Ellefu ára strákur hreinsar borgina af rusli

Kári Pálsson, tæp­lega ell­efu ára grunn­skóla­nemi í Vest­ur­bænum, gengur um og tínir rusl í borg­inni. „Við eigum eftir að verða miklu fleiri,“ segir hann.

Ellefu ára strákur hreinsar borgina af rusli
Hreinsar umhverfið Kári Pálsson, tæp­lega 11 ára nem­andi í Vest­ur­bæj­ar­skóla, stundar að tína rusl sér og umhverf­inu til ynd­is­auka.

„Ekkert sér­stak­lega,“ svarar Kári Pálsson, spurður hvort hann vilji að gerð sé frétt um það sem hann er að gera. 

Kári, sem verður ell­efu ára á næstu dögum, stundar að tína rusl í Vesturbæ og miðbæ Reykja­víkur. Hann fær ekki greitt fyrir það, en gerir það til þess að bæta umhverfið. 

Í dag gekk Kári um skóla­lóð Vest­ur­bæj­ar­skóla, þar sem hann gengur í skóla, með ruslat­ínu og hreins­aði til. Síðustu tvo daga hefur hann fyllt 45 rusla­fötur. „Við fylltum tíu á Grand­anum, eitt­hvað hérna í kring og örugg­lega um 15 niðri í bæ,“ útskýrir hann og lyftir svartri rusla­fötu. Í dag var hann einn, en und­an­farið hefur hann notið lið­sinnis frænku sinnar, Ásdísar Atla­dóttur.

Hvers vegna byrj­að­irðu á þessu?

„Ég veit það ekki," svarar hann. „Vegna þess að Íslend­ingar eru miklir sóðar.“

Kári útskýrir fram­lag sitt til feg­urra umhverfis einnig með því að hann þekkir nokkra starfs­menn Reykja­vík­ur­borgar, sem sam­mælt­ust honum um að hreins­un­ar­starfið væri góð hug­mynd.

Hreinsar garða í nágrenninu

Kári er til­tölu­lega nýbyrj­aður að stunda almenna rusla­hreinsun. Hann hefur þó áður stundað hreins­un­ar­starf. Það felst aðal­lega í að slá garða í nán­asta nágrenni og hjá ætt­ingjum. „Við förum og bönkum upp á. Við erum með sláttu­vél,“ segir hann. Með honum hafa verið frænka hans, skóla­fé­lagar og vinir.

Kári með sláttuvélina
Kári með sláttu­vél­ina Hann tók upp hjá sjálfum sér að slá grasið í görðum nágrenn­is­ins.
Að störfum í sumar
Að störfum í sumar Kári starf­aði meðal ann­ars við að moka fyrir dreni í sumar.

„Við erum líka að skafa snjó á vet­urnar. Svo er garð­ur­inn minn alltaf stút­fullur af snjó vegna þess að við flytjum hann í garð­inn. Við sköfum líka mosa á milli hellna og tökum gras af göt­unum.“

„Þessi góð­verk eru öll að hans frum­kvæði“ 

Kári seg­ist ekki biðja um greiðslu fyrir störf sín í einka­görðum, en ef fólk bjóð­ist til að greiða láti hann það ráða greiðsl­unni.

Dugnaður Kára er sjálf­sprott­inn. „Þessi góð­verk eru öll að hans frum­kvæði,“ segir móðir hans, Dagrún Ellen Árna­dóttir. Hún seg­ist hafa lánað honum sláttu­vél eftir að hann bað um hana. „Hann er frum­kvöð­ull­inn í þessu. Hann hefur alltaf haft áhuga á fram­kvæmdum. Hann hefur til dæmis verið í allt sumar að grafa fyrir dreni í garði frænda síns.“

Fólki er spurn

Mokað fyrir dreni
Mokað fyrir dreni Kári varði stórum hluta sum­ars­ins í að moka fyrir dreni í húsi frænda síns. Hér ásamt frænku sinni, Ásdísi Atla­dóttur.

Kári seg­ist hafa fundið fyrir því að fólk hefur sýnt honum áhuga þegar það verður hans vart við rusla­t­ínsl­una.  „Það hefur haft áhuga og spurt út í hvaða dugn­aður þetta er. Ég segi bara mér finnst þetta gaman.“

„Henda þessu frekar í rusla­tunn­una“

Meg­in­part­ur­inn af rusl­inu sem hann hirðir er plast, pappír og hvers kyns umbúðir utan af mat. „Þetta er mest plast og pappír og umbúðir af mat. Mér finnst lík­legt að fólk hendi þessu bara. Eða að rusla­tunnur séu fullar.“  Hann er með skila­boð til fólks:  „Henda þessu frekar í rusla­tunn­una heldur en á jörð­ina,“ segir hann.

Að sögn Kára verður fram­hald á hreins­un­ar­starf­inu. Hann lyftir ruslat­ín­unni og segir afsak­andi að á næst­unni muni hann öðl­ast betri ruslat­ínu. Og hann trúir því að fjölga muni í hópi ungra sjálf­boða­liða í rusla­hreinsun.

„Við eigum eftir að verða miklu fleiri,“ segir hann. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár