Óskar eftir viðræðum við Bandaríkjamenn

Formaður land­stjórn­ar­innar á Græn­landi teygir sig til Trump-stjórn­ar­innar.

Jens-Frederik Nielsen
Jens-Frederik Nielsen Formaður lands­stjórnar Græn­lands, Jens-Frederik Nielsen, ávarpar þing­menn Evr­ópu­þings­ins á form­legum fundi í Evr­ópu­þing­inu í Strass­borg í aust­ur­hluta Frakk­lands þann 8. októ­ber 2025. Mynd: AFP

Formaður lands­stjórnar Græn­lands kall­aði í kvöld eftir end­ur­nýj­uðum við­ræðum við Banda­ríkin eftir að Donald Trump for­seti ítrek­aði að hann vildi yfir­taka landið, undir því yfir­skini að það sé nauð­syn­legt í þágu öryggis, þrátt fyrir samn­ings­bundna við­veru banda­rísks her­liðs í land­inu.

„Ástandið er ekki þannig að Banda­ríkin geti her­tekið Grænland. Svo er ekki. Því megum við ekki örvænta. Við verðum að end­ur­heimta það góða sam­starf sem við áttum einu sinni,“ sagði Jens-Frederik Nielsen á blaða­manna­fundi í Nuuk og bætti við: „Við verðum að reyna að koma á sam­bandi aftur.“

„Í nokkur kjör­tíma­bil og í mörg ár höfum við átt í sam­starfi við Banda­ríkin og Naal­akk­ersu­isut [græn­lenska land­stjórnin] hefur unnið að því að auka og þróa sam­starfið og Grænland hefur alltaf verið vilj­ugt til að taka þátt í sam­starf­inu,“ segir Jens-Frederik Nielsen úr ræðu­stól.

„Notum réttu leið­irnar til að tala saman,“ segir Jens-Frederik Nielsen, sem vill að NATO-sam­starfið verði styrkt og þróað.

„Nú er ekki tími fyrir sundr­ungu, fyrir áhyggjur og kvíða, og þess vegna tekur Naal­akk­ersu­isut [græn­lenska land­stjórnin] þetta alvar­lega,“ segir Jens-Frederik Nielsen.

Hann talar einnig um að end­ur­heimta gott sam­band við Banda­ríkin. Hann óskar eftir sam­skiptum við Banda­ríkin í góðri sam­ræðu, því hann trúi því að sam­starfið á Norður-Atl­ants­hafi geti orðið betra en það er nú, ef hægt er að end­ur­vekja sam­ræður sem ekki fara aðeins fram í gegnum fjöl­miðla.

Jens-Frederik Nielsen nefnir Trump varla á nafn og hafnar því að hægt sé að draga upp hlið­stæða mynd milli þess sem gerð­ist í Venes­ú­ela og svo á Græn­landi.

„Við höfum alltaf sagt að við séum opin fyrir við­skiptum,“ bætti hann við og kvaðst vilja fá beina línu aftur – vænt­an­lega til stjórn­valda í Banda­ríkj­unum.

Nielsen hafnar því að það þjóni nokkrum til­gangi að tala um hugs­an­legar hern­að­ar­í­hlut­anir á Græn­landi, því landið sé ekki í aðstæðum þar sem „kannski gæti orðið yfir­taka á land­inu á einni nóttu“, og þess vegna vill hann frekar snúa aftur til góðs sam­starfs milli Banda­ríkj­anna og Græn­lands „frá fyrri tíð“.

Í gær var tónn­inn harð­ari. „Nú er nóg komið,“ sagði Nielsen þá á Facebook. „Enginn meiri þrýst­ingur. Engar fleiri aðdrótt­anir. Engir fleiri inn­limun­ar­draumar. Við erum opin fyrir við­ræðum. Við erum opin fyrir umræðum. En það verður að ger­ast eftir réttum leiðum og með virð­ingu fyrir alþjóða­lögum.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár