10 athafnir sem auka hamingju

10 athafnir sem auka hamingju

Breskir vís­inda­menn hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að lík­am­leg nánd og kyn­líf er það sem vekur helst með okkur vellíðan og ham­ingju. Ein­hverjir hefðu eflaust haldið að afslöppun, góð bók og leikur með börn­unum væri hin full­komna upp­skrift að ham­ingju­ríkum degi, en þessar athafnir kom­ast ekki einu sinni á topp tíu list­ann yfir það sem gerir okkur ham­ingju­söm. Garð­yrkja, úti­hlaup og tón­leikar eru, sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar, lík­legri til að veita okkur ham­ingju. 

Tel­egraph fjall­aði um nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar í febr­úar síð­ast­liðnum en þær voru einnig birtar í virta tíma­rit­inu The Economic Journal fyrr á þessu ári. Rann­sóknin var gerð í sam­vinnu London School of Economics og Háskól­ans í Sussex. Yfir tutt­ugu þús­und manns voru beðnir um að ná sér í sér­stakt app sem minnti þátt­tak­endur nokkrum sinnum á dag á að skrá ham­ingju­stig sitt og hvað þeir voru að gera hverju sinni. Teymið vann síðan úr gögn­unum og mat hvaða athafnir væru lík­leg­astar til að auka ham­ingju. 

Hér er topp tíu listinn:

1Nánd, kyn­líf (14,20%)
 

2Leikhús, dans­sýn­ing, tón­leikar (9,29%)
 

3List­sýn­ing, safna­ferð, bóka­safn(8,77%)


4Íþróttir, hlaup, hreyf­ing (8,12%)


5Garð­yrkja (7,83%)


6Söngur, koma fram (6,95%)
 

7Samræður, félags­leg sam­skipti (6,38%)
 

8Fugla­skoðun, nátt­úru­skoðun (6,28%)


9Ganga, fjall­ganga (6,18%)


10 Veiðar, fisk­veiðar (5,82%)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár