EES-samningurinn munaðarlaus

Óaf­sak­an­legur inn­leið­ing­ar­halli á Evr­óputil­skip­unum. Íslandi 22 sinnum verið stefnt fyrir EFTA dóm­stólnum á síð­ast­liðnum þremur árum vegna van­rækslu.

EES-samningurinn munaðarlaus

Íslandi hefur frá árinu 2012 verið stefnt 22 sinnum fyrir EFTA dóm­stólnum í Lúx­em­borg vegna van­rækslu við að inn­leiða tíma­lega EES-gerðir. Þetta kom fram í máli Sverris Hauks Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi stjórn­ar­manns hjá Eft­ir­lits­stofnun EFTA, á opnum fundi á vegum Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands í hádeg­inu í dag. Hann sagði afar óheppi­legt að Ísland upp­fylli ekki lág­marks­skyldur sínar gagn­vart samn­ingnum því þetta sé jú eini samn­ing­ur­inn sem Ísland hefur við ESB, nú og í nán­ustu fram­tíð. „Okkur ber því að hlúa að honum og sýna honum við­hlít­andi virð­ingu,“ sagði hann meðal ann­ars. Á fund­inum sátu einnig fyrir svörum for­menn allra flokka sem eiga sæti á Alþingi utan Fram­sóknar, en í hans stað var Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ESB

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár