Konurnar sem saka Trump um áreitni eiga skilið að fá áheyrn

Sendi­herra Banda­ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum segir að allar konur sem telja á sér brotið eigi skilið að fá áheyrn, og það eigi líka við um þær sem hafa sakað Trump Bandaríkja­forseta um áreitni.

Sendi­herra Banda­ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, Nikki Haley, segir að allar konur sem saki karla um kynferðis­lega áreitni eða ósæmilega hegðun í sinn garð, eigi skilið að fá áheyrn og réttláta máls­meðferð.

Hún segist stolt af #Metoo byltingunni og þeim sögum sem konur um allan heim hafa komið fram með á undan­förnum vikum og mánuðum, þar sem ýmsum birtingar­myndum ofbeldis og ósæmilegrar hegðunar gagnvart konum er lýst og þeim hafnað.

Þetta kom fram í viðtali við Haley við CBS sjónvarps­stöðina, en þegar talið barst að Bandaríkja­forseta, Donald Trump, og þeim fjölmörgu konum sem hafa ásakað hann um kynferðis­lega áreitni og ósæmilega hegðun, í gegnum tíðina, sagði hún að það ætti að sjálfsögðu líka við um þær eins og aðrar; þær ættu það skilið að á þær yrði hlustað og unnið úr málum þeirra með réttum hætti.

#Metoo byltingin hefur nú þegar haft gífurleg áhrif um allan heim. Konur, úr öllum stéttum og stigum samfélaga, hafa stigið fram og sýnt samstöðu, þar sem ósæmilegri hegðun - kynferðislegri og karlrembulegri - er hafnað og úrbóta krafist.

Á Íslandi hafa konur sagt sögur sínar úr mörgum geirum samfélagsins, og sýnt samstöðu með þeim sem hafa orðið fyrir órétti og ofbeldi af hálfu karla. Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra var ein þeirra sem las upp sögu á samstöðu­fundi í Borgar­leikhúsinu í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár