Segja spítalann fjársveltan og vegið að réttindum launafólks

Alþýðu­sam­band Íslands gagn­rýnir fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar harð­lega og telur að í næstu nið­ur­sveiflu blasi nið­ur­skurður við: „Rekstur spít­al­ans enn alvar­lega van­fjár­magn­aður.“

Segja spítalann fjársveltan og vegið að réttindum launafólks
Gylfi Arn­björns­son Forseti ASÍ. Mynd: Pressphotos

Ný, aðhalds­söm fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar hefur þau áhrif að tekjur rík­is­ins „nægja ekki til að fjár­magna nauð­syn­leg útgjöld til vel­ferðar og inn­viða þrátt fyrir upp­sveiflu“ að mati Alþýðu­sam­bands Íslands.

ASÍ gagn­rýnir fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar harð­lega í frétta­til­kynn­ingu. Fullyrt er að stefna stjórn­valda í rík­is­fjár­málum stuðli ekki að auk­inni vel­ferð né að efna­hags­legum og félags­legum stöð­ug­leika. Þrátt fyrir upp­sveiflu dugi tekju­stofnar rík­is­ins ekki til að fjár­magna grund­vall­ar­vel­ferð­ar­þjón­ustu og inn­viði. Vel­ferð­ar­kerfið sé notað sem helsta hag­stjórn­ar­tækið, þar sem úrbætur í vel­ferð­ar­kerf­inu eru fjár­magn­aðar með því að draga úr útgjöldum ann­ars staðar í kerf­inu.

Niðurskurður á opinberum rekstri

Gagnrýnt er að þak að á greiðslu­þátt­töku sjúk­linga sé fjár­magnað að mestu leyti með því að íþyngja kostnað ann­arra not­enda heil­brigð­is­þjón­ustu. „Lang­flestir greiða nú of mikið fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu hér á landi og mikil hætta er á að þessi breyt­ing leiði til þess að enn fleiri neiti sér um heil­brigð­is­þjón­ustu en nú er,“ segir í frétt ASÍ og að afleið­ingar slíkra milli­færslna innan vel­ferð­ar­kerf­is­ins gætu orðið alvar­legar: „Fyrirséð er að þegar dregur úr umsvifum muni blasa við nið­ur­skurður í opin­berum rekstri og/eða skatta­hækk­anir, þvert á hag­sveifl­una.“

Bjarni Bene­dikts­son og Benedikt Jóhann­es­sonFjármála- og for­sæt­is­ráð­herra hafa mælt fyrir fjár­mála­á­ætlun sem við­heldur aðhalds­semi í rík­is­rekstri. Hér sjást þeir ásamt seðla­banka­stjóra.

Stundin fjall­aði um að útgjöld hins opin­bera til heil­brigð­is­mála hækka úr 7 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í 7,85 pró­sent, sem er fjarri því sem kraf­ist var skömmu fyrir kosn­ingar. Fyrir kosn­ingar skrif­uðu um 86 þús­und manns undir áskorun Kára Stef­áns­sonar þess efnis að útgjöld til heil­brigð­is­mála yrðu aukin upp í 11 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu.

ASÍ segir stjórn­völd ekki bregð­ast við upp­safn­aðri þörf á hjúkr­un­ar­heim­ilum, sem eykst sífellt. „Áformuð fjölgun hjúkr­un­ar­rýma fram til árs­ins 2022 nemur ein­ungis rúm­lega helm­ing­unum af áætl­aðri við­bót­ar­þörf fyrir ný hjúkr­un­ar­rými til árs­ins 2020. Ekki er að sjá þess merki að gert sé ráð fyrir við­bót­ar­fjár­magni til rekst­urs hjúkr­unar- og end­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu á tíma­bil­inu þrátt fyrir fyr­ir­séða fjölgun aldr­aðra og við­var­andi rekstr­ar­vanda margra stofn­ana.“

Aðför að réttindum

Tekju­jöfn­un­ar­tæki stjórn­valda mætir ekki vænt­ingum ASÍ. Stytting tíma­bils atvinnu­leys­is­bóta lítur ASÍ á sem alvar­lega aðför að rétt­indum launa­fólks og segja stefnu í barna- og vaxta­bóta­kerfum muni fækka fjöl­skyldum sem eigi rétt á bótum, það hafi ekki síst áhrif á ungt fólk. Fæð­ing­ar­or­lofs­kerfið er jafn­framt gagn­rýnt þar sem engin áform séu um leng­ingu orlofs­ins úr 12 mán­uðum, þó svo að greiðslur til for­eldra hækki í 600 þús­und á mán­uði í áföngum.

Almanna­trygg­inga­kerfið er gagn­rýnt fyrir að skilja öryrkja eftir. En öryrkjar munu ekki hljóta bættra kjara í sam­ræmi við elli­elli­líf­eyr­is­þega fyrr en árið 2019. „Á meðan búa örorku­líf­eyr­is­þegar áfram við flókin, ógagnsæ rétt­indi almanna­trygg­inga með krónu á móti krónu skerð­ingum á þann hóp sem verst stendur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálaáætlun 2018-2022

Fréttir

Stjórn­ar­liðar lögð­ust gegn til­lögum um aukin fram­lög til heil­brigðis- og mennta­mála

Fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar var sam­þykkt með 32 atkvæðum gegn 31 í nótt. Þings­á­lykt­unin gengur í ýmsum grund­vall­ar­at­riðum í ber­högg við grunn­gildi laga um opin­ber fjár­mál og hefur sætt harðri gagn­rýni, meðal ann­ars frá stjórn­endum spít­ala og mennta­stofn­ana. Engar breyt­ingar voru gerðar á mál­inu við með­ferð þess á þingi þrátt fyrir að hátt í 200 umsagnir hafi borist.
Fréttir

Rík­is­stjórnin eykur ekki fram­lög til LÍN þrátt fyrir gagn­rýni Bjartrar fram­tíðar fyrir kosn­ingar

Rík­is­stjórnin hefur sömu stefnu í náms­lána­málum og sein­asta rík­is­stjórn, ef marka má fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar 2018-2022. Sömu mark­mið eru í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar og í LÍN-frum­varpi Illugi Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sem lagt var fyrir á sein­asta kjör­tíma­bili. Björt fram­tíð gagn­rýndi frum­varpið harð­lega og í aðdrag­anda kosn­inga sagði Óttarr Proppé, heil­brigð­is­ráð­herra, að frum­varpið væri órétt­látt og bitn­aði mest á tekju­lægri ein­stak­lingum og konum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár