Engar ráðstafanir vegna kynferðisbrota á Aldrei fór ég suður: Ein nauðgun tilkynnt til lögreglu

Stúlka kvaðst hafa orðið fyrir árás óþekkts manns þegar hún fór út til að kasta upp. Hann hafi komið fram vilja sínum. Sól­stafir gagn­rýna skipu­leggj­endur, bæj­ar­yf­ir­völd og lög­reglu fyrir að gera enga við­bragðs­á­ætlun vegna kyn­ferð­is­brota.

Engar ráðstafanir vegna kynferðisbrota á Aldrei fór ég suður: Ein nauðgun tilkynnt til lögreglu
Gat ekki borið kennsl á ger­and­ann Ein nauðgun var til­kynnt á Ísafirði um pásk­ana. Ger­and­inn er óþekktur og hefur sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar ekki enn fund­ist. Myndin er úr safni og teng­ist efni frétt­ar­innar ekki beint. Mynd: Shutterstock

Engar sér­stakar ráð­staf­anir varð­andi kyn­ferð­is­brot voru gerðar vegna tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Aldrei fór ég suður eða Skíða­vik­unnar sem haldin var á Ísafirði um pásk­ana. Ein nauðgun var til­kynnt til lög­reglu aðfar­arnótt föstu­dags, en sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var þol­anda hvorki boðin sál­fræði­þjón­usta né önnur félags­leg aðstoð að skýrslu­töku hjá lög­reglu lok­inni.  

Heim­ildir Stund­ar­innar herma að atvikið hafi átt sér stað fyrir utan beitn­inga­skúr á Ísafirði aðfara­nótt föstu­dags. Stúlkan sem um ræðir hafi verið stödd í sam­kvæmi í skúrnum en farið út og komið sér fyrir milli tveggja gáma til þess að kasta upp. Samkvæmt fram­burði stúlkunnar hafi þá ein­hver komið aftan að henni, ráð­ist á hana kyn­ferð­is­lega og náð fram vilja sínum. Stúlkan mun ekki hafa getað borið kennsl á mann­inn, en verið með sjá­an­lega áverka eftir árás­ina. Málið er nú til rann­sóknar hjá lög­reglu. 

Engar sérstakar ráðstafanir vegna kynferðisbrota

„Hvergi var gert ráð fyrir að eitt­hvað gæti farið úrskeiðis,“ segir Lísbet Harð­ar­dóttir starfs­maður Sólstafa, systra­sam­taka Stíga­móta, í sam­tali við Stundina. „Það var engin bak­vakt vegna kyn­ferð­is­brota og engin við­bragðs­á­ætlun. Skipu­leggj­endur leit­uðu ekki til okkar um sam­starf 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár