Vafasöm viðskiptasaga eiganda Brúneggja

Annar eig­andi Brú­neggja, Kristinn Gylfi Jónsson, á sögu umdeildra við­skipta og gjald­þrota að baki. Hann sló met í per­sónu­legu gjald­þroti árið 2003 og stýrði rót­grónu sam­vinnu­fé­lagi í vanda, meðal ann­ars með lán­veit­ingum til eigin félags þar sem hann sat beggja vegna borðs.

Vafasöm viðskiptasaga eiganda Brúneggja
Kristinn hefur komið víða við á löngum ferli, en sjaldn­ast ganga hlut­irnir sem skyldi Mynd: Rúv

Frá alda­mótum hafa vafa­samir fjár­mála­gjörn­ingar og gjald­þrot ein­kennt við­skipta­sögu Kristins Gylfa Jóns­sonar, ann­ars eig­enda Brú­neggja.

Brúnegg hafa verið staðin að því að blekkja neyt­endur um ára­bil til þess að kaupa „vistæn“ egg frá hænum sem fyr­ir­tækið sagði njóta „umhyggju og ástar“, á sama tíma og Mat­væla­stofnun hafði ákveðið að loka fyr­ir­tæk­inu vegna ítrek­aðra og langvar­andi brota á reglum um dýra­vernd og mat­væla­fram­leiðslu. Brúnegg upp­fylltu aldrei skil­yrði um vist­væna fram­leiðslu þrátt fyrir mark­vissa mark­aðs­setn­ingu þess efnis. 

Kristinn Gylfi Jónsson, annar eig­enda Brú­neggja, svar­aði fyrir málið í Kast­ljós­inu á mánu­dag. Þar kenndi hann meðal ann­ars litlu eft­ir­liti um brot Brú­neggja gegn dýra­vernd og mat­væla­lög­gjöf: „Kannski má segja að menn hafi gengið á lagið vegna þess að það var ekki nógu gott eft­ir­lit með því.“

Dag­sektir Brú­neggja námu 2,6 millj­ónum króna, sem eru aðeins um 1,2 pró­sent af 215 millj­óna króna hagn­aði Brú­neggja á árunum 2009 til 2015.

En þetta er ekki eina málið þar sem Kristinn Gylfi er tal­inn stunda vafa­sama við­skipta­hætti.

Umfjöllun í rannsóknarskýrslu Alþingis

Árið 2003 fór Kristinn í stærsta per­sónu­lega gjald­þrot Íslands­sög­unnar. Hann var stjórn­ar­for­maður kjúklinga­bús­ins Móa hf., sem ásamt svína­bú­inu Braut­ar­holti, sem Kristinn átti, fór í þrot. Í kjöl­farið fór fyr­ir­tækið Nesbú egg, sem Kristinn átti, einnig í þrot. Gjald­þrotið hljóð­aði á end­anum upp á 1,2 millj­arða króna, sem var met á þessum tíma.

Í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis, við­auka 5, blað­síðu 91–92, er farið ræki­lega yfir gjörn­inga bræðr­anna sem eiga Brúnegg og aðdrag­anda þessa sögu­lega gjald­þrots. Árið 1985 höfðu bræð­urnir keypt hlut í Móum, sem þá var með 8% mark­aðs­hlut­deild. Þeir hafi þó strax farið í stór­felldar fjár­fest­ingar og árið 2000 var búið komið með þriðj­ungs mark­aðs­hlut­deild.

Sem formaður Svínaræktarsambandsins
Sem for­maður Svína­rækt­ar­sam­bands­ins Kristinn var á tíma­bili einn stór­tæk­asti svína­rækt­andi lands­ins

Helsti sam­keppn­is­að­ili Móa­bús­ins var Reykja­garður, sem lengst af var stærsti fram­leið­andi hænsna­kjöts á land­inu. Árið 2001 keypti Fóð­ur­blandan, sem þá var í eigu GB Fóðurs, Reykja­garð, en seldi hann svo til Bún­að­ar­bank­ans, sem hugð­ist sam­eina Reykja­garð Móabúi Kristins Gylfa og Björns Jóns­sonar, bróður hans. Hug­myndin að þessum gjörn­ingum voru allir komnir frá Kristni Gylfa, sem raunar vildi ganga mun lengra. 

Hann vildi að Bún­að­ar­bank­inn keypti Fóð­ur­blönd­una og sam­ein­aði hana Mjólk­ur­fé­lag­inu, sem einnig var stór­tækt á fóð­ur­mark­aði. Í fram­hald­inu skyldi síðan sam­eina Móa, Reykja­garð, Nesbú, Síld og fisk og svína­búið Braut­ar­holti í eitt fyr­ir­tæki. Ef af því hefði orðið hefði eitt fyr­ir­tækið ráðið yfir nán­ast allri fóð­ur­sölu á land­inu, og Kristinn og bróðir hans hefðu verið með nærri 70% mark­aðs­hlut­deild á kjúklinga­mark­aði og einnig ráð­andi á kjöt­mark­aði. Sam­keppn­is­yf­ir­völd lögð­ust hins vegar gegn þess­ari sam­ein­ingu. 

Þrátt fyrir það voru þeir bræður orðnir mjög umsvifa­miklir á þessum tíma, áttu annað stærsta svínabú lands­ins, annað stærsta eggja­búið, annað stærsta kjúklinga­búið og voru með mikil umsvif í kjöt­vinnslu. Útþensla þeirra var hins vegar fjár­mögnuð að mestu leyti með lánsfé og voru skuldir þeirra fimm millj­arðar í árs­lok 2002.

Misráðnar fjárfestingar

Í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis segir að sumar fjár­fest­ingar þeirra hafi þótt mis­ráðnar. Þeir voru til­búnir að borga óhóf­lega hátt verð fyrir þau fyr­ir­tæki sem þeir keyptu, en kaup­verðið á bæði Nesbúinu og Síld og fiski þótti óeðli­lega hátt og vand­séð hvernig rekstur fyr­ir­tækj­anna ætti að geta staðið undir afborg­unum af lánum sem þeir tóku til að fjár­magna kaupin.

Í júlí 2001 höfðu Móar tekið í notkun stórt og öfl­ugt slát­ur­hús og kjöt­vinnslu í Mos­fellsbæ. Fram­leiðslu­geta húss­ins var slík að það hefði getað annað allri kjúklinga­fram­leiðslu lands­ins og því var nauð­syn­legt fyrir Móa að stór­auka fram­leiðslu sína til þess að nýta fjár­fest­ing­una. Í kjöl­farið jókst fram­boð af kjúklinga­kjöti á land­inu gríð­ar­lega sem varð meðal ann­ars til þess að valda verð­stríði á kjúklinga­mark­aði.

Uppgangur
Upp­gangur Frétt af því þegar Braut­ar­holtsveldið söls­aði undir sig Síld og fisk

Rekstur kjúklinga­búa lands­ins stóð á þessum tíma höllum fæti. Á meðan Bún­að­ar­bank­inn var eig­andi Reykja­garðs tap­aði hann miklu á rekstri bús­ins. Námu þær fjár­hæðir 313 millj­ónir króna fyrir árið 2001 og 71 milljón árið 2000. Um ára­mótin 2001–2002 var eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins orðið nei­kvætt um 146 millj­ónir en stuttu áður, árið 2000 hafði það hins­vegar verið jákvætt um 72 millj­ónir.

Á sama tíma var töp­uðu Móar féi. Á árinu 2001 nam það tap 241 milljón króna. Verð­stríð á kjöt­mark­aði og offjár­fest­ingar eig­end­anna höfðu þær afleið­ingar að bæði Móabúið og Reykja­garður voru á barmi gjald­þrots árið 2002. Um haustið árið 2003 keypti svo SS Reykja­garð af bank­anum og Matfugl keypti þrotabú Móa, sem hafði verið úrskurðað gjald­þrota í nóv­em­ber­mán­uði árið 2003.

Verð­stríð kjúklinga­fram­leið­enda kom einnig niður á svína­kjöts­fram­leiðslu og má því segja að með þess­ari miklu útþenslu hafi Kristinn og bróðir hans skotið sig í báða fætur. Árið 2002 hættu tíu svínabú rekstri og árið 2003 fer svo svínabú þeirra bræðra að Braut­ar­holti í þrot.

Stærsta persónulega gjaldþrot Íslandssögunnar

Einnig misstu þeir bræður yfir­ráðin yfir Síld og fiski. Svína­búið Braut­ar­holti hafði keypt tvo þriðju hluta í fyr­ir­tæk­inu í júní árið 2000 á um einn millj­arð króna með til­stilli Bún­að­ar­bank­ans. Síld og fiskur rak Vatns­leysu­strand­ar­búið og kjöt­vinnslu undir merkjum Ali í Hafn­ar­firði. Því var haldið fram að við­skipti Braut­ar­holts við Síld og fisk hafi verið mjög umdeild innan stjórnar þess síð­ar­nefnda. Svína­búið hafi selt Síld og fiski svína­kjöt sem Síld og fiskur svo seldi full­unnið til einka­hluta­fé­lags­ins Geysis, sem var í eigu Kristins og bróður hans. Geysir hafi svo selt versl­unum kjötið, en hinum eig­endum Síldar og fisks hafi gramist þetta mjög.

Í októ­ber árið 2003 sagði Steinþór Skúlason, for­stjóri SS, í við­tali við Við­skipta­blaðið að á kjöt­mark­aði væri „hag­fræði and­skot­ans við lýði“. Það væru ekki endi­lega þeir sem væru með lægstan fram­leiðslu­kostnað og mest eigið fé sem lifðu af, heldur þeir sem ættu greiðastan aðgang að láns­fjár­magni á meðan ósköpin gengju yfir.

Erfitt er að meta nákvæm­lega tapið af þessum gjal­þrotum. 1,2 millj­arðar lentu hins vegar á Kristni Gylfa, per­sónu­lega. Þuríður Hall­dórs­dóttir, sem var skipta­stjóri þrota­bús­ins, sagð­ist ekki minn­ast stærra per­sónu­legs gjald­þrots. „Ég hef fylgst nokkuð vel með gjald­þrota­málum í gegnum tíð­ina, ekki síst af því ég vann lengi í inn­heimt­unni hjá Toll­stjóra og það er ekk­ert per­sónu­legt gjald­þrota­mál sem kemur upp í hug­ann sem kemst í námunda við þetta, hvað fjár­hæðir snertir. Þetta eru hæstu tölur sem ég hef heyrt um.“

Gjaldþrotamet
Gjald­þrota­met Fyr­ir­tæki Kristins fóru á hvín­andi kúp­una, en hann fékk þó hluta þeirra við­stöðu­laust aftur upp í hend­urnar

Í sam­tali við DV árið 2004 sagð­ist Kristinn hins vegar vera búinn að fá svína­búið Braut­ar­holti aftur í sínar hendur og nú gæti hann um frjálst höfuð strokið. „Rekstur þess­ara fyr­ir­tækja gengur nú vel, en við, fyrri eig­endur þeirra, lentum í miklum erf­ið­leikum vegna mark­aðs­að­stæðna.“ Árið 2010 varð Braut­ar­holt svo aftur gjald­þrota. Engar eignir fund­ust í búinu, kröfur námu alls nærri 600 millj­ónum króna.

Sat beggja vegna borðs í viðskiptum við sjálfan sig

Á sama tíma og fyr­ir­tæki Kristins voru í gjal­þrota­skiptum kom upp annað mál honum tengdum. Hann hafði verið stjórn­ar­for­maður Mjólk­ur­fé­lags Reykja­víkur um nokk­urra ára skeið, en MR var sam­vinnu­fé­lag sem sá um sölu á fóð­ur­vörum, girð­ing­ar­efni og sáð­vöru auk þess sem það sér­hæfði sig í sölu á bún­aði fyrir bændur í svína- og ali­fugla­rækt.

Í júní árið 2004 var lagt til, á aðal­fundi Mjólk­ur­fé­lags­ins að óskað yrði eftir opin­berri rann­sókn vegna meintra brota Kristins Gylfa, sem fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns. Í grein­ar­gerð sem Þórarinn Viðar Þór­ar­ins­son lög­maður tók saman að beiðni stjórnar Mjólk­ur­fé­lags­ins var dregin upp sú mynd að Kristinn Gylfi hefði brotið gegn félag­inu þegar hann lét það lána fyr­ir­tæki í sinni eigu, Svína­bú­inu Braut­ar­holti, 41 milljón króna í bein­hörðum pen­ingum.

Mjólkurfélagið
Mjólk­ur­fé­lagið var stofnað 1917 og var líf­eyr­is­sjóður þeirra bænda sem í það höfðu lagt fé. Þeim pen­ing sólund­aði Kristinn í sín eigin fyr­ir­tæki

Einnig kom þar fram að farið hefði út fyrir öll venju­leg við­mið hversu miklum skuldum fyr­ir­tæki í eigu Kristins Gylfa og fjöl­skyldu hans fengu að safna hjá MR vegna fóð­ur­kaupa. End­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið PriceWaterhouseCoopers mat tap MR vegna við­skipt­anna 465 millj­ónir króna. Var því lýst sem alvar­legu áfalli fyrir félagið, sem var einn stærsti kröfu­hafi í þrotabú fyr­ir­tækja Kristins. Tap þess nam 195 millj­óna vegna Móa, 159 millj­óna vegna Braut­ar­holts og 111 millj­óna vegna Nesbús.

Ógegnsæjar lánveitingar

Samkvæmt nið­ur­stöðu rann­sóknar lög­manns­ins voru lán­veit­ing­arnar vand­lega faldar í árs­reikn­ingi mjólk­ur­fé­lags­ins. Áður­nefnt lán var veitt vegna greiðslu Braut­ar­holts­bús­ins á 7 millj­óna króna skuld við MR. Um miðjan ágúst árið 2000 var gefið út 50 millj­óna króna skulda­bréf sem MR ábyrgð­ist. Að frá­dregnum kostn­aði stóð eftir 41 milljón sem fór um banka­reikn­ing MR og inn á reikn­ing svína­bús­ins. Skulda­bréfið fór fljót­lega í van­skil.

Í mars 2000 var gefið út annað skulda­bréf vegna Braut­ar­holts upp á 29 millj­ónir króna. Um þetta bréf gilti það sama og um fyrr­nefnda bréfið að þess var í engu getið í árs­reikn­ingi MR fyrir við­kom­andi ár. Af þeim sökum leit út fyrir að skuldir Braut­ar­holts við MR væru „aðeins“ 79 millj­ónir króna í árs­byrjun 2001 þegar skuld­irnar námu í reynd 150 millj­ónum.

Í skýrslu Þórarins Viðars sagði að umrædd pen­inga­lán­veit­ing hafi verið ótengd starf­semi MR: „Formaður stjórnar mátti vel vita að það væri svo óvenju­leg og dæma­laus ráð­stöfun að félagið geng­ist í ábyrgð fyrir ótengd lán til við­skipta­manna að honum hlýtur að hafa verið ljóst að veit­ing slíkrar ábyrgðar væri langt umfram heim­ildir fram­kvæmda­stjóra félags­ins.“

Mjólkurfélaginu stefnt vegna gjörninga Kristins

Árið 2005 stefndi KB banki Mjólk­ur­fé­lag­inu til að greiða hálfan millj­arð króna vegna samn­ings sem Kristinn gerði við bank­ann, sem stjórn­ar­for­maður MR, um við­skipti með Fóð­ur­blönd­una.

Kristinn Gylfi fékk Bún­að­ar­bank­ann til þess að kaupa Fóð­ur­blönd­una á sínum tíma í því skyni að ráð­andi hlutur yrði seldur Mjólk­ur­fé­lag­inu aftur. Í maí 2001 var und­ir­rit­aður samn­ingur þar sem Kristinn ábyrgð­ist, fyrir hönd Mjólk­ur­fé­lags­ins, að bank­inn biði ekki fjár­hags­legan skaða af við­skipt­unum.

Sam­keppn­is­stofnun féllst svo ekki á að Mjólk­ur­fé­lagið gæti eign­ast Fóð­ur­blönd­una og náð þannig ein­ok­un­ar­stöðu á fóð­ur­mark­aði. Bankinn sat þá uppi með Fóð­ur­blönd­una þar til hann seldi hana aftur með tapi. Mjólk­ur­fé­lagið fékk svo reikn­ing­inn fyrir tap­inu frá KB banka, tæpar 500 millj­ónir með áföllnum vöxtum. Stjórn félags­ins hélt því hins vegar fram að samn­ing­ur­inn hafi verið ólög­mætur þar sem hann hafi aldrei verið bor­inn undir stjórn félags­ins.

Eigið fé Mjólk­ur­fé­lags­ins var á þessum tíma ekki nema 200 millj­ónir króna, enda hafði gjald­þrot fyr­ir­tækja Kristins dregið allan mátt úr félag­inu. Það hafði verið starf­andi sem sam­eign­ar­fé­lag tæp­lega 400 bænda frá árinu 1917 og litu margir bændur á stofnfé sitt sem líf­eyr­is­sparnað. Félagið þurfti að minnka umsvif sín umtals­vert vegna þess­ara áfalla.

Í nóv­em­ber 2005 skipti það um nafn og heitir í dag Lífland. Vegna rekstr­ar­erf­ið­leika hætti félagið að vera sam­vinnu­fé­lag og var síðan yfir­tekið af stærstu eig­endum. Einn þeirra eig­enda er einmitt Kristinn Björns­son, náfrændi Kristins Gylfa og fyrrum for­stjóri Skelj­ungs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár