The Namibian: Spjótin beinast að Þorsteini Má, Ingvari og Aðalsteini

Þrír Íslendingar eru nafn­greindir í The Namibian í dag. Sex eru nú í haldi, en búist er við að ákæra verði birt sakborningum á morgun.

Greint er frá því í The Namibian í dag, að rann­sóknar spillingar­lögreglu landsins, ACC, beinist meðal annars að þremur Íslendingum, þeim Þorsteini Má Baldvins­syni, forstjóra Samherja þar til nýlega, Ingvari Júlíussyni, fjármála­stjóra Samherja á Kýpur, og Aðalsteini Helgasyni, sem hætti störfum fyrir félagið árið 2016.

Eins og greint var frá fyrr í dag eru sex í haldi vegna málsins, en búist er við því að þeim verði birt ákæra áður en tveggja sólarhringa­frestur rennur út, en innan þess tíma þurfa þeir að koma fyrir dómara, og geta verið lausir gegn tryggingu.

Þeir sem voru han­dtekn­ir, að því er fram kom í umfjöllun RÚV fyrr í dag, vor­u Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­ar­for­maður namibísku rík­is­út­gerð­ar­innar Fis­hcor í síð­ustu viku, Bern­hardt Esau, sem sagði af sér sem sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra á sunnu­dag­inn, Tam­son 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­sonur Esau sem jafn­framt er frændi James Hatuikulipi, Ricardo Gusta­vo, sam­starfs­maður hans og Pius 'Taxa' Mwa­telu­lo, sem einnig teng­ist James Hatuikulipi fjöl­skyldu­bönd­um.

Samkvæmt umfjöllun The Namibian beinist rannsókn málsins að mútu­greiðslum í skiptum fyrir fisk­veiðikvóta í lögsögu Namibíu, en fjallað hefur verið ítarlega um þessi mál í frétta­skýringa­þættinum Kveiki á RÚV, í Stundinni, Wikileaks og Al Jazeera, en frétta­skýringar­þáttur á síðastnefndu stöðinni, þar sem veiðarnar í Namibíu verða til umfjöllunar, verður sýndur 1. desember. Samtals hafa um 30 þúsund skjöl tengd veiðum Samherja, verið birt á vef Wikileaks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár