Forsætisráðherra hafi lofað að þessi ríkisstjórn selji ekki bankana

Birgitta Jóns­dóttir segir Sigurð Inga Jóhanns­son hafa lofað því á fundi með stjórn­ar­and­stöð­unni að sala bank­anna verði ekki að veru­leika hjá þess­ari rík­is­stjórn. Sam­fylk­ingin hefur lagt fram frum­varp um tíma­bundið bann við sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í bönk­unum.

Forsætisráðherra hafi lofað að þessi ríkisstjórn selji ekki bankana

„Því hefur verið lofað að nýja for­sæt­is­ráð­herr­anum síð­ast í gær á fundi að sala bank­anna verði ekki að veru­leika hjá þess­ari rík­is­stjórn,“ skrifar Birgitta Jóns­dóttir, kapteinn Pírata, á Facebook-síðu sína og deilir frétt RÚV þar sem haft er eftir Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra að póli­tískur óstöð­ug­leiki gæti seinkað sölu á hlut rík­is­ins í bönk­unum. 

„Nú kemur loðna orða­lagið frá Bjarna og alls ekki boð­legt að bank­arnir séu seldir, ekki eitt % undir stjórn þessa fólks. Það er því miður svo að það er mjög erfitt að treysta neinu nema bind­andi sam­komu­lagi um þing­rof. Og þó svo að þeir gera slíkt við minni­hlut­ann þá er það því miður svo út af stjórn­skipan lands­ins að ef rík­is­stjórnin ákveður að ganga bak orða sinna að minni­hlut­inn hefur engin raun­veru­leg verk­færi til að stoppa eitt eða neitt. Þunginn hvílir á almanna­á­liti og fjölda fólks sem mætir á Aust­ur­völl,“ skrifar Birgitta.

„Það er því miður svo að það er mjög erfitt að treysta neinu nema bind­andi sam­komu­lagi um þing­rof.“

Í annarri færslu segir Birgitta ófremd­ar­á­stand ríkja og að hún geti ekki treyst lof­orði for­sæt­is­ráð­herra um kosn­ingar eftir þetta þing. „...þessi atburð­ar­rás er hönnuð til að þjónka við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og það verður allt reynt til að koma sér undan ábyrgð á því ástandi sem nú er í sam­fé­lag­inu,“ skrifar hún meðal ann­ars. „Bjarni segir á eina hönd­ina að það eigi ekki að eina­kvæða LB en svo segir hann að það komi til greina að gera það ekki. Stór munur þar á. Sumir stjórn­ar­liðar segja kosn­ingar í haust og svo farið alla leið inn í enda októ­ber með dag­setn­ingar. Það er ljóst að haustið er teygj­an­legt hug­tak all víða.“

Leggja til tímabundið bann við sölu á hlut ríkisins í bönkunum

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar lögðu í gær fram frum­varp um tíma­bundið bann við sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, en lagt er til að bannið gildi til 1. nóv­em­ber næst­kom­andi. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að með þessu sé verið að bregð­ast við því for­dæma­lausa ástandi sem upp er komið í íslenskum stjórn­málum. „Ný rík­is­stjórn er tekin til starfa og boðað hefur verið að almennar kosn­ingar til Alþingis muni fara fram næsta haust. Ljóst er að staða þeirrar rík­is­stjórnar sem nú situr er mjög ótrygg. Má þannig í raun líkja núver­andi rík­is­stjórn við starfs­stjórn sem ætlað er að sitja fram yfir kosn­ingar þegar ný rík­is­stjórn mun taka við. Ekki er því eðli­legt að sú rík­is­stjórn sem nú situr geti tekið afdrifa­ríkar og stefnu­mark­andi ákvarð­anir á þeim fáu mán­uðum sem eftir eru af starfs­tíma hennar. Slíkar ákvarð­anir ber að bíða með að taka fram yfir næstu kosn­ingar þar sem stjórn­mála­menn munu fá nýtt umboð frá kjós­endum til góðra verka,“ segir meðal ann­ars í grein­ar­gerð­inni. 

Árni Páll Árnason
Árni Páll Árnason Sam­fylk­ingin leggur til tíma­bundið bann við sölu rík­is­ins á eign­ar­hlutum í bönk­unum.

Þá segir einnig að eign­ar­hlutar rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum séu gríð­ar­lega verð­mæti og því skipti miklu máli að full­komið traust sé til stjórn­valda hafi þau í hyggju að selja að hluta eða að öllu leyti eign­ar­hluti rík­is­ins. „Þar sem núver­andi rík­is­stjórn nýtur ekki trausts og ljóst að hún muni aðeins sitja í nokkra mán­uði er ekki eðli­legt að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafi þá heim­ild að selja eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Í þessu sam­bandi verður einnig að hafa í huga að sala á eign­ar­hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum getur verið stefnu­mark­andi ákvörðun fyrir fjár­mála­kerfið í heild sinni. Eignn­ar­hald rík­is­ins á nán­ast öllu fjár­mála­kerf­inu gefur mögu­leika á því nú að end­ur­skoða fjár­mála­kerfið í heild sinni standi til þess póli­tískur vilji,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varpi Sam­fylk­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár