Sex handteknir í Namibíu

Rannsókn á Samherja­skjölunum heldur áfram í Namibíu. Líklegt er að ákærur verði birtar á morgun.

Sex einstaklingar voru hand­teknir í dag, í tengslum við rannsókn á Samherja­skjölunum og spillingu er tengist úthlutun afla­heimilda í Namibíu.

Frá þessu var greint í fréttum RÚV í kvöld.

Þeir sem voru hanteknir, að því er fram kom í umfjöllun RÚV, voru Sacky Shanghala, fyrr­verandi dómsmála­ráðherra, James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórnar­formaður namibísku ríkis­útgerðarinnar Fishcor í síðustu viku, Bernhardt Esau, sem sagði af sér sem sjávar­útvegs­ráðherra á sunnu­daginn, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­sonur Esau sem jafnframt er frændi James Hatuikulipi, Ricardo Gustavo, samstarfs­maður hans og Pius 'Taxa' Mwatelulo, sem einnig tengist James Hatuikulipi fjöl­skyldu­böndum.

Heimilt er að halda þeim í tvo sólar­hringa áður en þeir eru leiddir fyrir dómara, en mögulegt er að þeir verði látnir lausir gegn greiðslu tryggingar­fjárhæðar. Paulus Noa, yfirmaður ACC, spillingar­lögreglu Namibíu, segir að líklega verði þeim birt ákæra á morgun.

Yfirvöld í Namibíu, Íslandi og Noregi rannsaka nú ýmsa þætti sem tengjast starfsemi Samherja í Namibíu, og eru þar á meðal upplýsingar um mútu­greiðslur, skatta­undanskot og peninga­þvætti.

Enginn hefur enn fengið stöðu grunaðs manns á Íslandi vegna þessa, og hafa ekki farið fram neinar formlegar yfirheyrslur vegna rann­sóknar mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár