Máli sexmenninganna frestað

Ekki var hægt að taka mál þeirra aðila fyrir í dag sem hand­teknir voru í vikunni í tengslum við rann­­sókn á Sam­herj­­a­skjöl­unum og spill­ingu er teng­ist úthlutun afla­heim­ilda í Namib­­íu þar sem lögmenn þeirra voru ekki með atvinnu­leyfi.

Beiðni um lausn gegn tryggingu sex­menn­ing­anna Sacky Shang­hala, Bern­ard Esau, James Hatuikulipi, Ricardo Gusta­vo, Tam­son Hatuikulipi og Pius Mwatul­elo verður ekki tekin fyrir í dag og hefur málinu verið frestað fram á næst­komandi mánudag, sam­kvæmt frétta­miðl­inum The Namibi­an.

Sami miðill greindi frá því á Facebook-síðu sinni að lögmenn Bernhardt Esau, fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu, og Sacky Shanghala, fyrr­verandi dómsmála­ráðherra landsins, hefðu verið hand­teknir í Namibíu í morgun.

Þá kom fram að lögmenn þeirra, þeir Mike Hellens og Dawie Joubert frá Suður-Afríku, væru ekki með atvinnu­leyfi í Namibíu. Ástæða frestunar beiðni um lausn gegn tryggingu er, samkvæmt miðlinum, vegna þessa skorts á atvinnu­leyfi.

Eins og fram hefur komið í fréttum þá voru sex­menn­ing­arnir hand­teknir í vikunni í tengslum við rann­­sókn á Sam­herj­­a­skjöl­unum og spill­ingu er teng­ist úthlutun afla­heim­ilda í Namib­­íu.

Að­il­arnir sem um ræðir eru Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­mála­ráð­herra, James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­ar­­for­­maður namibísku rík­­is­út­­­gerð­­ar­innar Fis­hcor í síð­­­ustu viku, Bern­hardt Esau, sem sagði af sér sem sjá­v­­­ar­út­­­vegs­ráð­herra á sunn­u­dag­inn, Tam­­son 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­sonur Esau sem jafn­­framt er frændi James Hatuikulipi, Ricardo Gusta­vo, sam­­starfs­­maður hans og Pius 'Taxa' Mwa­telu­lo, sem einnig teng­ist James Hatuikulipi fjöl­­skyld­u­­bönd­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár