Að efast um Guð og upphefja einræðisherra

And­stæð­ingar þess að Ólafur Ragnar Grímsson yrði for­seti stofn­uðu til aug­lýs­inga­her­ferðar gegn honum árið 1996.

Að efast um  Guð og upphefja einræðisherra

Í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í júní 1996 var ein­sýnt að fjár­mála­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi, Ólafur Ragnar Grímsson, myndi sigra með glæsi­brag. Allar kann­anir sýndu yfir­burða­stöðu hans í bar­átt­unni um Bessa­staði. And­stæð­ingar hans reyndu allt sem þeir gátu til að stöðva sig­ur­göng­una. Síðasta hald­reipið var aug­lýs­inga­her­ferð í Morg­un­blað­inu og Tímanum. 

Ólafur var á þeim tíma einn umdeild­asti stjórn­mála­maður lands­ins. Hann hóf feril sinn sem fram­sókn­ar­maður og reis til áhrifa með Möðru­valla­hreyf­ing­unni. Seinna umturn­að­ist hann og gekk til liðs við Alþýðu­banda­lagið. Undir þeim fána varð hann fjár­mála­ráð­herra. And­stæð­ingar hans voru hat­rammir og báru honum á brýn hvers kyns spill­ingu. Meðal ann­ars átti hann að hafa fært vild­ar­vinum flokks­ins útgerð­ar­fyr­ir­tækið Þormóð ramma á kosta­kjörum. 

Hörðustu and­stæð­ingar Ólafs Ragnars voru innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þá var ákveð­inn kjarni innan Fram­sókn­ar­flokks­ins hat­rammur í garð síns gamla flokks­bróður. Töldu hægri­menn­irnir að Ólafur Ragnar væri komm­ún­isti sem hefði þá áráttu að ganga frjáls­lega um eigur rík­is­ins og gauka verð­mætum að vinum. Hatrið á Ólafi magn­að­ist eftir því sem fram­bjóð­and­inn flaug hærra. 

Auglýstu að Ólafur efaðist um guð

Á end­anum gripu menn til þess örþrifa­ráðs að aug­lýsa gegn Ólafi Ragnari á síð­ustu metrum kosn­inga­bar­átt­unnar. Og aug­lýs­ing­arnar voru hat­rammar og ekk­ert til sparað. Vakin var athygli á því að Ólafur Ragnar efað­ist um til­vist Guðs í við­tali við Rás 2. Þar var vísað til þess að Ólafur hefði sagt að hann tryði því „eig­in­lega“ að Guð væri ekki til. Þá hafði hann árið 1984, sam­kvæmt aug­lýs­ing­unni, upp­hafið Ceausescu, ein­ræð­is­herra Rúmeníu, og 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár