Donald Trump verður valdamesti maður heims

Staðfest að Trump var kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna. Hann heitir því í sig­ur­ræðu að sam­eina Banda­ríkja­menn. Banda­ríkja­menn kusu for­seta sem lof­aði að lækka skatta, auka útgjöld og reisa múr við landa­mæri Mexíkó á kostnað nágranna­rík­is­ins.

Donald Trump verður valdamesti maður heims
Donald Trump Heldur sig­ur­ræð­una. Mynd: Youtube

Donald Trump fagnar sigri eftir sigur í for­seta­kosn­ingum í Banda­ríkj­unum. Hillary Clinton hefur rætt við Trump sím­leiðis og játað sig sigr­aða. Hann heldur nú sig­ur­ræðu sína. „Þetta hefur verið ótrú­legt og ég elska landið mitt,“ sagði Trump í sig­ur­ræð­unni rétt í þessu. Við­staddir sungu af fögn­uði: „USA! USA! USA!“

„Við ætlum að end­ur­byggja inn­við­ina,“ sagði Trump einnig í ræð­unni. „Við munum veita millj­ónum vinnu á meðan við end­ur­byggjum þá.“

Trump sagði að Banda­ríkin yrðu mikil á ný. „Ameríka mun ekki fá annað en það besta.“ Hann sagð­ist ætla að leita sátta og halda frið við aðrar þjóðir.

Hann beindi orðum sínum til þeirra sem studdu hann ekki. „Varðandi ykkur sem hafið valið að styðja mig ekki í for­tíð­inni, sem eru nokkrir, mun ég leita leið­sagnar hjá okkur svo við getum unnið saman að því að sam­eina okkar mikla land.“

Þá sagði hann að Hillary Clinton hefði unnið gott starf fyrir land sitt. „Hillary hefur lagt mikið á sig yfir langt tíma­bil og við skuldum henni þakk­læti fyrir þjón­ustu hennar í þágu lands­ins. Nú er tím­inn fyrir Ameríku til að binda sár sundr­ung­ar­innar.“

Trump hafði í kosn­inga­bar­átt­unni lagt áherslu á að reisa múr á milli Banda­ríkj­anna og Mexíkó og láta Mexíkó greiða kostn­að­inn. Þá hefur hann lýst því yfir að leggja ofur­tolla á kín­verskan inn­flutn­ing, banna múslimum að ferð­ast til Banda­ríkj­anna, lækka skatta veru­lega og auka kostnað.

Sig­ur­ræða Donalds Trump birt­ist hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár