FME bregst við fullyrðingum um viðskipti Benedikts: Skýringar fullnægjandi og athugun löngu lokið

„Fjár­mála­eft­ir­litið taldi skýr­ingar reglu­varð­ar­ins á við­skipt­unum full­nægj­andi,“ segir í til­kynn­ingu á vef Fjár­mála­eft­ir­lits­ins vegna umræðu um við­skipti for­manns Við­reisnar. Full­yrð­ing um „hæga­gang eft­ir­lits­að­ila“ í Morg­un­blað­inu á ekki við rök að styðj­ast.

FME bregst við fullyrðingum um viðskipti Benedikts: Skýringar fullnægjandi og athugun löngu lokið

Fjár­mála­eft­ir­litið taldi skýr­ingar reglu­varðar Nýherja á við­skiptum Bene­dikts Jóhann­es­sonar, stjórn­ar­for­manns félags­ins og for­manns Við­reisnar, með hluta­bréf í Nýherja í nóv­em­ber full­nægj­andi og lauk athugun á mál­inu í febr­úar í byrjun þessa árs. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef FME í dag en þar er brugð­ist við umræðu sem farið hefur af stað í kjöl­far þess að Morg­un­blaðið birti aðsenda grein um við­skipti Bene­dikts eftir Óttar Guð­jóns­son, hag­fræð­ing og fram­kvæmda­stjóra Lána­sjóðs sveit­ar­fé­laga. Við­skipta­blaðið vitn­aði í grein­ina undir yfir­skrift­inni „Inn­herj­a­við­skipti for­manns Við­reisnar“ og vakti umfjöll­unin tals­verða athygli á sam­fé­lags­miðlum.

Óttar er yfir­lýstur stuðn­ings­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og birti nýlega mynd af fram­bjóð­endum flokks­ins á Facebook-síðu sinni. Hann var til­nefndur af Illuga Gunn­ars­syni sem vara­maður í stjórn Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands árið 2014 og er með­stjórn­andi í Félagi sjálf­stæð­is­manna í Smáíbúða-, Bústaða- og Foss­vogs­hverfi. Fyr­ir­sögn greinar hans í Morg­un­blað­inu er „Æpandi þögn um inn­herj­a­við­skipti for­manns Við­reisnar“.

Í grein­inni rifjar Óttar upp að þann 23. nóv­em­ber í fyrra seldu Benedikt og aðilar tengdir honum sam­tals 9.000.000 hluti í Nýherja á geng­inu 14,7 fyrir sölu­and­virðið 132.300.000 krónur. Nokkrum dögum síðar til­kynnti Nýherji að selt yrði nýtt hlutafé í Nýherja, allt að 40.000.000 hlutir eða 9,76 pró­sent af útistand­andi hlutafé.

„Það er því ljóst að for­maður stjórnar og aðilar honum tengdir seldu 2,196% af hlutafé félags­ins aðeins 10 dögum áður en félagið til­kynnir hluta­fjár­aukn­ing­una,“ skrifar Óttar og full­yrðir að „hæga­gangur eft­ir­lits­að­ila“ sé far­inn að „rýra traust á mark­aðnum og eft­ir­lits­stofn­unum hans“. 

Samkvæmt til­kynn­ingu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins eru hins vegar um átta mán­uðir síðan athugun á við­skiptum Bene­dikts lauk. Voru skýr­ingar reglu­varðar Nýherja taldar full­nægj­andi. Full­yrð­ingin um „hæga­gang eft­ir­lits­að­ila“ á því ekki við rök að styðj­ast.  

„Liður í eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins með verð­bréfa­mark­aði er að hafa eft­ir­lit með inn­herj­a­við­skiptum í  fjár­mála­gern­ingum sem  teknir hafa verið til við­skipta á skipu­legum verð­bréfa­mark­aði eða mark­aðs­torgi fjár­mála­gern­inga. Samkvæmt ákvæðum verð­bréfa­við­skipta­laga þurfa  frum­inn­herjar að ganga úr skugga um að þeir búi ekki yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum áður en þeir eiga við­skipti með bréf útgef­anda (rann­sókn­ar­skylda),“ segir í til­kynn­ing­unni.

„Jafn­framt þurfa frum­inn­herjar að til­kynna fyr­ir­fram um vænt­an­leg við­skipti til reglu­varðar en hlut­verk reglu­varðar er m.a.  að veita álit á eðli upp­lýs­inga, m.t.t. skil­grein­ingar á hug­tak­inu inn­herj­a­upp­lýs­ingar.  Fjár­mála­eft­ir­litið kallar með reglu­bundnum hætti eftir upp­lýs­ingum og gögnum er varða slík mál. Að gefnu til­efni skal þess getið að Fjár­mála­eft­ir­litið óskaði eftir upp­lýs­ingum og gögnum hjá reglu­verði Nýherja um við­skipti for­manns stjórnar félags­ins sem fram fóru í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Fjár­mála­eft­ir­litið taldi skýr­ingar reglu­varð­ar­ins á við­skipt­unum full­nægj­andi, en athugun eft­ir­lits­ins lauk í febr­úar síð­ast­liðnum.“

Benedikt Jóhann­es­son tjáði sig um skrif Óttars í gær:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár