Lögreglan rannsakar ekki sundferð þingmanna

Engin kæra eða til­kynn­ing hefur borist lög­reglu vegna ferðar þing­mann­anna í Sel­ár­laug og því verður málið ekki tekið til efn­is­legrar með­ferðar hjá emb­ætt­inu. For­stöðu­maður sund­lauga í Reykja­vík segir svona til­vik ekki hafa komið upp um ára­bil.

Lögreglan rannsakar ekki sundferð þingmanna
Sel­ár­laug Þing­menn­irnir fimm fóru í laug­ina eftir lokun. Slíkt gæti verið hús­brot í strang­asta skiln­ingi. Mynd: Af vef Vopnafjarðar

Lög­regl­unni á Aust­ur­landi hefur hvorki borist til­kynn­ing né kæra vegna atviks þar sem fimm þing­menn eru sagðir hafa farið í leyf­is­leysi í Sel­ár­laug í Vopna­firði. Þá kemur fram í svari frá lög­reglu­emb­ætt­inu að hús­brot sam­kvæmt hegn­ing­ar­lögum sæti með­ferð hjá lög­reglu „að kröfu þess sem mis­gert er við“, eins og það er orðað í svar­inu.

Í ljósi þess að Vopna­fjarð­ar­hreppur hefur ekki til­kynnt málið til lög­reglu verður það ekki tekið til efn­is­legrar með­ferðar hjá emb­ætt­inu. Þau sjón­ar­mið birt­ust þó hjá sveit­ar­stjóra, Birni Ingi­mars­syni, í sam­tali við Heim­ild­ina fyrr í vik­unni að það væri óheim­ilt að fara í laug­ina eftir lokun. Hann taldi það ekki til eft­ir­breytni að þing­menn hefðu farið í laug­ina.

„Nei, ég bara tel að þetta sé nokkuð sem menn eigi ekki að gera og ég vænti þess að þetta muni ekki end­ur­taka sig,“ sagði hann.

Áratugir frá óboðnum sundlaugagestum

Allur gangur virð­ist vera á …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár