Fimm leiðir til að lífga upp á gráu dagana

Fimm leiðir til að lífga upp á gráu dagana

Suma daga er líkt og vorið sé alveg á næsta leiti. Sól­ar­geisl­arnir gægj­ast inn um glugg­ana, fugla­söngur ómar í fjar­lægð og sund­laug­arnar fyll­ast af fólki. En síðan, líkt og hendi væri veifað, kemur næsta vetr­ar­lægð. Næsta hret. Veðrið hefur óneit­an­lega áhrif á and­lega líðan fólks og flestir Íslend­ingar eru fyrir löngu orðnir lang­eygir eftir betri tíð. Á meðan við bíðum er hins vegar ýmis­legt sem við getum gert til þess að lífga upp á gráu dag­ana og á vef­síð­unni happier.com eru nokkrar hug­myndir sem heim­færa má á íslenskan veru­leika.

1. Farðu út!

Í stað þess að hír­ast inn­an­dyra í hvert skipti sem kalt er í veðri, rign­ing eða snjó­koma, gæti verið hressandi að klæða sig í hlífð­ar­gall­ann og fara út. Sem dæmi væri hægt að fara í kröft­uga göngu um hverfið, út að hoppa í polla með börn­unum eða setj­ast út á ver­önd með kaffi­boll­ann, húf­una og vett­ling­ana. 

2. Finndu hamingjuna í litunum

Það má lífga upp á grá­mann í til­ver­unni með því að klæð­ast líf­legum litum. Hvort sem það er lit­ríkur tref­ill, skært nagla­lakk eða röndóttir sokkar þá eru líkur á að lit­irnir munu fá þig og þá sem eru í kringum þig til þess að brosa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár