Fjármagnshöft aflögð og búist við lækkun vaxta

Stjórn­völd til­kynna um aflétt­ingu fjár­magns­hafta eftir sjö og hálfs árs höft. Óttinn við skað­legar geng­is­sveiflur krón­unnar er enn við lýði. Ný nefnd hefur verið stofnuð til að meta pen­inga­stefnu.

Fjármagnshöft aflögð og búist við lækkun vaxta
Til­kynn­ing um afnám hafta Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra greindu frá afnámi fjár­magns­hafta og sam­komu­lagi við aflandskrónu­eig­endur. Mynd: Pressphotos

„Til ham­ingju Ísland!“ segir Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra af því til­efni að fjár­magns­höft verða afnumin á Íslandi lið­lega sjö og hálfu ári eftir að þau voru lögð vegna banka- og gjald­mið­il­skrepp­unnar 2008. „Með þessu stígum við mik­il­vægt skref í átt til að skapa aðstæður til lækk­unar vaxta,“ segir Benedikt jafn­framt.

Breyt­ingin tekur gildi á þriðju­dag þegar „öll fjár­magns­höft á ein­stak­linga, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóði verða af­num­in“. Stór hluti aflétt­ing­ar­innar hefur hins vegar átt sér stað nú þegar. Með þessu verður fjár­magns­flæði til og frá land­inu gefið fjálst og inn­lendir aðilar geta fjár­fest erlendis án tak­mark­ana. Enn gilda hins vegar var­úð­ar­reglur um svokölluð vaxta­muna­við­skipti, en meðal vanda íslenska hag­kerf­is­ins fyrir hrun var að þegar stýri­vextir voru hækk­aðir til að minnka ofþenslu hafði það ekki eins demp­andi áhrif á hag­kerfið og fyr­ir­hugað var, vegna þess að fjár­magn streymdi til lands­ins með fyr­ir­heitum um að njóta hærri vaxta.

Búist við vaxtalækkun

Næsta vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands er á mið­viku­dag. Stýri­vextir eru nú 5 pró­sent, en meðal þeirra ríkja sem hafa hærri stýri­vexti eru þriðja heims ríki og svo ríki eins og Rússland, Tyrkland, Indland, Indónesía og Suður-Afríka. Stýri­vextir eru hálft pró­sent í Noregi, 0,25 pró­sent í Bret­landi og nei­kvæðir um hálft pró­sent í Svíþjóð, sem hefur meðal ann­ars þau áhrif að hús­næð­is­vextir eru mun hag­stæð­ari fyrir almenn­ing en á Íslandi.

Bæði Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra lýsa áhyggjum sínum af styrk­ingu á gengi krón­unnar að und­an­förnu. Sterkara gengi hefur í för með sér meiri kaup­mátt íslenskra laun­þega í útlöndum og fræði­lega séð lægra verð inn­fluttra vara, en jafn­framt skaðar sterkara gengi krón­unnar ferða­manna­iðn­að­inn og sjáv­ar­út­veg­inn, þar sem vörur þeirra hækka í verði á erlendum mörk­uðum og eft­ir­spurn eftir þeim gæti minnkað í kjöl­farið.

Veruleg styrking gengis

Seðla­bank­inn segir frá því í yfir­lýs­ingu sinni að hann bjóðst til að kaupa krón­urnar fyrir and­virði 90 millj­arða króna sam­kvæmt til­boð­inu. Í yfir­lýs­ingu bank­ans kemur fram að gjald­eyr­is­vara­forði hafi auk­ist úr 600 millj­örðum króna í rúm­lega 800 millj­arða króna frá júní 2015.

Gengi krón­unnar hefur styrkst veru­lega síð­ustu árin, einna helst vegna mik­illar fjölg­unar ferða­manna. Frá árinu 2013 hefur stig­vax­andi árleg fjölgun verið frá 20 til 40 pró­sent. Árið 2013 komu 807 þús­und ferða­menn til lands­ins, en í fyrra voru þeir 1,7 milljón. Miðað við 47 pró­sent fjölgun ferða­manna milli ára í febr­úar virð­ist stig­mögn­unin enn aukast.

Í mars 2013 borg­aði Íslend­ingur ígildi 770 króna fyrir sex doll­ara Big Mac mál­tíð í Banda­ríkj­unum á föstu þar­lendu verð­lagi. Nú borgar Íslend­ingur 650 krónur fyrir sömu mál­tíð. Það segir ekki alla sög­una, því laun á Íslandi hafa hækkað að með­al­tali um 30 pró­sent á sama tíma­bili, sam­kvæmt launa­vísi­tölu, og því ljóst að meðal-Íslend­ingur á mun fleiri krónur. 

Nefnd stofnuð um endurskoðun gjaldmiðilsstefnu

Óljóst er hins vegar hvert íslenska krónan stefnir í kjöl­farið. Ákvörðun stjórn­valda að til­kynna sam­dæg­urs um skipun nýrrar nefndar um end­ur­skoðun pen­inga­stefn­unnar gefur til kynna, það sem hefur verið við­ur­kennt, að krónan er sveiflu­gjarn og ótraustur gjald­mið­ill sem getur með óstöð­ug­leika sínum veitt helstu atvinnu­vegum hag­kerf­is­ins högg og umbylt hús­næð­is­lánum og verð­lagi. Markmið nefnd­ar­innar er „að finna þann ramma pen­inga- og gjald­mið­ils­stefnu sem til lengri tíma litið er heppi­leg­astur til að styðja við efna­hags­legan og fjár­mála­legan stöð­ug­leika með til­liti til hag­vaxtar, verð­bólgu, vaxta, gengis og atvinnustigs“.

Óljóst er hvaða beinu áhrif afnám hafta hefur á hags­muni almenn­ings. Til skemmri tíma eru áhrifin mest á aflandskrónu­eig­endur, sem að stórum hluta eru vog­un­ar­sjóðir, eða hrægammar eins og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, kallar þá.

Vogunarsjóðir borga meira en græddu á biðinni

Í sam­komu­lagi sem Seðla­banki Íslands hefur boðið aflandskrónu­eig­endum er þeim boðið að kaupa evrur á geng­inu 137,5, sem sagt greiða 137,5 krónur fyrir hverja evru, sem er um 23 krónum meira en skráð gengi evru, 114,7 krónur, eða 20 pró­sent yfir skráðu gengi. Þetta er hins vegar hag­stæð­ari leið en aflandskrónu­eig­endum stóð til boða í júní í fyrra þegar þeim bauðst að kaupa evrur á 190 krónur og losna þannig út úr íslenska gjald­miðl­inum. Af þessu til­efni hefur Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, gagn­rýnt stjórn­völd harð­lega „stjórn­völd ætla að nota tæki­færið til að leysa vog­un­ar­sjóð­ina út með gjöfum, alla á einu bretti.“ Hann hefur full­yrt að vog­un­ar­sjóðir hafa staðið að baki „til­efn­is­lausri og ótrú­lega grófri árás“ á sig á síð­asta ári, án þess að útskýra með hvaða hætti. Sig­mundur Davíð sagði af sér emb­ætti í kjöl­far þrýst­ings eftir að leki úr pana­ma­ísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca leiddi í ljós að hann hefði leynt veru­legum hags­munum sínum, en og eig­in­kona hans áttu á sínum tíma hálfs millj­arðs kröfur á hendur íslensku bönk­unum án þess að hann greindi frá því í hags­muna­skrán­ingu. 

Yfirlýsing fjármálaráðuneytisins um afnám hafta

Öll fjár­magns­höft á ein­stak­linga, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóði verða af­num­in með nýj­um regl­um Seðla­banka Íslands um gjald­eyr­is­mál.

Þótt höft­in hafi verið nauð­syn­leg hef­ur hlot­ist tals­verður kostn­aður af þeim, sér­stak­lega til lengri tíma litið. Fyrst um sinn höfðu þau tölu­verð áhrif á dag­legt líf fólks. At­vinnu­lífið hef­ur einnig þurft að glíma við tak­mark­an­ir á fjár­fest­ingu í er­lendri mynt og skila­skyldu gjald­eyr­is. Einkum hef­ur það komið sér illa fyr­ir fyr­ir­tæki í alþjóð­leg­um við­skipt­um og sprota­fyr­ir­tæki. Þá hef­ur höft­un­um fylgt um­sýslu­kostn­aður og ýmis óbeinn kostn­aður.

Þrátt fyr­ir þetta hef­ur ís­lenskt efna­hags­líf tekið við sér á síð­ustu árum. Greitt hef­ur verið úr stór­um hluta vand­ans sem hrunið olli. Sam­hliða hef­ur verið losað um höft­in í nokkr­um skref­um. Árið 2015 var áætl­un um los­un hafta sett fram, sem meðal ann­ars fólst í aðgerðum til lausn­ar á upp­gjöri slita­búa með stöðug­leika­fram­lög­um og upp­boði á krón­um sum­arið 2016. Aðgerð­irn­ar nú eru næsti stóri áfang­inn í þeirri áætl­un.

Fjár­magns­flæði að og frá land­inu verður nú  gefið frjálst og ein­stak­ling­ar, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóðir geta fjár­fest er­lend­is án tak­mark­ana. Þetta er ekki síst mik­il­vægt fyr­ir líf­eyr­is­sjóði sem þurfa að dreifa áhættu af fjár­fest­ing­um sín­um. Eft­ir af­nám haft­anna standa þó eft­ir var­úð­ar­regl­ur vegna vaxta­mun­ar­við­skipta og tak­mark­an­ir á af­leiðu­við­skipti með ís­lensk­ar krón­ur, sem eru þær teg­und­ir spá­kaup­mennsku sem urðu til þess að snjó­hengja af­l­andskróna mynd­að­ist.

Af­námið felst í því að Seðla­bank­inn nýt­ir heim­ild í lög­um um gjald­eyr­is­mál til að veita und­anþágur frá þeim tak­mörk­un­um á gjald­eyr­is­við­skipt­um og fjár­magns­hreyf­ing­um sem nú gilda. Það ger­ir hann með út­gáfu á nýj­um regl­um um gjald­eyr­is­mál. Sam­hliða verða gerðar smá­vægi­leg­ar breyt­ing­ar á regl­um nr. 490/2016 um bind­ingu reiðu­fjár vegna nýs inn­streym­is er­lends gjald­eyr­is.

Dregið úr hættu á óstöðug­leika

Sam­hliða af­námi hafta á inn­lenda aðila hef­ur stærsti hluti vanda sem stafað hef­ur af svo­kall­aðri snjó­hengju af­l­andskróna verið leyst­ur með sam­komu­lagi Seðla­banka Íslands við eig­end­ur krón­anna.

Sam­komu­lagið snýst um að Seðla­bank­inn kaup­ir af­l­andskrónu­eign­ir fyr­ir er­lend­an gjald­eyri.  Viðmiðun­ar­gengi í við­skipt­un­um er 137,5 krón­ur fyr­ir evr­una, sem er um 20% yfir skráðu gengi evru síð­ast­lið­inn föstu­dag. Kaup Seðla­bank­ans hafa í för með sér bók­halds­leg­an hagnað sem kem­ur á móti kostn­aði vegna upp­bygg­ing­ar gjald­eyr­is­vara­forða.

Gjald­eyr­is­forð­inn er nú í sögu­legu há­marki. Í lok fe­brú­ar nam hann um 809 millj­örðum króna og hafði þá vaxið um rúm­lega 220 millj­arða frá því í júní 2015, þegar áætl­un um los­un fjár­magns­hafta var kynnt. Þessi styrka staða hef­ur náðst þrátt fyr­ir tals­verðar end­ur­greiðslur er­lendra lána, hækk­un krón­unn­ar og gjald­eyr­isút­boð í júní 2016 og ger­ir hún Seðla­bank­an­um kleift að hleypa af­l­andskrónu­eign­um út.

Af­l­andskrónu­eign­ir nema um 195 ma.kr., en munu við kaup Seðla­bank­ans nú á eign­un­um verða um 105 ma.kr. Öllum af­l­andskrónu­eig­end­um verður boðið að eiga við­skipti við Seðla­bank­ann á sama gengi og sam­komu­lagið hljóðar upp á næstu tvær vik­urn­ar. Vænt­ing­ar standa því til þess að eft­ir­stæð fjár­hæð af­l­andskrónu­eigna geti lækkað enn frek­ar á næstu vik­um.

Þær af­l­andskrón­ur sem ekki verða seld­ar Seðla­bank­an­um verða áfram háðar tak­mörk­un­um þangað til lög­in sem gilda um þær hafa verið end­ur­skoðuð.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár