Eysteinn kvaddur eftir baráttuna við krabbamein

Eysteinn Skarp­héð­ins­son opn­aði sig um líf sitt og orsakir veik­inda sinna í við­tali hjá Stund­inni í for­varn­ar­skyni öðrum til bjargar. Hann lést síðan fyrir nokkru: Orsökin vél­inda­krabba­mein vegna reyk­inga og áfengis.

Eysteinn kvaddur eftir baráttuna við krabbamein
Eysteinn Skarp­héð­ins­son Fyrir veik­indin sem mörk­uðu örlög hans. Mynd: Úr einkasafni

Ég hitti Eystein í fyrsta skipti á sól­ríkum vor­degi til að taka við­tal við hann – vor­degi þegar nátt­úran er að vakna til lífs­ins; þegar sól­eyj­arnar fara að skrýða tún og ung­arnir að skríða úr eggj­unum. 

Eysteinn sagði mér sögu sína. Hann sagði mér frá æsku­ár­unum í Keflavík, hve hann átti góða fjöl­skyldu, hann sagði mér frá árunum þegar hann keppti í efstu deild í körfu­bolta og hann sagði mér frá áfeng­inu, eit­ur­lyfj­unum og reyk­ing­unum sem settu mark sitt á líf hans og örlög. Eysteinn greind­ist í árs­byrjun með vél­inda­krabba­mein á loka­stigi en helstu áhættu­þættir eru áfeng­is­neysla og reyk­ingar. Eysteinn sagði mér líka frá veik­inda­sögu sinni. Hann hafði varla borðað neitt í um hálft ár og fékk nær­ingu í gegnum slöngu sem lá inn í mag­ann.  

Hann sagði mér auk þess stoltur frá svarta labrador­hvolp­inum Tuma sem var vænt­an­legur til hans – hann náði í sím­ann sinn og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár