DNB til rannsóknar - Samherji segir umfjöllun ranga

Stærsti banki Noregs, DNB, er nú til rann­sóknar hjá efnahags­brota­deildinni í Noregi, í tengslum við rannsókn á viðskiptum Samherja. Norska ríkið á um þriðjungs­hlut í DNB.

Í yfir­lýsingu norska bankans DNB segir að norska efnahags­brota­lögreglan sé nú að rannsaka bankann, í tengslum við rannsókn á viðskipta­háttum Samherja.

Norsk og íslensk yfirvöld, eru í samvinnu í sinni rannsókn, samkvæmt yfir­lýsingunni.

Eins og greint var frá í dag, þá voru sex einstaklingar hand­teknir á grund­velli rann­sóknar spillingar­lögreglunnar ACC í Namibíu, en brotin varða skipulagða glæpa­starfsemi, samkvæmt því sem fram hefur komið í yfir­lýsingu ACC.

Í yfir­lýsingu sem Samherji hefur birt á vef sínum, kemur fram að upplýsingar sem hafi komið fram í umfjöllun RÚV og Stundarinnar, er varða fjármagns­flutninga, séu rangar.

„Þær ásakanir sem settar hafa verið fram um eignar­haldið á Cape Cod og greiðslur til félagsins eru rangar. Haldið verður áfram að rannsaka málið og veita hlut­aðeigandi stjórn­völdum allar upplýsingar,“ segir Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, í yfir­lýsingunni. „Þess er vænst að Stundin, Ríkis­útvarpið og eftir atvikum aðrir fjöl­miðlar leiðrétti rangan frétta­flutning um málið.“

Í yfir­lýsingunni er sérstak­lega vikið að félögunum Cape Cod FS og JPC Shipmanagment.

„Stundin og Ríkis­útvarpið hafa fullyrt að Samherji hafi átt félagið Cape Cod FS og að JPC Shipmanagement, sem veitti félögum Samherja þjónustu, hafi „leppað“ eignar­hald á Cape Cod FS fyrir Samherja. Þetta er rangt og ekkert í rannsókn Wikborg Rein bendir til hins gagnstæða. Samherji á ekki og hefur aldrei átt Cape Cod FS og hefur aldrei falið öðrum að „leppa“ eignar­haldið á félaginu.

Cape Cod FS var í eigu JPC Shipmanagement sem þjónustaði félög tengd Samherja um mönnun á skipum í rekstri samstæðunnar. Kaup á þjónustu slíkra félaga er alþekkt í skipa­rekstri á alþjóða­vísu.

Bæði Stundin og Ríkis­útvarpið hafa ranglega haldið því fram að um 70 milljónir dollara hafi farið í gegnum Cape Cod FS vegna starfseminnar í Namibíu. Hið rétta er að 28,9 milljónir dollara voru greiddar til félagsins vegna starfseminnar í Namibíu.

Í íslenskum fjöl­miðlum hefur verið fullyrt að greiðslurnar í gegnum Cape Cod FS séu óútskýrðar og óeðlilegar. Þetta er alrangt. Í Namibíu eru gjaldeyris­höft við lýði. Til þess að framkvæma greiðslur út úr namibísku hagkerfi þurfa að fylgja marg­vísleg gögn til að sannreyna greiðsluna vegna haftanna. Af þessari ástæðu þarf að senda upplýsingar um greiðslur til hvers og eins áhafnar­meðlims ásamt afriti af vegabréfi hans til namibísks viðskipta­banka sem áfram­sendir upplýsingarnar til Seðla­banka Namibíu. Til þess að tryggja að allir áhafnar­meðlimir fengju réttar fjárhæðir greiddar í samræmi við verk­samninga voru greiðslurnar yfir­farnar af bæði Cape Cod FS og af starfs­manni félags sem tengdist Samherja áður en þær voru inntar af hendi.

Þær fjárhæðir sem fóru í gegnum Cape Cod FS voru yfir­farnar. Rann­sóknin leiddi í ljós að greiðslurnar voru í samræmi við það sem tíðkaðist á markaði. Um var að ræða umfangs­mikla útgerð og því ekkert óeðlilegt við þær fjárhæðir sem fóru í gegnum félagið vegna greiðslna til skipverja yfir langt tímabil,“ segir í yfir­lýsingu Samherja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár