Ekkert líf í þrjá mánuði

Árni Þór Árnason, kynn­inga­stjóri For­lag­ins, á sér ekk­ert líf á meðan jóla­bóka­flóðið stendur yfir.

Ekkert líf í þrjá mánuði

Jóla­bóka­flóðið er rétt handan við hornið og í því mæðir mikið á kynn­ing­ar­stjórum for­lag­anna, sem sjá um skipu­lagn­ingu á öllu sem við­kemur því að koma bók­unum á fram­færi. Árni Þór Árnason, kynn­ing­ar­stjóri For­lags­ins, við­ur­kennir að þá þrjá mán­uði sem flóðið stendur yfir eigi hann sér ekk­ert líf, sem væri glatað ef starfið væri ekki svona skemmti­legt, en þá fái hann útrás í að spila pönk sem hann full­yrðir að sé hreins­andi.

Fyrsta spurn­ingin sem ég spyr Árna Þór er ein­fald­lega: Hvað gerir kynn­ing­ar­stjóri bóka­for­lags eig­in­lega?

„Í raun er þetta mjög ein­falt: Ég reyni eftir besta megni að kynna bæk­urnar sem við gefum út fyrir almenn­ingi og þar með vekja áhuga fólks á nýjum bók­menntum – og bók­menntum yfir höfuð ef við förum í stóru mynd­ina. Aðferð­irnar við að ná til fólks eru þó afar mis­mun­andi, allt frá því að skipu­leggja við­töl í fjöl­miðlum yfir í að fram­kvæma gjörn­inga úti á götu. Þetta er sem sagt mjög skap­andi starf, mikil hug­mynda­vinna og oftar en ekki mik­ill hasar. Skemmti­leg­ast er ef til vill að fá að vinna svona mikið með höf­und­unum sjálfum. Fyrir jólin þarf í miðri geð­veik­inni að halda þétt utan um kynn­ing­ar­starf­sem­ina og skipu­lagið og veita pepp og knús eftir því sem við á. Auk þess sé ég um flesta við­burði sem Forlagið heldur, heima­síð­una og sam­fé­lags­miðl­ana.“

Er þetta ekki stressandi starf; dílandi við úttaug­aða rit­höf­unda og geð­stirða fjöl­miðla­menn dag­inn út og inn?

„Tjahh. Oftar en ekki er það líka hlut­verk manns að halda kúl­inu og leysa málin. Man eftir sér­stak­lega zen momenti þegar höf­undur hringdi í mig úr útvarps­þætti og ætl­aði að hrekkja mig með að segja mér að hræði­legri sögu af honum sjálfum hefði verið lekið og hún væri á leið í fjöl­miðla og spurði hvað hann ætti til bragðs að taka. Hrekk­ur­inn var ónot­hæfur því ég brjál­að­ist ekki heldur leysti málið. Við­ur­kenni þó að þrjá mán­uði á ári á ég mér ekki líf. Sem væri glatað ef þetta væri ekki svona ógeðs­lega gaman!“

En hvernig lent­irðu í þessu starfi? Varla hefur það verið æsku­draum­ur­inn að verða kynn­ing­ar­stjóri bóka­for­lags þegar þú yrðir stór?

„Ég var hepp­inn. Hafði örugg­lega eitt­hvað til brunns að bera en var líka bara hepp­inn. Ég er útskrif­aður úr bók­mennta­fræði og lang­aði, eins og örugg­lega flesta bók­mennta­fræð­inga, að kom­ast í starf hjá útgáfu. Vandinn er bara að það eru svo fáar stöður í boði og starfs­ald­ur­inn í þessum bransa alveg fárán­lega hár. Þegar ég tók mastergráðu í rit­stjórn og útgáfu var hluti af nám­inu starfs­nám. Ég komst inn hjá For­lag­inu og var ráð­inn beint úr nema­stöð­unni. Hef talið mig hepp­inn að hafa kom­ist inn í þennan geira síðan. Annars var æsku­draum­ur­inn að vera rokk­stjarna en þann draum er ég enn að elta svona on the side.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár