Vísir til að meta réttindi og stöðu hinsegin fólks

Í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu er unnið að því að móta vinnu­staða­vísi, til að meta hvort íslensk fyr­ir­tæki tryggi rétt­indi og vel­ferð hinsegin starfs­fólks. Eygló Harð­ar­dóttir, frá­far­andi félags­mála­ráð­herra, von­ast til þess að vísir­inn verði íslenskum fyr­ir­tækjum hvatn­ing.

Frá Gay Pride 2016
Frá Gay Pride 2016 Hug­myndin að inn­leið­ingu vinnu­staða­vísis kvikn­aði hjá félags­mála­ráð­herra eftir þátt­töku á IDAHO-ráð­stefn­unni í Kaup­manna­höfn, sem er til­einkuð bar­átt­unni gegn for­dómum gagn­vart hinsegin fólki. Að þessu sinni var áherslan á stöðu hinsegin fólks á vinnu­mark­aði. Mynd: Press photos

Í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu er nú unnið að því að móta svo­kall­aðan vinnu­staða­vísi, sem nota má til að meta hvort íslensk fyr­ir­tæki tryggi rétt­indi og vel­ferð hinsegin starfs­fólks. Frétta­mið­ill­inn Gay Iceland greinir frá þessu. Unnið er að gerð vís­is­ins í sam­starfi við Samtökin ‘78 en hann byggir á evr­ópskri fyr­ir­mynd.  

Í við­tali við Gay Iceland seg­ist Eygló Harð­ar­dóttir félags­mála­ráð­herra von­ast til þess að notkun slíks vísis á vinnu­stöðum verði atvinnu­rek­endum hvatn­ing til að skoða eigin starfs­manna­stefnu og tryggja rétt­indi og vel­ferð hinsegin fólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár