Bersögli Þórunnar

Það verður eng­inn svik­inn af lestri þess­arar bókar. En það er ástæða til að hvetja vænt­an­lega les­endur til þess að gef­ast ekki upp í miðri bók.

Bersögli Þórunnar

Stúlka með höfuð er þroska­saga Þórunnar Valdi­mars­dóttur rit­höf­undar. Bókin fjallar um líf skálds­ins og sagn­fræð­ings­ins frá vöggu til full­orð­ins­ára. Það má með sanni segja að lýs­ingar á mönnum og mál­efnum eru afar skraut­legar og bein­skeyttar. Til­finn­ingin er sú að ekk­ert sé tabú við skrifin. Allt skal sagt og ekk­ert und­an­dregið. 

Þetta kemur vel fram þar sem Þórunn fjallar um for­eldra sína, afa og ömmur. Amma hennar á hæli í von­lausri glímu við sýflis sem hafði afskræmt hana. Og hún lýsir tröppu­gang­inum í hjóna­bandi for­eldra sinna. Pabbinn var kvenna­ljómi sem gat ekki haldið tryggð við eig­in­konu sína. Hann var ekki bara í hefð­undnu fram­hjá­haldi heldur „trylltur af föstu fram­hjá­haldi“. Þetta ástand er Þórunni sárt og hún á erfitt með að taka föður sinn í sátt. Fram­hjá­haldið end­aði svo með skiln­aði með til­heyr­andi erf­ið­leikum og sárs­auka. Það má lesa á milli lína að móðir Þórunnar á alla samúð barns­ins. Móðir Þórunnar glímdi við grimm örlög því hún fékk sýk­ingu sem varð til þess að hún missti kjálka­beinið og hálft and­litið. Hún varð afskræmd. Þórunn lýsir því að þetta hefði orðið til þess að hún lét af for­dómum gagn­vart ófríðu fólki. 

Á köflum eru lýs­ingar Þórunnar svo kostu­legar að hlát­ur­inn bók­staf­lega sýður í manni. Jafnvel þegar dram­inn er í hámarki er stutt í húmor­inn. Þórunn hefur þennan ein­staka hæfi­leka að geta séð ljósið í gegnum hvaða svart­nætti sem er. Bókin er skrifuð í skugga þess að eig­in­maður hennar, Eggert Þór Bern­harðs­son, rit­höf­undur og pró­fessor, varð bráð­kvaddur á gaml­árs­dag í fyrra. Harmur Þórunnar er sem rauður þráður í gegnum bók­ina en húmor­inn er til staðar. 

Þjóðþekktir elskhugar

Víst er að margur sið­prúður mun súpa hveljur við lest­ur­inn. Þórunn lýsir kyn­þroska sínum og ást­ar­lífi. Þannig lýsir hún með eft­ir­tekt­ar­verðum hætti þegar fyrsti kyn­bloss­inn kom til. Þá dregur hún ekk­ert af sér í lýs­ingum á ást­ar­málum sínum. Þjóð­þekktir ein­stak­lingar dúkka upp sem elsk­hugar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár