bein í fæti hans brotn­aði þegar hjólað var á hann í Keflavík, er ósátt við for­gangs­röð­un­ina á bráða- og slysa­deild Land­spít­al­ans. 

Kona, sem kom inn á deild­ina á eftir þeim, fékk for­gang fram yfir dreng­inn og aðra í bið­stof­unni, þótt meiðsli hennar væru sýni­lega ekki alvar­legri en hans. Um var að ræða Dorrit Moussaieff for­seta­frú.

„Við vorum vorum ennþá í afgreiðsl­unni þegar þau komu, Dorrit og Ólafur Ragnar. Þau komu rétt á eftir okkur. Okkur var sagt að fá okkur sæti, en þau voru kölluð inn eftir tvær mín­útur. Ég veit ekki nákvæm­lega hvað kom út úr því hjá þeim, en það var slatti af fólki þarna inni sem virt­ist vera tölu­vert meira slasað eða veikt en hún. Þar á meðal sonur minn,“ segir Margrét Heiður, móðir drengs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár