Femínistar krefja ríkisstjórnina um svör

Rit­stjórn Knúz.is sendi opið bréf til rík­is­stjórnar Íslands. Benda á að þolendur þurfi auk­inn stuðn­ing og að for­varnir þurfi að bein­ast að ger­endum. Stundin sendi spurn­ing­arnar á ráðu­neytin. Einungis eitt svar­aði.

Femínistar krefja ríkisstjórnina um svör

Rit­stjórn femíníska vefrits­ins Knúz.is birti í gær­morgun opið bréf til rík­is­stjórnar Íslands. Um er að ræða ell­efu spurn­ingar sem ýmist bein­ast að rík­is­stjórn­inni allri eða ein­staka ráð­herrum og varða aðgerðir til að stemma stigu við kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Tilefnið er Beauty tips-bylt­ingin svo­kall­aða, þar sem fjöldi kvenna steig fram og sagði frá kyn­ferð­is­of­beldi sem þær hafa orðið fyrir. „Í nær öllum til­vikum eru karl­menn ger­endur. Það liggur fyrir að þolendur munu þurfa stuðn­ing til að vinna úr áfall­inu og að sama skapi er ljóst að kyn­bundið ofbeldi er gríð­ar­legt sam­fé­lags­legt mein sem full ástæða er að vinna bug á,“ segir meðal ann­ars í bréf­inu. 

Spurn­ing­arnar sem rit­stjórn Knúz.is sendi rík­is­stjórn­inni:

 

1. Hyggst rík­is­stjórnin grípa til sér­stakra aðgerða vegna frá­sagna kvenna af kyn­ferð­is­of­beldi?

2. Munu stofn­anir, gras­rót­ar­sam­tök eða önnur sjálf­boða­liða­sam­tök fá auka­fjár­veit­ingar til að aðstoða konur til að vinna úr afleið­ingum kyn­ferð­is­of­beldis?

3. Munu ráðu­neytin beita sér fyrir því að rann­sakað verði hvað veldur því að í okkar sam­fé­lagi og menn­ingu verði svo mik­ill fjöldi kvenna fyrir nauðgun eða annarri mis­notkun eða áreiti af hálfu karla?

4. Mun vel­ferð­ar­ráð­herra tryggja að heilsu­gæslu­stöðvar og aðrar heil­brigð­is­stofn­anir taki til­lit til kvenna sem glíma við afleið­ingar kyn­ferð­is­of­beldis og bjóði upp á úrræði fyrir þær?

5. Mun mennta­mála­ráð­herra beita sér fyrir því að kynja­fræði verði sjálf­stæð skyldu­grein á öllum skóla­stigum?

6. Mun mennta­mála­ráð­herra beita sér fyrir sér­stökum for­vörnum gegn kyn­ferð­is­of­beldi, með áherslu á áhrif klám­væð­ingar?

7. Hefur verið gerð rann­sókn á þjóð­hags­legum áhrifum kyn­ferð­is­of­beldis? Ef ekki, stefnir fjár­mála­ráð­herra á að láta gera slíka rann­sókn?

8. Eru ein­hverjar aðgerðir fyr­ir­hug­aðar af hálfu inn­an­rík­is­ráð­herra um rétt­ar­bætur í þágu þolenda kyn­ferð­is­of­beldis?

9. Mun inn­an­rík­is­ráð­herra beita sér fyrir efl­ingu kyn­ferð­is­af­brota­deildar lög­regl­unnar?

10. Mun inn­an­rík­is­ráð­herra beita sér fyrir fjölgun kven­kyns dóm­ara og fræðslu fyrir dóm­ara um eðli og með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála?

11. Mun for­sæt­is­ráð­herra, sem höfuð rík­is­stjórn­ar­innar, veita ráð­herrum sínum hvatn­ingu og stuðn­ing til að hrinda ofan­töldum verk­efnum í fram­kvæmd?

 

Átak í nafni þjóðaröryggis

Erla Guðrún Gísla­dóttir er í rit­stjórn Knúz.is. Hún segir til­gang bréfs­ins fyrst og fremst vera að fá sam­fé­lagið til að taka á mál­inu. Stafræna bylt­ingin, þar sem konur sögðu sögur sínar undir merkj­unum #þöggun og #kon­ur­tala, hafi sýnt fram á umfang vand­ans. „Það sem er hins vegar ein­kenn­andi fyrir þennan mála­flokk er að hann er afsíðis. Konur segja frá, en svo ger­ist ekk­ert meira. En fólk vill breyt­ingar. Það vill rétt­læti. Það vill upp­ræta þetta. Við hljótum að geta skapað sam­fé­lag þar sem við erum ekki að nauðga. Eða áreita,“ segir Erla Guðrún í sam­tali við Stundina. Hún segir mik­il­vægt að fá skýr svör frá rík­is­stjórn­inni og ráð­herrum um hvað þau ætli að gera í mála­flokknum í kjöl­far bylt­ing­ar­innar. „Konur segja frá, en hvað svo? Hver á að taka við þessum sögum?“ spyr hún. 

Í bréf­inu seg­ist rit­stjórnin vona að rík­is­stjórnin tak­ist af mynd­ug­leik á við það verk­efni sem hug­rakkar konur hafi fengið henni á hendur. „Rík­is­stjórnin verður að axla ábyrgð á vanda sem er sam­fé­lags­legur og verður ekki leystur af ein­stak­lingum eða frjálsum félaga­sam­tökum einum. Það er ljóst að mikið verk er óunnið og rétt­ast væri að hrinda af stað sér­stöku átaki í nafni þjóðar­ör­yggis, þar sem aðgerðir til að sporna gegn kyn­ferð­is­of­beldi og aðstoða þá sem þegar hafa orðið fyrir því verða kynntar,“ segir í lok bréfs­ins til rík­is­stjórn­ar­innar. 

Þurfum að skoða gerendurna

Líkt og end­ur­spegl­ast í bréf­inu er vanda­málið afar víð­tækt og snertir á flestum flötum sam­fé­lag­ins. Spurn­ing­unni sem er beint að vel­ferð­ar­ráð­herra varðar úrræði heil­brigð­is­stofn­ana, mennta­mála­ráð­herra er spurður út í for­varnir gegn kyn­ferð­is­of­beldi, inn­an­rík­is­ráð­herra er spurður út í rétt­ar­bætur í þágu þolenda og for­sæt­is­ráð­herra er spurður hvort hann muni styðja fram­kvæmd verk­efn­anna. „Þetta snertir á svo 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár