Sérfræðingahópur gefur fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar falleinkunn: Ógagnsæ og ekki unnin samkvæmt grunngildum laga

Fjár­mála­ráð gagn­rýnir harð­lega fjár­mála­á­ætlun fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, varar við lækkun virð­is­auka­skatts í miðri þenslu og sýnir hvernig fjár­mála­á­ætl­unin stang­ast á við afkomu­mark­mið fjár­mála­stefn­unnar strax á næsta ári.

Sérfræðingahópur gefur fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar falleinkunn: Ógagnsæ og ekki unnin samkvæmt grunngildum laga

Fjár­mála­ráð telur að fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar beri þess merki að ekki hafi verið miðað við grunn­gildi laga um opin­ber fjár­mál við gerð hennar. Fundið er að því að áætl­unin sé að mörgu leyti ógagnsæ og fram­setn­ingin óskýr.

Þá er varað við slökun í aðhaldi rík­is­fjár­mála og bent á að slíkt kunni að leiða til þess að Seðla­bank­inn þurfi að hækka vexti. Sýnt er fram á að strax á næsta ári mun fjár­mála­á­ætl­unin stang­ast á við afkomu­mark­mið nýsam­þykktrar fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar. 

Þetta kemur fram í álits­gerð fjár­mála­ráðs um fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem birt­ist á vef Alþingis í gær.

Álits­gerðin er þungur áfell­is­dómur yfir fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar og felur í sér harða gagn­rýni á ýmis grund­vall­ar­at­riði hennar. 

Að vissu leyti ógagnsærri er áætlun Bjarna

Fjár­mála­ráð er sjálf­stæður sér­fræð­inga­hópur, skip­aður af fjár­mála­ráð­herra sjálfum, sem leggur mat á hvort fjár­mála­stefna og fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar fylgi þeim grunn­gildum sem kveðið er á um í lögum um opin­ber fjár­mál.

Afstaða fjár­mála­ráðs er nokkuð skýr og kemur fram strax í inn­gangi: „Fjármálaráð telur að áætl­unin beri þess merki að grunn­gilda­miðuð vinnu­brögð hafi almennt ekki verið höfð að leið­ar­ljósi við gerð hennar. Vísað er á fáeinum stöðum í laga­text­ann og grunn­gildin nefnd í því sam­hengi en umfram það er umfjöllun hvað grunn­gildin varðar rýr.“

Á eftir fylgir ítar­leg gagn­rýni á ótal atriði fjár­mála­á­ætl­un­ar­innar, en einkum og sér í lagi er fundið að skorti á gagn­sæi. Raunar er full­yrt að áætl­unin sé að vissu leyti ógagn­særri en fjár­mála­á­ætlun Bjarna Bene­dikts­sonar sem sam­þykkt var í rík­is­stjórn­ar­tíð Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þetta kemur á óvart í ljósi þess að Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar og eft­ir­maður Bjarna í ráðu­neyt­inu, hefur talað sér­stak­lega fyrir auknu gagn­sæi síðan hann tók við stöðu fjár­mála­ráð­herra. Í umfjöllun fjár­mála­ráðs um skulda­þróun hins opin­bera segir: „Að vissu leyti er framlögð fjármálaáætlun ógagn­særri en sú fyrri en í henni voru settar fram sviðs­myndir af sölu eigna og sam­spil þeirra við skulda­lækkun.“

„Spennitreyjan“ orðin að veruleika:
Ósamræmi milli stefnu og áætlunar

Í álits­gerð fjár­mála­ráðs um fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar sem birt­ist í febr­úar var bent á að stefnan byggði á hag­felldri en óvissri efna­hags­spá og afkoman hins opin­bera væri næm fyrir breyt­ingum á fram­vindu efna­hags­mála. „Ef hagvöxtur reyn­ist lægri en spár gera ráð fyrir gæti reynst erfitt að ná mark­miði um útgjöld án auk­ins aðhalds,“ sagði í álit­inu.

„Samkvæmt þessu geta stjórnvöld lent í spenni­treyju fjármálastefnu sinnar ef atburð­arásin reyn­ist önnur en efna­hags­spáin gerir ráð fyrir.“ Þrátt fyrir þessar við­var­anir sam­þykkti stjórn­ar­meiri­hlut­inn á Alþingi fjár­mála­stefn­una óbreytta. Hvorki var brugð­ist við við­vör­unum fjár­mála­ráðs né gagn­rýni Seðla­bank­ans.

Um fjár­mála­á­ætl­un­ina segir nú fjár­mála­ráð:

„Þegar tölur um afkomu hins opin­bera eru teknar saman og hlut­fall þeirra af vergri lands­fram­leiðslu er reiknað má sjá að í fjármálaáætlun raun­ger­ist sú áhætta sem fjármálaráð var­aði við í álits­gerð sinni um fjármálastefnu þar sem segir að stjórnvöld geti lent í spenni­treyju fjármálastefnu sinnar.“ 

„Slíkt er ekki til þess fallið að tryggja trúverð­ug­leika umgjarðar opin­berra fjármála.“

Bent er á að á næsta ári muni fjár­mála­á­ætl­unin ekki sam­ræm­ast mark­miði fjár­mála­stefn­unnar um heild­ar­af­komu hins opin­bera. „Slíkt er ekki til þess fallið að tryggja trúverð­ug­leika umgjarðar opin­berra fjármála.“ Bent er á að lögum sam­kvæmt skuli stað­fest að fjár­mála­á­ætlun sé í sam­ræmi við gild­andi fjár­mála­stefnu, en áætl­unin upp­fyllir þetta skil­yrði ekki.

Lækkun virðisaukaskatts grafi undan stöðugleika

Fjár­mála­ráð varar við áformum um lækkun almenna virð­is­auka­skatts­þreps­ins. „Sú sértæka aðgerð er líkleg til að ganga gegn grunn­gild­inu um stöðug­leika við þær efna­hags­að­stæður sem nú ríkja.“

Þá er vikið að hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu: „Sé það rétt að hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjónustu hafi óveru­leg áhrif á komu og neyslu erlendra ferða­manna flytur sú aðgerð skatt­heimt­una af inn­lendri eft­ir­spurn yfir á ferða­þjónust­una. Með stöðug­leika að leið­ar­ljósi er slíkt óvar­legt, í ljósi ofan­greinds, nú um stundir þar sem þess háttar aðgerð ýtir undir þenslu. Í fjármálaáætl­un­ina vantar nánari grein­ingu á þessum atriðum,“ segir í álit­inu. 

Fullyrðingar án rökstuðnings og skortur á upplýsingum

Fjár­mála­ráð tekur ýmis dæmi um atriði í fjár­mála­á­ætl­un­inni sem talin eru ganga gegn kröf­unni um gagn­sæi. T.d. er bent á að í fjár­mála­á­ætl­un­inni séu lyk­il­tölur settar fram ýmist á nafn­verði hvers tíma eða sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu og sam­ræmi skorti í þeim efnum. Þá er fundið að því að í umfjöllun um fjár­fest­ingar hins opin­bera séu engar upp­lýs­ingar um tíma­setn­ingar birtar og ein­ungis vísað til for­gangs­röð­unar stjórn­valda. Settar séu fram full­yrð­ingar um hitt og þetta án rök­stuðn­ings og grein­ingar.

Í 8. kafla álits­gerð­ar­innar er að finna sér­stakar ábend­ingar fjár­mála­ráðs til stjórn­valda. Þar segir meðal ann­ars: „Stjórnvöldum ber að láta grunn­gildi um sjálfbærni, var­færni, stöðug­leika, festu og gagn­sæi end­ur­spegl­ast í vinnu, verk­lagi og umfjöllun fjármálaáætl­unar, eins og lög kveða á um. Rök fyrir áætl­un­inni skulu vera grunn­gilda­miðuð. Ekki nægir að láta fjármálaráði eftir að bera kennsl á hvernig áætl­anir og athafnir ríma við grunn­gildi. Slíkt gengur gegn grunn­gildi um gagn­sæi.“ Hér má lesa umsögn fjár­mála­ráðs í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár