Eiga yfir höfði sér ákæru fyrir skipulagða glæpastarfsemi

Spillingar­lögreglan í Namibíu hefur sent frá sér yfir­lýsingu vegna sexmenn­ing­anna sem komu fyrir dómara í dag.

Sexmenningarnir voru leiddir fyrir rétt í dag.
Sex­menn­ing­arnir voru leiddir fyrir rétt í dag. Mynd: Skjáskot

Þeir einstaklingar sem hand­teknir voru í gær í tengslum við rann­­sókn á Sam­herj­­a­skjöl­unum og spill­ingu er teng­ist úthlutun afla­heim­ilda í Namib­­íu eiga yfir höfði sér ákæru fyrir skipulagða glæpa­starfsemi.

Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá spillingar­lögreglunni þar í landi í dag.

Fram kom í fréttum fyrr í dag að sex­menn­ing­arnir Sacky Shang­hala, Bern­ard Esau, James Hatuikulipi, Ricardo Gusta­vo, Tam­son Hatuikulipi og Pius Mwatul­elo hefðu mætt fyrir rétt en þeir voru eins og áður segir hand­teknir í gær.

Eins og fram hefur komið í fréttum þá voru sex­menn­ing­arnir hand­teknir í tengslum við rann­­sókn á Sam­herj­­a­skjöl­unum og spill­ingu er teng­ist úthlutun afla­heim­ilda í Namib­­íu.

Sam­kvæmt frétta­miðli þar í landi, The Namibian, var máli þeirra frestað þangað til á morgun vegna umsóknar um lausn gegn trygg­ingu. Þeir munu sitja áfram í varð­haldi á með­an.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár