Sigurjón svarar fyrir ásakanirnar

Þing­mað­ur­inn Sigurjón Þórð­ar­son seldi dóttur vinar síns strand­veiði­út­gerð­ina sína. Morg­un­blaðið segir hann hafa hallað réttu máli, en Sigurjón vísar í samn­ing.

Seldi og rifti
Seldi og rifti For­sendur þess að selja smá­báta­út­gerð­ina Sleppu ehf. síð­asta vor voru brustu vegna bil­unar, að sögn þing­manns­ins Sig­ur­jóns Þórð­ar­sonar. Smá­bát­ur­inn sem fylgdi fór aðeins þrjá túra um sum­arið. Mynd: Golli

Sigurjón Þórð­ar­son, þing­maður Flokks fólks­ins, seldi ungum skip­stjóra smá­báta­út­gerð­ina sína, Sleppu ehf, skömmu eftir að breyt­ingar urðu á reglu­gerð um strand­veiðar í fyrra. Í Morg­un­blað­inu í dag er hann sak­aður um „sýnd­ar­samn­ing“ og að hafa „hallað réttu máli um við­skiptin“.

Þannig hafi samn­ingur um riftun við­skipt­anna við skip­stjór­ann Sig­ur­björgu Áróru Ásgeirs­dóttur, ári eftir að hún tók yfir útgerð­ina, ekki falið í sér neina greiðslu. Í Morg­un­blað­inu er vitnað til umfjöll­unar Vísis frá síð­asta sumri, þar sem kom fram: „Aðspurður sagð­ist hann ekki vera með nákvæma upp­hæð fyrir framan sig en áætlar að hann hafi fengið á bil­inu sextán til átján millj­ónir greiddar fyrir sinn hlut.“ Því hafi Sigurjón „hallað réttu máli“, sam­kvæmt for­síðu­fyr­ir­sögn Morg­un­blaðs­ins og mbl.is í dag, enda hafi samn­ing­ur­inn falið í sér mun lægra kaup­verð.

Vegna nýrra breyt­inga á skil­yrðum strand­veiða sem tóku gildi með reglu­gerð 1. apríl í fyrra var sér­stakur hvati til að skrá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár