Hlutabréf í DNB hríðfalla

Eftir tilkynningu efnahags­brota­deildar norsku lögreglunnar þess efnis að hafin væri formleg rannsókn á DNB bankanum hafa hlutabréf í bankanum lækkað.

Hlutbréf í norska bankanum DNB hafa lækkað um 5,53 prósent í dag en Stundin greinir frá fyrst íslenskra fjölmiðla. Ástæðan er sögð vera sú að efnahags­brota­deild norsku lögreglunnar greindi frá því í gær að hafin væri rannsókn á bankanum í kjölfar uppljóstrana Stundarinnar og Kveiks, í samvinnu við Wikileaks og Al Jazeera, á mútu­greiðslum Samherja og spillingu tengdri makríl­veiðum fyrir­tækisins við strendur Namibíu, auk hugsanlegs peningaþvættis í gegnum bankann.

Í frétt Norska ríkis­útvarpsins um málið kemur fram að hluta­bréfin hafi lækkað um rúm sex prósent í morgun, föstudag. Það jafngildi því að virði bankans hafi rýrnað um 15 milljarða norskra króna, eða um tæpa 200 milljarða íslenskra króna. Þá hafa hluta­bréfin hækkað lítillega síðan frétt NRK birtist í morgun.

Formleg rannsókn hafin

Fram kom í fréttum í gær að efnahags­brota­deild norsku lögreglunnar hefði hafið formlega rannsókn á norska bankanum DNB vegna umfjöllunar fjölmiðla um Samherja­skjölin.

Í yfir­lýsingu sem birtist á vef efnahags­brota­deildarinnar kom fram að eðli málsins samkvæmt yrði haft samstarf við yfirvöld í öðrum löndum. Ólafur Þór Hauksson, héraðs­saksóknari, staðfesti í samtali við RÚV í gær að norska efnahags­brota­deildin hefði þegar haft samband við embættið.

Í yfir­lýsingunni var jafnframt haft eftir starfandi forstjóra að markmið rann­sóknarinnar væri að finna út hvað hefði gerst og hvort það varðaði við hegningarlög. „Rann­sóknin er á frumstigi og við munum ekki veita frekari upplýsingar um málið.“

Miklar sveiflur eftir umfjöllunina um Samherja

Stundin greinir frá því að virði bréfa í DNB í Kaup­höllinni í Osló hefði hrunið eftir umfjöllun Stundarinnar og Kveiks þann 12. nóvember síðastliðinn úr 170,25 stigum og niður í 161,65 föstu­daginn 15. nóvember. Síðan þá hafi virði bréfa í bankanum hækkað hægt og bítandi og þann 25. nóvember hafi það verið 169,20 stig. Daginn eftir hafi virði bréfa lækkað skarpt en hækkað aftur á miðvikudag. Það hafi síðan lækkað í gær og í dag.

Vísitala bréfanna er komin niður í 156,3 stig þegar þetta er skrifað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár