12 atriði sem fengu fólk til að missa trú á Sigmundi Davíð

Aðeins 9 pró­sent lands­manna telja Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra vera heið­ar­legan og 5 pró­sent álíta hann vera í tengslum við almenn­ing. Hvað gerð­ist?

12 atriði sem fengu fólk til að missa trú á Sigmundi Davíð

1Samsæriskenningarnar

Eftir yfir­lýs­ingar Sig­mundar um leyni­skýrslur og sál­grein­ingar erlendra kröfu­hafa á íslenskum ein­stak­lingum kom í ljós að veru­leik­inn var ekki jafn ævin­týra­legur og hann gaf til kynna. „...Reglu­lega eru skrif­aðar leyni­skýrslur hér­lendis fyrir kröfu­haf­ana… Og í sumum til­vikum hafa verið gerðar sál­grein­ingar á fólki til að átta sig á því hvernig best sé að eiga við það,“ sagði Sig­mundur. Full­yrð­ing hans um að í leyni­skýrslu hafi komið fram sú nið­ur­staða að „Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gæfi ekki eftir íslenska hags­muni“ varð vand­ræða­leg þegar kom í ljós að hún var ekki nið­ur­staða í leyni­skýrslu heldur end­ur­tekn­ing á full­yrð­ingu aðstoð­ar­manns Sig­mundar í dreifi­bréfi.

2Óþol fyrir gagnrýni

Ekki var lið­inn nema einn mán­uður af valda­tíma Sig­mundar Davíðs þegar hann byrj­aði að ásaka aðra um að gera „loft­árásir“ á sig. Hluti af því var að RÚV skyldi fjalla um und­ir­skrifta­söfnun gegn lögum um veiði­gjald. Síðan hefur Sig­mundur nýtt mörg tæki­færi á opin­berum vett­vangi til að gagn­rýna þá sem eru gagn­rýnir á hann. Meðal ann­ars hefur hann upp­nefnt þá „nið­ur­rif­s­öfl“ og gefið til kynna að þeir vilji Íslandi illt, eða hafi „.. brenglaða sýn [sem] nær athygl­inni og gefur tón­inn fyrir umræð­una...“
„Þeir eru til sem hafa ekki trú á Íslandi, þeir sem ala á sundr­ung og þeir sem aðhyll­ast öfga­kennda hug­mynda­fræði,“ sagði hann meðal ann­ars hálfu ári eftir að hann komst til valda.

3Matarskatturinn

Þegar Sig­mundur frétti af því að síð­asta rík­is­stjórn væri að íhuga að hækka mat­ar­skatt­inn þótti honum það kalla á að hann kæm­ist til valda. „Það er löngu sannað að skatta­hækk­anir á mat­væli koma verst við þá sem lægst hafa launin ... Að hækka virð­is­auka­skatt á mat­væli í þeirri stöðu sem nú ríkir er hrein aðför að lág­launa­fólki. Þetta er rangt og þetta verður að stöðva … Ef af slíkum skatta­hækk­unum verður er alger­lega ljóst að fyrsta verk Fram­sóknar í rík­is­stjórn verður að afnema þær,“ lýsti hann yfir.

Eftir að Sig­mundur og Framsókn komust í rík­is­stjórn gerðu þau eft­ir­far­andi: Hækka mat­ar­skatt um 4 pró­sentu­stig, eða hátt í 60%.

4Norska lánið

Sig­mundur Davíð stimpl­aði sig heldur betur inn í þjóð­fé­lags­um­ræð­una haustið 2009 þegar hann full­yrti í fjöl­miðlum að hann væri með lausn á krepp­unni. Hann hefði farið til Noregs með Höskuldi Þór Þór­halls­syni, félaga sínum, og fengið vil­yrði fyrir yfir tvö þús­und millj­arða lán frá Noregi. Jens Stol­ten­berg, for­sæt­is­ráð­herra Noregs, svar­aði síðan umleitan um það skrif­lega með neitun. Sig­mundur kenndi Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, um að hafa eyði­lagt fyrir lán­inu.

5SMS-styrkir

Í mars í fyrra kom í ljós að Sig­mundur hefði ein­hliða tekið ákvörðun um að senda 100 millj­óna króna í styrki í kjör­dæm­inu sínu. Meðal ann­ars sendi Sig­mundur SMS-skila­boð á odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Fljóts­dals­hér­aði og til­kynnti um 5 milljón króna styrk, án þess að umsókn hefði borist um styrk­inn. Þegar Rík­is­end­ur­skoðun gerði athuga­semdir við að for­sæt­is­ráð­herra úthlut­aði ein­hliða styrkjum hingað og þangað ófag­lega, og án ferla eða aug­lýs­inga, var svar Sig­mundar að senda yfir­lýs­ingu til fjöl­miðla þar sem því var fagnað að hann hefði ekki gerst brot­legur við lög. „Úttektin stað­festir að for­sæt­is­ráðu­neytið fór að lögum,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni, en jafn­framt var allri gagn­rýn­inni hafnað.

6Moskumálið

Eftir að fram­bjóð­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins gerðu það að kosn­inga­máli að leggj­ast gegn því að múslimar fengju að byggja mosku í Reykja­vík þagði Sig­mundur Davíð. Síðar, þegar hann tjáði sig, gagn­rýndi hann þá sem gagn­rýndu stefnu flokks­ins. „Þegar menn seil­ast svo langt að saka heilu hópana um kyn­þátt­a­níð að ósekju þá er það ekki bara alvar­legt mál fyrir þá sem fyrir því verða heldur fyrir sam­fé­lagið allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár