Búast við fjölgun ferðamanna við Eldvörp

Umdeildar rann­sókn­ar­bor­anir hefj­ast innan skamms.

Búast við fjölgun ferðamanna við Eldvörp
Eldvörp Vinsæll áfanga­staður þeirra sem vilja njóta nátt­úr­unnar. Mynd: Ellert Grétarsson

Innan skamms mun HS Orka hefja rann­sókn­ar­bor­anir í Eld­vörpum, skammt vestan við Bláa lónið og Svarts­engi en þar er að finna gosminjar frá Reykja­nes­eldum á 13. öld. Fjöl­margir nátt­úru­vernd­ar­sinnar og úti­vi­star­fólk hafa sett sig upp á móti þessu fram­kvæmdum og hefur ljós­mynd­ar­inn Ellert Grét­ars­son verið einn þeirra en hann hefur skrifað fjöl­marga pistla um málið. Eldvörp er röð gos­gíga sem teygja sig 10 kíló­metra frá norð­austri til suð­vest­urs eftir sprungu­stefn­unni sem Ellert segir ein­kenna eld­stöðv­arnar á vest­an­verðum Reykja­nesskag­anum.

Þá segir Ellert einnig að allar líkur séu á því að orku­vinnsla á svæð­inu verði ekki sjálf­bær: „Í mat­skýrsl­unni kemur glögg­lega fram að tengsl eru á milli hita­svæð­anna í Eld­vörpum og Svarts­engi. Allt bendir til þess að um sama jarð­hita­geym­inn sé að ræða. Orku­vinnsla í Eld­vörpum yrði því aldrei sjá­fl­bær, ekki frekar en vinnslan í Svarts­engi sem er keyrð á rúm­lega 70% afköstum. Einungis þannig er mögu­legt að halda henni í jafn­vægi. HS Orka vill sumsé ganga úr skugga um þetta með til­rauna­bor­unum.“

Bæj­ar­yf­ir­völd í Grinda­vík gáfu grænt ljós á verk­efnið en í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað varð­andi fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir þá fund­aði Umhverfis- og ferða­mála­nefnd Grinda­víkur um málið. Nefndin segir að gera megi ráð fyrir því að aukin umræða um Eldvörp leiði til auk­innar umferðar ferða­manna um svæðið.

„Svæðið er mjög við­kvæmt og því brýnt að þegar verði haf­ist handa við að skipu­leggja stíga­gerð og gera aðrar þær ráð­staf­anir til að stýra umferð fólks um svæðið. Nefndin leggur til að leitað verði ráð­gjafar hjá Ómari Smára Ármanns­syni, sem hefur kynnt sér svæðið manna best.“
Þá vildi nefndin einnig árétta mik­il­vægi þess að aðilar á vegum Grinda­vík­ur­bæjar hafi mjög náið eft­ir­lit með öllum fram­kvæmdum á svæð­inu: „… og fylgi því eftir að allar tak­mark­anir á umfangi bor­teiga séu virtar.“

Þá segir einnig í bókun nefnd­ar­innar að strangt eft­ir­lit verði haft með þeim fram­kvæmdum sem óhjá­kvæmi­lega verða vegna upp­bygg­ingar og styrk­ingar á vegum og slóðum á svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldvörp

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár