Bætur krabbameinsveikrar konu lækkaðar vegna sjálfboðavinnu hennar

Atvinnu­laus kona lendir í skerð­ingu á atvinnu­leys­is­bótum vegna þess að hún fór sem sjálf­boða­liði vegna sam­starfs­verk­efnis fyrir sam­tök krabba­meins­veikra.

Bætur krabbameinsveikrar konu lækkaðar vegna sjálfboðavinnu hennar
Julie Coadou Vinnu­mála­stofnun túlkar reglur strangt og ætla draga fjóra daga af bótum hennar.

Julie Coadou er með sjald­gæfa gerð krabba­meins og hefur und­an­farin tvö ár verið í stjórn Krafts - stuðn­ings­fé­lagi fyrir ungt fólk með krabba­mein og aðstand­endur.

Hún er atvinnu­laus en eftir að hún lauk fæð­ing­ar­or­lofi treysti hún sér ekki að snúa aftur til vinnu vegna veik­inda. Julie er frönsk að upp­runa en hefur búið hér á landi um ára­bil. Kraftur hefur unnið að sam­starfs­verk­efni með pólskum syst­ur­sam­tökum Alivia um nokk­urt skeið og fellst það sam­starf í að íslenskum full­trúum er boðið til Póllands til að funda. Julie fór í slíka ferð í fjóra daga í síð­ustu viku en Vinnu­mála­stofnun ætlar að draga þá daga af bótum hennar. Allur kostn­aður vegna ferð­ar­innar; flug, matur og gist­ing var borg­aður af pólsku sam­tök­unum.

„Ég varð atvinnu­laus nýverið. Eftir að fæð­ing­ar­or­lofi lauk gat ég ekki farið aftur í mína gömlu vinnu vegna heilsu­fars. Ég var þar til nýverið í stjórn Krafts, en kosn­ingar fóru fram í síð­ustu viku. Ég hef verið í stjórn í tvö ár og núna vil ég ein­beita mér að fólki sem hefur sömu gerð krabba­meins og ég. Í þessi tvö ár höfum við unnið að sam­starfs­verk­efni með sams­konar sam­tökum og Kraftur í Póllandi. Þetta er verk­efni á vegum Evr­ópu­sam­bands­ins og við höfum verið að vinna hug­myndir saman. Auk þess vorum við fengin inn sem ráð­gjafar að stóru sam­evr­ópsku verk­efni,“ segir Julie.

Refsað fjárhagslega

Hluti af þessu sam­evr­ópska verk­efni var að full­trúar Kraft færu út til Póllands til að eiga fundi með syst­ur­sam­tökum sínum þar. Í síð­ustu viku átti einn slíkur fundur að fara fram og Julie bauð sig fram þar sem hún hafði mestan tíma til þess. „Við áttum að senda tvo full­trúa í tvö skipti til Póllands til að vinna að þessu verk­efni. Þetta er allt sjálf­boða­vinna fyrir Kraft. Við áttum að gera þetta í sein­ustu viku og það leit út fyrir að ég hefði mestan tíma. En vegna þess að ég er atvinnu­laus þá eru lög sem segja til um að ef ég fer úr landi þá fæ ég ekki borgað. Ég held að þessi lög séu þannig að það megi túlka þau á ýmsan hátt. Þeir á Vinnu­mála­stofnun ákváðu að vera mjög strangir í sinni túlkun. Það þýðir að meira segja þó ég þyrfti að ferð­ast frá Íslandi til vera við­stödd jarð­ar­för for­eldra minna þá yrði mér refsað fjár­hags­lega fyrir það,“ segir Julie.

 „Hvers vegna þurfa þeir að vera svona strangir að refsa manni fjár­hags­lega fyrir að vinna sam­fé­lags­vinnu og afla sér starfs­reynslu.“

Aflar sér starfsreynslu

Julie bendir á sjálf­boða­vinnan í Póllandi sé auk þess starfs­reynsla sem geti hjálpað henni að fá aftur vinnu. „Ég segi Vinnu­mála­stofnun að ég þurfi að fara til útlanda til að sinna sjálf­boða­vinnu og þeir segja mér að það skipti ekki máli. Ég spyr hvort það eigi líka við þegar sjálf­boða­vinnan sé líka starfs­reynsla fyrir mig sem ég get síðar nýtt til að finna vinnu. Það skiptir ekki máli, ef þú ferð frá Íslandi þá er þér refsað fjár­hags­lega. Þeir segja manni að maður þurfi að koma aftur innan þriggja daga eftir heim­komu til að sýna skil­ríki og flug­far­miða. Það sem ég skil ekki er að, ef maður sannar að maður hafi komið til baka, hvers vegna þurfa þeir að vera svona strangir að refsa manni fjár­hags­lega fyrir að vinna sam­fé­lags­vinnu og afla sér starfs­reynslu,“ segir Julie.

„Stundum er gott að vera strangur en ég held að þetta hafi þau áhrif að fólk svindli frekar.“

„Computer says no“

Julie segir að hún hefði í raun getað sleppt því að til­kynna Vinnu­mála­stofnun að hún væri að fara í þessa ferð og hefði hún þá sloppið við að vera refsað fjár­hags­lega. „Ég skil vel að þeir séu að reyna að koma í veg fyrir bóta­svik. Stundum er gott að vera strangur en ég held að þetta hafi þau áhrif að fólk svindli frekar. Ég hefði í raun getað sleppt því að segja þeim frá þess­ari ferð. Ég sýndi þeim stað­fest­ingu frá Alivia en þeir vildu ekk­ert hlusta á það, það var bara „computer says no“. Ég held að þegar fólk er að vinna með fólki, með mann­legar sögur, geti það ekki hagað sér svona ein­streng­ings­lega,“ segir Julie.

Ósanngjarnt gagnvart útlendingum

Julie telur að þessi ein­streng­ings­lega reglu­festa Vinnu­mála­stofn­unar bitni helst á fólki af erlendum upp­runa. „Þeir eru að refsa útlend­ingum því þeir eru lík­legri til lenda í dauða ætt­ingja eða veik­indum for­eldra. Til dæmis var systir mín mjög veik og læknir hennar bað mig að koma. Ég þurfti að fara í frí­inu mínu til hennar. Þetta er atriði sem bitnar meira á útlend­ingum, þetta er sér­stak­lega ósann­gjarnt gagn­vart þeim,“ segir Julie.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár