Einn ötulasti talsmaður útrásarinnar verður aftur ritstjóri Markaðarins

„Hann reyndi ítrekað að koma í veg fyrir að aðrir blaða­menn en þeir sem störf­uðu á Mark­aðnum skrif­uðu um íslensk fyr­ir­tæki og útrás­ina með rökum eins og þeim að gagn­rýnin og aðgangs­hörð skrif gætu eyði­lagt tengsl við­skipta­blaðs­ins við við­kom­andi fyr­ir­tæki og fleira í þeim dúr,“ skrifar fyrr­ver­andi sam­starfs­maður Hafliða Helga­sonar.

Einn ötulasti talsmaður útrásarinnar verður aftur ritstjóri Markaðarins

Hafliði Helgason hefur verið ráð­inn rit­stjóri efna­hags- og við­skipta­f­rétta hjá frétta­stofu 365. Þetta kemur fram í frétt á Vísi.is en Hafliði starf­aði á Frétta­blað­inu frá 2001 til 2007 og var fyrsti rit­stjóri Mark­að­ar­ins, fylgi­rits Frétta­blaðs­ins um við­skipti. Mun hann nú aftur ann­ast rit­stjórn fylgi­rits­ins líkt og hann gerði á útrás­ar­ár­unum en þá sætti hann gagn­rýni fyrir þann mikla stuðn­ing sem blaðið veitti íslensku fjár­mála­lífi.

Hafliði hætti á Frétta­blað­inu árið 2007 og tók til starfa hjá Reykja­vik Energy Invest þar sem hann fékk að kaupa hluta­bréf á vild­ar­kjörum fáeinum vikum eftir ráðn­ing­una. Að því er fram kemur á Vísi.is hefur Hafliði unnið að ýmsum verk­efnum tengdum fjár­fest­ingum und­an­farin ár, nú síð­ast sem sér­fræð­ingur hjá Fram­taks­sjóði Íslands frá árinu 2012. Hann er með MBA-gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík og á að baki nám í blaða­mennsku í Svíþjóð og heim­speki við Háskóla Íslands.

Í bók­inni Ham­skiptin: Þegar allt varð falt á Íslandi eftir Inga Frey Vil­hjálms­son, blaða­mann á Frétta­tím­anum, er rakið hvernig Hafliði gætti hags­muna við­skipta­lífs­ins sem rit­stjóri Mark­að­ar­ins hjá 365 miðlum. „Ég starf­aði á Frétta­blað­inu á þessum tíma og man vel eftir því hvernig hann reyndi ítrekað að koma í veg fyrir að aðrir blaða­menn en þeir sem störf­uðu á Mark­aðnum skrif­uðu um íslensk fyr­ir­tæki og útrás­ina með rökum eins og þeim að gagn­rýnin og aðgangs­hörð skrif gætu eyði­lagt tengsl við­skipta­blaðs­ins við við­kom­andi fyr­ir­tæki og fleira í þeim dúr,“ segir í bók­inni. „Þannig var reynt að koma í veg fyrir umfjöllun ann­arra blaða­manna um við­skipta­lífið með því að slá á putt­ana á þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár