Gervigellur í eldheitum stuðningi við Trump

Heillandi ungar konur hylla Donald Trump og lasta andstæðinga hans af miklum eldmóði. Þær eru ekki til.

Fölsk MAGA-kona
Fölsk MAGA-kona Jessica Foster náði að safna milljón fylgj­endum á Instagram áður en í ljós kom að þessi ungi trump­isti í hernum var í raun til­bún­ingur.

Ljós­hærðar konur í sundfötum eða hermanna­búningum lofa Donald Trump Bandaríkja­forseta og lasta andstæðinga hans – en þessir áhrifa­valdar eru skapaðir með gervi­greind og flæða yfir samfélags­miðla með eldheitum pólitískum skila­boðum fyrir þing­kosningarnar í Banda­ríkjunum.

Uppgangur ofur­raun­verulegra gervimenna – sem herma eftir pólitískum slagorðum Trumps á borð við „Ameríka fyrst“ og enduróma málflutning hans í málum eins og innflytjenda­málum – undir­strikar notkun nýrrar tækni í viðleitni til að virkja íhalds­saman kjósendahóp hans sem kenndur er við MAGA, Make America Great Again.

„Hvar eru allir MAGA-vinir mínir? Ef þú kaust Trump, segðu það þá hátt og skýrt í athugasemdunum og þú færð nýjan fylgjanda frá Texas,“ segir heillandi ung kona á TikTok með rauða MAGA-derhúfu. Hún er ekki til.

„Trump er framtíð Ameríku,“ stendur í texta yfir öðru TikTok-myndbandi sem búið er til með gervi­greind og sýnir unglings­stúlku á strönd með bandaríska fánann blaktandi í bakgrunni.

Í Instagram-myndbandi við lagið „YMCA“ með Village People segir gervi­gella, sem lýst er sem „MAGA-föður­landsvini“, að hún hafi „komið út úr skápnum sem Trump-stuðnings­maður“.

Ekki er ljóst hverjir standa á bak við gervi­greindar­aðgangana og hvort þeir séu hluti af skipulagðri áhrifa­aðgerð fyrir kosningarnar í nóvember sem munu ráða því hvort repúblikanar haldi yfirráðum sínum á þinginu.

Fyrr á þessu ári birti Trump sjálfur á samfélags­miðlinum sínum Truth Social myndband af platínu­ljóshærðri gervi­greindar­gellu– með því glæsilega útliti sem er vinsælt meðal aðdáenda hans – sem bar fram tilefnis­lausar ásakanir um spillingu á hendur Gavin Newsom, ríkis­stjóra Kaliforníu úr röðum demókrata.

Móta almenningsálitið

Síðustu mánuði hafa bandarískir fjöl­miðlar greint hundruð gervi­greindar­búinna áhrifa­valda sem styðja Trump – unga menn og konur í hermanna­búningum eða klædda sem innflytjenda­fulltrúar – sem tjá sig um viðkvæm pólitísk mál, þar á meðal þungunarrof og deilurnar við Íran.

Rannsóknar­stofan Governance and Responsible AI Lab (GRAIL) við Purdue-háskóla hefur einnig fylgst með fjölmörgum slíkum aðgöngum á TikTok, Instagram og Facebook.

„Vaxandi bylgja pólitískra gervi­greindar­áhrifavalda í aðdrag­anda kosninganna 2026 gefur innsýn í framtíð þar sem hægt er að nota ofur­markvisst gervi­greindar­efni til að móta almennings­álitið,“ sagði Andrew Yoon hjá CivAI, sjálfs­eignar­stofnun sem einbeitir sér að mögu­leikum og hættum gervi­greindar, í samtali við frétta­stofuna AFP.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HW
    Hardy Wardropper skrifaði
    They deserve each other...
    0
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Eina vörnin gegn upplýsingaóreiðu er fræðsla og þekking. Ábyrgð mentamálaráðuneitisins er mikil.
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Að sníða sér stakk eftir vexti er ágætisregla sem ég hef þó alltaf passað mig á að faraeftir
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár