Menningarlegt stórslys að eiga sér stað við Íslandsstrendur

Einungis 40 millj­ónum varið í forn­leifa­rann­sóknir á ári. Fjár­veit­ingar ekki upp í nös á ketti, segir áhuga­maður um strand­minjar. Skipu­leggur ráð­stefnu til verndar strand­minja.

Menningarlegt stórslys að eiga sér stað við Íslandsstrendur
Másbúðir Másbúðir er að finna rétt hjá Sand­gerði. Þar var áður stór­út­gerð. Hér sést hvernig jarð­veg­ur­inn hefur horfið vegna ágangs sjávar. Mynd: Sigurjóna Guðnadóttir

„Það er að eiga sér stað menn­ing­ar­legt stór­slys á Íslandi, það er bara ekki hægt að kalla það öðru nafni,“ segir Eyþór Eðvarðs­son í sam­tali við Stundina, en hann átti frum­kvæði að átaki til verndar strand­minja við Ísland. Laug­ar­dag­inn 18. apríl næst­kom­andi verður haldin ráð­stefna á Hótel Sögu um mál­efni minja sem eru í hættu vegna ágangs sjávar. Eyþór segir þetta mest­megnis vera sjáv­ar­út­vegs­minjar; naust, varir, ver­búðir, fisk­garða, en einnig bæj­ar­hóla og aðrar minjar tengdar land­bún­aði. „Þetta er bara að hverfa mjög hratt. Það hefur eitt­hvað gerst með brim­rót hérna við Ísland, það er að aukast. Forn­leifa­fræð­ingar sem hafa verið að grafa við strendur tala um þetta, en við höfum einnig verið að rýna í loft­myndir og það sést alveg klár­lega að rofið er orðið það mikið að það stefnir í að við missum þetta næstum því allt saman ef við grípum ekki inn í.“

Stórmerkilegar minjar að hverfa

Eyþór tekur dæmi um Siglu­nesið á Siglu­firði. „Á þessu svæði eru stór­merki­legar minjar sem eru dag­settar alveg frá fyrstu tíð Íslands, frá því Sigl­firð­ingar byrj­uðu að veiða fisk. Þar eru fullt af ver­búðum og meðal ann­ars ösku­haugar með fisk­beinum sem miklu fleiri en forn­leifa­fræð­ingar geta rann­sakað. Siglu­nesið sjálft á tíu til fimmtán ár eftir og þá er það horfið,“ segir Eyþór. Þá segir hann ástandið einnig afar slæmt á Norð­ur­landi Vestra, þar sem um 80 pró­sent af minjum eru að hverfa. Á Vest­fjörðum sé staðan svipuð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár