Enn að berjast við heilaþvott Votta Jehóva

Hlín Ein­ars­dóttir, fyrr­ver­andi rit­stjóri Bleikt.is, á óvenju­lega sögu þar sem upp­eldi í Vottum Jehóva, upp­reisn og sjálfs­vinna til að losna undan heila­þvotti safn­að­ar­ins leika stórt hlut­verk. Hún segir það efsta stig mann­vonsku að ala börn upp í slíkum söfn­uðum.

Enn að berjast við heilaþvott Votta Jehóva
Í mik­illi sjálfs­vinnu Eftir allt sem á undan er gengið hefur Hlín verið hjá sál­fræð­ingi frá því að móðir hennar dó. Mynd: Kristinn Magnússon

Upp­eld­is­árin mín í Vottum Jehóva ein­kennd­ust af felu­leik. Ég vildi ekki vera í þessum söfn­uði þar sem allt var bannað og lifði eig­in­lega tvö­földu lífi, var að stel­ast í afmæli hjá vin­konum mínum á bak við mömmu og lifði í stöð­ugum ótta um að þessir tveir heimar skör­uð­ust.

Þetta ól af sér rosa­lega spennu, óör­yggi og reiði innra með mér þannig að fjórtán ára gömul gerði ég upp­reisn, yfir­gaf söfn­uð­inn með látum, hellti mér í djam­mið og gerð­ist ólátaung­lingur.

Svo gifti ég mig tutt­ugu og eins árs, var gift í tíu ár og eign­að­ist tvö börn, stelpu og strák sem fædd­ust 2004 og 2006 og skildi 2008. Bý nú ein með börn­unum mínum og hund­inum Krumma og nýt þess í botn að vera ein­hleyp og ráða mér sjálf.“

Athuga­semd frá rit­stjórn

Viðtalið við Hlín var tekið áður en hún var hand­tekin fyrir til­raun til að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra og eig­in­konu hans á þeim for­sendum að hún hefði gögn undir höndum sem sýndu fram á fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, útgef­anda og eig­anda DV. Ekki hefur náðst í hana síðan.

 

Móðurmissir 

Bökkum nú aðeins, þú seg­ist hafa gert upp­reisn og brot­ist út, sleistu þá öllu sam­bandi við for­eldra þína? „Nei, nei, við vorum alltaf í ein­hverju sam­bandi en sam­skiptin við mömmu ein­kennd­ust lengi af mik­illi reiði, hún var svo ofboðs­lega heila­þvegin að það var ekki hægt að koma neinum rökum við.

Af ein­hverri ástæðu sá ég samt ástæðu til að fara til hennar og biðja hana afsök­unar á því sem ég hafði gert á hluta hennar fyrir nokkrum árum, sem ég er mjög þakk­lát fyrir því þremur vikum seinna var hún dáin. Það var mikið áfall sér­stak­lega vegna þess að ekki er dánarör­sökin skýr.

Hún fór í ferð til Færeyja árið 2008 og kom aldrei heim aftur. Fannst dáin úti í sjó og eng­inn veit hvað gerð­ist. Henni var búið að líða mjög illa lengi, pabbi hafði orðið bráð­kvaddur 2005, hún var eig­in­lega hætt í söfn­uð­inum og átti bara mjög erfitt. Það var eins og fót­unum hefði verið kippt undan henni og hún fyndi sig hvergi. Það var ofboðs­legt áfall þegar hún dó og bætti enn í reið­ina. Ég vil nefni­lega meina að vera hennar í Vottunum hafi átt stóran þátt í því hversu týnd hún var, svona söfn­uðir svipta fólk hæfi­leik­anum til að hugsa sjálf­stætt og treysta á sjálft sig.

Síðan hún dó hef ég verið að vinna í mínum málum. Til­finn­ingum mínum gagn­vart henni og æsk­unni og þessu öllu. Ég er farin að skilja að þessi reynsla hefur gert mig að þeirri mann­eskju sem ég er í dag og mér finnst ég alveg frá­bær mann­eskja, mjög sterk og sjálf­stæð og til­búin til að berj­ast fyrir því sem skiptir mig máli. Þannig að í sjálfu sér græddi ég kannski á því að þurfa að takast á við þetta allt saman.“

Talnablindan olli námsvalinu

Hlín er með MA-próf í Almennri bók­mennta­fræði og þegar ég spyr hvort löngun til að skrifa hafi ráðið því náms­vali fer hún að hlæja og segir málið ekki svo ein­falt.

„Ástæðan fyrir því að ég valdi bók­mennta­fræð­ina er mjög ein­föld. Ég er með talna­blindu sem olli mér enda­lausum vand­ræðum í skóla, ég féll í stærð­fræði á sam­ræmdu próf­unum og var tíu ár að ná stúd­ents­prófi vegna þess að ég féll enda­laust í öllum stærð­fræði­kúrsum. Ég vissi aldrei hvað var að, hélt ég væri bara svona treg þótt mér gengi mjög vel í tungu­málum og kjafta­fögum.

Það var bara eng­inn skiln­ingur á því að fólk gæti verið blint á tölur og ekk­ert gert til að hjálpa krökkum með talna­blindu. Fólk varð, og verður enn þann dag í dag, bara reitt og heldur að maður sé að fífl­ast þegar maður getur alls ekki skilið eitt­hvað sem inni­heldur tölur. Þetta braut niður sjálfs­traustið hjá mér og ég varð óskap­lega óör­ugg í skóla­kerf­inu.
Þannig að þegar kom að því að velja háskóla­nám valdi ég bók­mennta­fræð­ina vegna þess að þar var ekk­ert verið að vinna með tölur. Mig lang­aði í sál­fræði, en náms­skráin þar inni­hélt töl­fræði svo ég snar­hætti við það. En auð­vitað langar mig líka að skrifa, hef alltaf skrifað mikið og gef örugg­lega ein­hvern tíma út sög­una mína á bók. Það er svo sann­ar­lega af nógu að taka með þennan bak­grunn.“

Viðbrögðin komu á óvart

Hlín komst í sviðs­ljósið þegar hún var ráðin rit­stjóri kvenna­vefj­ar­ins Bleikt.is árið 2010. Hún stýrði vefnum í fjögur ár, sem hún segir hafa verið 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár