Bandarískri konu vísað úr landi

Sótti um hæli vegna mik­illa óþæg­inda og ógn­ar­til­finn­ingar sem hún lifði við vest­an­hafs. „Ég held að banda­rísk yfir­völd muni álíta mig geð­veika og læsa mig inni.“

Bandarískri konu vísað úr landi

Lorrie Moss er við­kunna­leg banda­rísk kona með hrokkið hár sem hefur búið á Íslandi frá maí í fyrra. Henni líður vel hérna, hefur eign­ast vini og hefur náð að hrista af sér mikil óþæg­indi sem hvíldu á henni í Banda­ríkj­unum. Hún hefur engin lög brotið.

Í dag á hún von á sím­tali þar sem henni verður sagt hvenær hún verði rekin úr landi.

Lorrie sótti um hæli hér í fyrra vegna mik­illa óþæg­inda og ógn­ar­til­finn­ingar sem hún lifði við vest­an­hafs. Íslensk yfir­völd segja hana hafa gefið ófull­nægj­andi ástæður fyrir hæl­isveit­ingu, saga hennar sé „fjar­stæðu­kennd og brengluð‟ og að hún megi ekki vera á Íslandi meðan málið hennar fer fyrir dóm­stóla. Þegar ég tal­aði við hana í fyrsta skipti fyrir nokkrum dögum var röddin hennar skjálf­andi. Hún lifir við stöðuga streitu vegna yfir­vof­andi brott­vís­unar.

„Mér hefur liðið vel hér á Íslandi. En frá því í gær hefur mér verið óglatt.‟ Fjórum dögum fyrr hafði hún verið boðuð á skrif­stofu Rík­is­lög­reglu­stjóra og henni til­kynnt að hún fengi ekki að vera hér lengur.

Verður vísað úr landi í vikunni

Fyrstu mán­uð­ina sem Lorrie var hér gat hún ekki gengið um vegna verkja í fæti og baki, en síð­ustu mán­uði hefur hún sótt íslensku­nám­skeið, rakið göngu­leiðir Reykja­víkur og tekið ljós­myndir. „Ég tók mynd af minn­is­varð­anum um vin­áttu Banda­ríkj­anna og Íslands,‟ segir hún og hlær. „Og hugs­aði; en frá­bært fyrir mig.‟ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár