Óvissa um brottvísun hælisleitenda til Ítalíu

„Mér finnst ómannúðlegt að láta fólk bíða með þeim hætti sem gert er,“ segir Katrín Odds­dóttir héraðsdóms­lögmaður. Ólöf Nordal innan­ríkis­ráðherra hefur sagt að ekki sé öruggt að senda hælis­leitendur til Ítalíu á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar, en dómstólar og Útlendinga­stofnun halda áfram að mæla fyrir um endur­sendingar þangað.

Vill ekki endursendingar
Vill ekki end­ur­send­ingar Ólöf Nordal er ráð­herra hæl­is­leit­enda­mála. Hún telur ekki óhætt að senda fólk til Grikk­lands, Ítalíu og Ung­verja­lands.

Enn hefur engin stjórnvalds­ákvörðun verið tekin um að hætta endur­sendingum hælis­leitenda til Ítalíu og Ungverja­lands á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar. Ólöf Nordal innan­ríkis­ráðherra lýsti því yfir úr ræðustól Alþingis þann 17. september síðastliðinn að ekki væri öruggt að senda hælis­leitendur til Grikk­lands, Ítalíu og Ungverja­lands. Hælis­leitendur, sem áður máttu búast við því að verða senda til Ítalíu samkvæmt dómi, bíða enn í óvissu um hvað tekur við.

Árið 2010 ákvað dómsmála- og mann­réttinda­ráðherra að stöðva, með formlegum hætti, endur­sendingar hælis­leitenda til Grikk­lands á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar. Þrátt fyrir yfir­lýsingar Ólafar á Alþingi hefur engin sams konar ákvörðun verið tekin um þá hælis­leitendur sem sótt hafa um hæli á Ítalíu og í Ungverja­landi og eru á ábyrgð þeirra ríkja samkvæmt Dyflinnar­samkomu­laginu. Þá hafa dómstólar og Útlendinga­stofnun haldið áfram að úrskurða um endur­sendingar til Ítalíu.

Vinnan „vel á veg komin“

Stundin sendi innan­ríkis­ráðuneytinu fyrir­spurn þann 14. október og spurði hvort til stæði að hætta endur­sendingum til Ítalíu og Ungverja­lands og hvernig brugðist yrði við í málum þar sem úrskurðað hefur verið um slíkar 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár