Sexmenningarnir mæta fyrir rétt

Þeir aðilar sem hand­teknir voru í gær í tengslum við rann­sókn á Sam­herj­a­skjöl­unum og spill­ingu sem teng­ist úthlutun afla­heim­ilda í Namib­íu mættu fyrir rétt í dag.

Sexmenningarnir Sacky Shanghala, Bernard Esau, James Hatuikulipi, Ricardo Gustavo, Tamson Hatuikulipi og Pius Mwatulelo mættu fyrir rétt í dag, samkvæmt frétta­miðlinum The Namibian.

Eins og fram hefur komið í fréttum þá voru sexmenningarnir hand­teknir í gær, miðvikudag, í tengslum við rann­sókn á Sam­herj­a­skjöl­unum og spill­ingu er teng­ist úthlutun afla­heim­ilda í Namib­íu.

Samkvæmt The Namibian var máli þeirra frestað þangað til á morgun vegna umsóknar um lausn gegn tryggingu. Þeir munu sitja áfram í varðhaldi á meðan.

Aðilarnir sem um ræðir eru Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­ar­for­maður namibísku rík­is­út­gerð­ar­innar Fis­hcor í síð­ustu viku, Bern­hardt Esau, sem sagði af sér sem sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra á sunnu­dag­inn, Tam­son 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­sonur Esau sem jafn­framt er frændi James Hatuikulipi, Ricardo Gusta­vo, sam­starfs­maður hans og Pius 'Taxa' Mwa­telu­lo, sem einnig teng­ist James Hatuikulipi fjöl­skyldu­bönd­um.

Yfir­völd í Namib­íu, Íslandi og Nor­egi rann­saka nú ýmsa þætti sem tengj­ast starf­semi Sam­herja í Namib­íu, og eru þar á meðal upp­lýs­ingar um mútu­greiðsl­ur, skattaund­an­skot og pen­inga­þvætt­i.

Eng­inn hefur enn fengið stöðu grun­aðs manns á Íslandi vegna þessa, og hafa ekki farið fram neinar form­legar yfir­heyrslur vegna rann­sóknar mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár