Átta tölvupóstar en Illugi svarar engu

Illugi Gunn­ars­son hefur ekki svarað spurn­ingum Stund­ar­innar um tengsl sín við Orku Energy. Illugi hefur ekki brugð­ist við fréttum um lax­veiði­ferð­ina í Vatns­dalsá og hann svarar því ekki hvort hann hann hafi setið í stjórnum fyr­ir­tækja á vegum Orku Energy.

Átta tölvupóstar en Illugi svarar engu
Fjöl­margt á huldu Fjöl­margt er á huldu um tengsl Illuga Gunn­ars­sonar við Orku Energy. Ekki er vitað hversu mikið hann fékk greitt frá fyr­ir­tæk­inu né hvort hann hafi setið í stjórnum á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: Pressphotos

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra hefur ekki svarað einni spurn­ingu sem Stundin hefur sent honum í gegnum aðstoð­ar­konu hans, Sigríði Hall­gríms­dóttur, síð­ast­liðnar tæpu þrjár vik­urnar.  Síðasta svar frá aðstoð­ar­rkonu Illuga sem hún sendi til Stund­ar­innar var laug­ar­dag­inn 25. apríl, fyrir bráðum þremur vikum síðan. Stundin hefur marg­vís­legar spurn­ingar um tengsl Illuga Gunn­ars­sonar og Orku Energy sem blaðið hefur ekki fengið nein svör við. Þá hefur Illugi heldur ekki svarað fyr­ir­spurnum Vísis um tengsl sín og Orku Energy. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Illugi Gunnarsson og Orka Energy

Fréttir

Sam­starfs­maður íslenska rík­is­ins not­aði þrjú félög í skatta­skjólum

Haukur Harð­ar­son, fjár­festir og stjórn­ar­for­maður Orku Energy, átti að minnsta kosti þrjú félög í skatta­skjólum sem hann not­aði í við­skiptum sínum fyrir og eftir hrun. Stýrir fyr­ir­tæki sem á í sam­starfi við íslenska ríkið í orku­málum í Kína og hefur Haukur nokkrum sinnum fundað með Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, vegna orku­mála. Einsdæmi er að einka­fyr­ir­tæki kom­ist í þá stöðu sem Orka Energy er í í Kína.
PistillIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Tvö hlið­stæð spill­ing­ar­mál en bara ein athugun á mútu­broti

Mál utan­rík­is­ráð­herra Sví­þjóðar, Margot Wallström, og mál Illuga Gunn­ars­sonar eru hlið­stæð að ýmsu leyti. Bæði leigðu íbúðir af eink­að­ilum af óljósum ástæðum. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur brugð­ist við í til­felli Wallström en eng­inn eft­ir­lits­að­ili hefur skoðað mál Illuga svo vitað sé. Af hverju stafar þessi munur á milli land­anna?
PistillIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Illugi gerir und­ir­menn sína sam­á­byrga

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra gerði und­ir­menn sína í mennta­mála­ráðu­neyt­inu sam­á­byrga við skipu­lagn­ingu á opin­berri heim­sókn til Kína þar sem Orka Energy var í við­skipta­sendi­nefnd hans. Starfs­menn ráðu­neyt­is­ins vissu ekki um við­skipti Illuga og stjórn­ar­for­manns Orku Energy. Einn af und­ir­mönnum Illuga í ráðu­neyti er Ásta Magn­ús­dóttir sem kom að skipu­lagn­ingu ferð­ar­innar til Kína en ómögu­legt hefur verið að ná í hana til að spyrja hana spurn­inga um ferð­ina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár