Stjórnarliðar lögðust gegn tillögum um aukin framlög til heilbrigðis- og menntamála

Fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar var sam­þykkt með 32 atkvæðum gegn 31 í nótt. Þings­á­lykt­unin gengur í ýmsum grund­vall­ar­at­riðum í ber­högg við grunn­gildi laga um opin­ber fjár­mál og hefur sætt harðri gagn­rýni, meðal ann­ars frá stjórn­endum spít­ala og mennta­stofn­ana. Engar breyt­ingar voru gerðar á mál­inu við með­ferð þess á þingi þrátt fyrir að hátt í 200 umsagnir hafi borist.

Stjórnarliðar lögðust gegn tillögum um aukin framlög til heilbrigðis- og menntamála

Allir þing­menn og vara­þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans greiddu atkvæði gegn breyt­ing­ar­til­lögum um aukn­ingu fjár­fram­laga til heil­brigðis- og mennta­mála við afgreiðslu fjár­mála­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­innar á Alþingi í nótt. 

Full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna í fjár­laga­nefnd, þær Oddný Harð­ar­dóttir og Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, lögðu fram ítar­legar til­lögur um breyt­ingar á útgjalda- og tekjurömmum áætl­un­ar­innar með það fyrir augum að liðka fyrir frek­ari upp­bygg­ingu inn­viða og auk­inni sam­neyslu á kjör­tíma­bil­inu. Hver ein­asti liður breyt­ing­ar­til­lag­anna var felldur en áætl­unin sam­þykkt óbreytt með 32 atkvæðum gegn 31. 

Eins og Stundin fjall­aði um í apríl hefur Fjár­mála­ráð, sér­fræð­inga­hópur skip­aður af fjár­mála­ráð­herra sjálfum, gefið fjár­mála­á­ætl­un­inni fall­ein­kunn og bent á að hún gangi í ýmsum grund­vall­ar­at­riðum í ber­högg við grunn­gildi laga um opin­ber fjár­mál. Fjár­mála­ráð hefur fundið að því að áætl­unin sé ógagnsæ og fram­setn­ingin óskýr og varað við slökun í aðhaldi rík­is­fjár­mála, enda kunni slíkt að leiða til þess að Seðla­bank­inn þurfi að hækka vexti í fram­tíð­inni. Rektor Háskóla Íslandsog stjórn­endur Land­spít­al­ans og Sjúkra­húss­ins á Akureyri hafa einnig gert alvar­legar athuga­semdir við álykt­un­ina auk þess sem lög­reglu­stjórar þriggja lög­reglu­um­dæma segj­ast þurfa að segja upp fjölda lög­reglu­manna verði áætl­un­inni fylgt eftir. 

Í breyt­ing­ar­til­lögu Oddnýjar Harð­ar­dóttur var meðal ann­ars lagt til að aflað yrði auk­inna tekna með sköttum á tekjur og hagnað, eign­ar­sköttum og sköttum á vörur og þjón­ustu. Að sama skapi lagði hún til að útgjöld yrðu aukin, til dæmis að fram­lög til háskóla­stigs­ins yrðu hækkuð um sam­tals 15 millj­arða frá því sem mælt er fyrir um í upp­haf­legri fjár­mála­á­ætlun og fram­lög til sjúkra­hús­þjón­ustu aukin um sam­tals 56 millj­arða.

Breyt­ing­ar­til­laga Bjarkeyjar Olsen Gunn­ars­dóttur var almenn­ari. Þar var lagt til að ný mál­efna­svið og nýir tekju- og útgjald­ara­mmar myndu bæt­ast við áætl­un­ina þar sem gert yrði ráð fyrir tug­millj­arða aukn­ingu án þess að aukn­ingin til hvers ein­asta mál­efna­sviðs væri til­greind. Báðar til­lög­urnar voru felldar. 

Frá því að fjár­mála­á­ætl­unin var lögð fram á Alþingi þann 31. mars síð­ast­lið­inn hafa borist um 160 umsagnir þar sem má finna ábend­ingar, til­lögur að breyt­ingum og gagn­rýni. Ekkert af þessu varð þess vald­andi að gerðar yrðu breyt­ingar á fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra.

Fjár­mála­á­ætl­unin var sam­þykkt óbreytt með 32 atkvæðum gegn 31 í nótt.

Eft­ir­taldir þing­menn greiddu atkvæði með fjár­mála­á­ætl­un­inni og gegn öllum til­lögum um aukna tekju­öflun og aukin útgjöld hins opin­bera:

Albert Guð­munds­son, Arnbjörg Sveins­dóttir, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Ásmundur Frið­riks­son, Benedikt Jóhann­es­son, Birgir Ármanns­son, Bjarni Bene­dikts­son, Bjarni Halldór Janusson, Björt Ólafs­dóttir, Brynjar Níelsson, Hanna Katrín Frið­riks­son, Hildur Sverr­is­dóttir, Jón Gunn­ars­son, Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir, Jónína E. Arn­ar­dóttir, Karen Elísabet Hall­dórs­dóttir, Nichole Leigh Mosty, Njáll Trausti Frið­berts­son, Óli Björn Kárason, Óttarr Proppé, Pawel Bartoszek, Páll Magn­ús­son, Sigríður Á. Andersen, Sigrún Ingi­björg Gísla­dóttir, Teitur Björn Ein­ars­son, Theodóra S. Þor­steins­dóttir, Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, Val­gerður Gunn­ars­dóttir, Vil­hjálmur Árnason, Vil­hjálmur Bjarna­son, Þor­steinn Víglunds­son og Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár