Aldraðir ætla í mál við borgina

Dagdvöl fyrir aldr­aða breytt í skrif­stofur fyrir Reykja­vík­ur­borg. Megn óánægja meðal íbúa og not­enda. Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja fá ákvörð­un­inni hnekkt.

Aldraðir ætla í mál við borgina
Hita­fundur Berglind Magn­ús­dóttir, skrif­stofu­stjóri á Vel­ferð­ar­sviði, rakti ástæður fyr­ir­hug­aðra breyt­inga í upp­hafi fundar. Mynd: Kristinn Magnússon

Enn stendur til að flytja Þorrasel, sem er dag­deild fyrir aldr­aða, yfir í félags­mið­stöð aldr­aðra að Vest­ur­götu 7, þrátt fyrir kæru til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Í hús­næði Þorrasels stendur til að vera með skrif­stofur fyrir starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar vegna heima­þjón­ustu Vest­ur­bæjar, Mið­borgar og Hlíða. Sú starf­semi brýtur í bága við upp­haf­legt hlut­verk hús­næð­is­ins en því er ætlað að hýsa starf­semi fyrir aldr­aða. Mikill hita­fundur var hald­inn að Vest­ur­götu 7 í dag og ljóst að megn óánægja er með breyt­ing­arnar, bæði meðal íbúa í Þorra­götu og þeirra sem sækja félags­mið­stöð­ina að Vest­ur­götu. Vel­ferð­ar­ráð Reykja­vík­ur­borgar var meðal ann­ars gagn­rýnt fyrir skort á sam­ráði við íbúa og not­endur og ákvörð­unni líkt við breyt­ing­arnar sem áttu sér stað í ferða­þjón­ustu fatl­aðs fólks nú um ára­mótin. „Þið eigið að sjá sóma ykkar í því að hætta við þetta,“ kall­aði einn fund­ar­gesta yfir sal­inn. 

Ætla í mál við borgina

Ástæða breyt­ing­annar er halli á rekstri Þorrasels. Að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár