Allir nema Davíð mæta á kappræðurnar

Kapp­ræður Stund­ar­innar og Reykja­vik Media verða haldar í kvöld klukkan 20. Allir fram­bjóð­endur nema einn taka þátt.

Allir nema Davíð mæta á kappræðurnar
For­seta­fram­bjóð­endur Kosið verður til for­seta á laug­ar­dag­inn.

Kapp­ræður Stund­ar­innar og Reykja­vik Media með for­seta­fram­bjóð­endum fara fram í kvöld án eins fram­bjóð­anda, sem boð­aði fjar­veru sína í gær.

Davíð Oddsson hyggst halda sinn eigin opna fund í Kópavogi á meðan kapp­ræð­unum stendur í Hafn­ar­firði og verða því átta af níu fram­bjóð­endum þátt­tak­endur mættir í Gafl­ara­leik­húsið klukkan 20 í kvöld.

Haft var sam­band við alla fram­bjóð­endur fyrir um þremur vikum og höfðu allir boðað komu sína utan eins, sem afþakk­aði í gær. Fram­bjóð­end­urnir eru: Andri Snær Magnason, Ástþór Magn­ús­son, Elísabet Jök­uls­dóttir, Guðni Th. Jóhann­es­son, Guðrún Margrét Páls­dóttir, Halla Tóm­as­dóttir, Hildur Þórð­ar­dóttir og Sturla Jónsson.

Til stóð að fram­bjóð­endur mætt­ust í tveimur hópum, en afráðið hefur verið að þeir mæt­ist allir á sama tíma.

Staðreyndakönnun í samtíma

Í kapp­ræðum Stund­ar­innar og Reykja­vik Media er kapp­kostað að veita almenn­ingi aðgang að fram­bjóð­endum og svo halda sann­leik­anum til haga eins og kostur er. 

Það fyr­ir­komu­lag verður haft á að yfir­lýs­ingar fram­bjóð­enda verða stað­reynda­kann­aðar á meðan kapp­ræð­unum stendur og munu Jóhannes Kr. Krist­jáns­son frá Reykja­vik Media og Jón Trausti Reyn­is­son frá Stund­inni sann­reyna og leita heim­ilda í þeim til­fellum þar sem vafi er á sann­leiks­gildi stað­hæf­inga. 

Þá geta áhorf­endur sent spurn­ingar í gegnum Twitter eða Facebook undir streymi af útsend­ingu kapp­ræð­anna.

Spurningar frá almenningi

Fjórar leiðir eru til þess að koma spurn­ingum áleiðis:

1. Senda tölvu­póst á kosningastundin@stundin.is.

2. Senda spurn­ingar á Twitter með myllu­merk­inu #kosn­inga­stundin

3. Skrifa spurn­ingar í ummælum undir streymi af beinni útsend­ingu á Facebook, sem verður finn­an­legt á Facebook-síðum Stund­ar­innar og Reykja­vik Media. 

4. Mæta í sal­inn í Gafl­ara­leik­hús­inu í Hafn­ar­firði og leggja fram spurn­ingar á þar til gerð form.

Full­trúar Stund­ar­innar og Reykja­vik Media munu yfir­fara spurn­ingar og velja úr þær sem spyrlar leggja fram í beinu útsend­ing­unni.

Kapp­ræð­urnar verða í beinni útsend­ingu á Facebook-síðum Stund­ar­innar og Reykja­vik Media frá klukkan 20 í kvöld til 21:30. Spyrlar verða Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður Reykja­vik Media, og Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjóri Stund­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár