Tvö mál orðin að einu í Namibíu

Í nýju ákæru­skjali í sameinuðu sakamáli vegna Fishrot-skandalsins í Namibíu eru engir Íslendingar á meðal sakborninga, en alls eru 10 manns og 18 félög sökuð um marg­vísleg brot í tengslum við kvóta­viðskipti Samherja í landinu.

Á meðal þeirra sakborninga sem setið hafa á bak við lás og slá í Nambíu frá því undir lok árs 2019 er Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra landsins.
Á meðal þeirra sak­born­inga sem setið hafa á bak við lás og slá í Nambíu frá því undir lok árs 2019 er Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins. Mynd: Werner Menges/The Namibian

Dómari við dómstólinn í Windhoek, höfuðborg Namibíu, ákvað fyrr í þessum mánuði að sakamálin tvö, sem rekin hafa verið gegn einstaklingum og fyrir­tækjum þar í landi vegna meintra mútu­greiðslna, svika, spillingar, peningaþvættis og skatta­undanskota í tengslum við kvóta­viðskipti Samherja í landinu, verði rekin saman sem eitt mál fyrir dómstólum.

Málin tvö sem nú hafa verið sameinuð snúa að mestu að sömu einstaklingunum, namibískum áhrifa­mönnum sem hafa flestir setið í gæslu­varðhaldi allt frá því málið kom upp á yfir­borðið í umfjöllunum Kveiks, Stundarinnar, Al Jazeera og fleiri miðla í nóvember 2019, sem unnar voru með aðkomu WikiLeaks, sem birti frumgögn málsins.

Þau hafa verið kölluð Fischor-málið og Fishrot-málið, í umfjöllunum namibískra fjölmiðla. Fis­hcor-mál­ið snýr að þeim þætti málsins er varðar meinta mis­notkun namibískra stjórn­mála­manna og ann­arra ákærðra á aðstöðu sinni, til þess að hagn­ast sjálfir á úthlutun afla­heim­ilda namibíska ríkisins.

Í Fis­hrot-­mál­inu, sem einnig hefur verið kallað Namgomar-málið, hefur hins vegar verið undir milli­ríkja­samn­ingur sem gerður var á milli Namibíu og Angóla um hrossa­makríl­kvóta. Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu hefur sagt samn­ing­inn svika­myllu sem setta hafi verið upp með virkri þátt­töku Sam­herja.

Engir Íslendingar né Samherjafélög á meðal sakborninga

Í frétt á vef namibíska blaðsins Namibian sem birtist fyrir helgi segir að þeir tíu einstaklingar auk alls 18 lögaðila sem bornir eru sökum í málinu, standi frammi fyrir 42 ákæru­liðum.

Í ákæru­skjali sem Kjarninn hefur undir höndum má sjá að á meðal ákærðra einstaklinga og félaga í málinu eru ekki Íslendingarnir þrír sem Martha Imalwa, ríkis­saksóknari Namibíu, hefur sagt að hún ætli sér að ákæra, né heldur namibísku félögin sem þeir stýrðu fyrir hönd Samherja.

Ríkis­saksókn­arinn hefur nýlega fullyrt að ekki sé loku fyrir það skotið að þáttur íslensku ríkis­borgaranna verði tekinn upp í öðrum réttar­höldum síðar, en ekki hefur tekist að birta þeim ákæru vegna málsins.

Fram kemur í frétt Namibian að dómari í málinu hafi veitt sakborningum frest til 20. janúar 2022 til þess að undirbúa svör við löngum spurninga­lista sem saksóknari hefur lagt fyrir sakborningana og því virðist ljóst að málið mun lítið hreyfast það sem eftir lifir árs.

Þriðju áramótin í gæsluvarðhaldi

Í umfjöllun Namibian um málið segir einnig frá því að búist sé við því að sakborningarnir í málinu, sem flestir hafa verið í gæslu­varðhaldi í hátt í tvö ár og eru að óbreyttu að fara að sitja sín þriðju áramót í röð á bak við lás og slá án þess að hafa verið fundnir sekir um glæpina sem þeim er gefið að sök að hafa framið, muni margir hverjir reyna að fá lausn gegn tryggingu.

Það mun eiga við um alls sjö af þeim tíu sem sitja í varðhaldi. Umsóknir þeirra um lausn gegn tryggingu verða teknar fyrir í nóvember­mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár