Fimm ráð Michael Moore til að bregðast við kjöri Donald Trump

Michael Moore spáði fyrir um sigur Donald Trump í heim­ild­ar­mynd sem hann gaf út skömmu fyrir kosn­ingar. Morg­un­inn eftir að ljóst varð að hann hefði rétt fyrir sér og ljóst varð að Donald Trump yrði næsti for­seti Banda­ríkj­anna birti hann aðgerða­lista í fimm liðum á Facebook. Hann hvetur fólk til að hafna ótt­anum, hætta að tala um hvað það er miður sín yfir úrslit­unum og ráð­ast í aðgerðir.

Fimm ráð Michael Moore til að bregðast við kjöri Donald Trump
Michael Moore Var sann­færður um að Donald Trump ætti eftir að ná kjöri, þrátt fyrir að skoð­ana­kann­anir bentu til ann­ars. Mynd: Wikimedia Commons

Morg­un­inn eftir að Donald Trump hafði verið kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna sett­ist leik­stjór­inn, hand­rits­höf­und­ur­inn og fram­leið­and­inn Michael Moore niður og skrif­aði morgun-gát­lista fyrir landa sína. Listanum, sem er nokk­urs konar ákall til fylgj­enda Demókra­ta­flokks­ins, deildi hann á Facebook-síðu sinni og þaðan barst hann með ógn­ar­hraða um netið. Í dag hafa 374 þús­und manns brugð­ist við list­anum, honum hefur verið deilt meira en 170 þús­und sinnum og 17 þús­und manns hafa skrifað ummæli við hann.

Moore var einn margra sem reyndu að koma í veg fyrir að Donald Trump kæm­ist til valda fyrir kosn­ingar. Þrátt fyrir það var hann sann­færður um að Trump næði kjöri, enda spáði hann fyrir um það í óvæntri og hraðsoð­inni heim­ild­ar­mynd sinni, Michael Moore in TrumpLand, sem kom út í októ­ber­lok öllum að óvörum. Í mynd­inni er fylgst með því þegar Michael Moore setur upp eins manns sýn­ingu í Ohio stuttu fyrir kosn­ingar, þar sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár