Verðbólga mælist 5,9 prósent annan mánuðinn í röð. Vísitala neysluverðs, sem mælir verðhækkanir á milli mánaða, hækkaði um 0,44 prósent á sama tíma. Vísitala án húsnæðis hækkaði um 0,49 prósent á milli mánaða.
Bensínverð hækkaði um 8 prósent frá september og hafði sú hækkun 0,16 prósentustiga áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs. Verð á dísilolíu hækkaði enn meira, eða um 11,2 prósent, og hafði 0,11 prósentustiga áhrif á vísitöluna.
Samanlagt skýra þessar tvær hækkanir um 0,27 prósentustig af 0,44 prósenta hækkun vísitölunnar í október, eða rúmlega 60 prósent af hækkuninni.
Eldsneytisverð hækkaði einnig verulega í september, þegar bensín hækkaði um 16,1 prósent og dísilolía um 18,1 prósent. Þá rann út tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti og hækkaði skatturinn úr 11 prósentum í 24 prósent. Hagstofan mat áhrif þeirrar skattabreytingar á vísitölu neysluverðs til 0,32 prósentustiga í september.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2026, sem …

















































Athugasemdir