Dulkóðað drif með tölvupóstum Samherja frá Íslandi til Namibíu

Í tölvu­póst­sam­skiptum sem lögð hafa verið fram af hálfu ákæru­valds­ins í Namibíu kemur fram að Aðal­steinn Helgason viðr­aði mögu­leika á mútu­greiðslum til namibískra áhrifa­manna við Jóhannes Stef­áns­son og Ingvar Júl­í­us­son í des­em­ber árið 2011.

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu sendi frá sér nýja grein­ar­gerð undir lok síð­asta mán­aðar, þar sem hún gerði athuga­semdir við ýmis­legt sem sett var fram í eiðs­vörnum yfir­lýs­ingum starfs­manna Samherja og ann­arra í upp­hafi sum­ars, vegna dóms­máls­ins sem þar er nú rekið vegna við­skipta­hátta dótt­ur­fé­laga Samherja í land­inu.

Sumar athuga­semda sak­sókn­ar­ans, Mörthu Imalwa, við málsvörn Sam­herj­a­manna byggja á upp­lýs­ingum úr tölvu­póstum sem safnað var af vef­þjónum Samherja vegna rann­sóknar máls­ins hér á landi.

Þessa tölvu­pósta sótti emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og lét namibískum lög­reglu­yf­ir­völdum í té á dulkóð­uðu USB-drifi eftir að namibísk yfir­völd sendu íslenskum rann­sak­endum beiðni um gagn­kvæma sam­vinnu við rann­sókn­ina.

Lesa má hluta þess­ara tölvu­pósta í annarri yfir­lýs­ingu frá rann­sókn­ar­lög­reglu­mann­inum Abraham Nikolous Ihalua hjá namibísku spill­ing­ar­lög­regl­unni, sem birt var á vef namibískra dóm­stóla skömmu fyrir mán­aða­mót.

Aðalsteinn viðraði mútugreiðslur við Jóhannes og Ingvar

Í tölvu­póst­unum, sem voru sam­kvæmt því sem Kjarninn kemst næst ekki hluti af þeim gögnum sem birt voru á Wikileaks og færð í hendur yfir­valda hér­lendis og ytra fyrir til­stuðlan upp­ljóstr­ar­ans Jóhann­esar Stef­áns­sonar, kemur eitt og annað fram.

Aðal­steinn Helgason, sem er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Kötlu Seafood á Kanarí­eyjum og var lyk­il­maður hjá Samherja á fyrstu árum inn­reiðar fyr­ir­tæk­is­ins í namibískan sjáv­ar­út­veg, sagði meðal ann­ars við þá Jóhannes og Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóra Samherja á Kýpur og í Afríku, þann 16. des­em­ber árið 2011, að á ein­hverjum tíma­punkti gæti það farið að skipta máli „að múta einum af leið­togum þess­ara manna.“

Degi síðar, 17. des­em­ber 2011, sagði Jóhannes svo í tölvu­pósti til Aðal­steins og Ingvars að til stæði að skrifa undir sam­komu­lag við Tamson Hatuikulipi, tengda­son Bern­hards Esau sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, um vænt­an­lega sam­vinnu þeirra.

„Hann mun fara með þetta til ráð­herr­ans, sem mun fá þetta á morgun. Und­ir­liggj­andi hug­myndin er sú að hann verði full­viss­aður um að fá eitt­hvað ef hann færir okkur eitt­hvað,“ sagði Jóhannes í tölvu­póst­inum.

Rétt er að taka fram að þýð­ingar á þessum orða­skiptum eru blaða­manns, en tölvu­póst­arnir sem emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara sendi til Namibíu og birt­ast nú í dóm­skjölum þar í landi voru þýddir af íslensku yfir á ensku af lög­giltum skjala­þýð­anda.

Tölvupóstur Jóhannesar til Aðalsteins og Ingvars í desember árið 2011, þar sem því er lýst að til standi að fullvissa namibíska áhrifamenn um að þeir muni fá eitthvað fyrir að færa Samherja eitthvað.
Tölvu­póstur Jóhann­esar til Aðal­steins og Ingvars í des­em­ber árið 2011, þar sem því er lýst að til standi að full­vissa namibíska áhrifa­menn um að þeir muni fá eitt­hvað fyrir að færa Samherja eitt­hvað.

Af þessum upp­lýs­ingum segir namibíski rík­is­sak­sókn­ar­inn að draga megi þá ályktun að Aðal­steinn Helgason hafi ráð­lagt Jóhann­esi Stef­áns­syni að múta namibískum emb­ætt­is­mönnum, eins og sak­sókn­ar­inn raunar sagði einnig í fyrri grein­ar­gerð sinni vegna máls­ins.

Þá byggði ályktun sak­sókn­ar­ans á vitn­is­burði Jóhann­esar Stef­áns­sonar, sem hefur haldið því fram að Aðal­steinn hafi fyr­ir­skipað honum að greiða mútur til þess að tryggja félagi Samherja kvóta í Namibíu. Þessu hefur Aðal­steinn, sem er far­inn á eft­ir­laun fyrir all­nokkru síðan,hafnað sem lygum.

Telur ljóst að Jóhannes hafi ekki verið einn að verki

Imalwa rík­is­sak­sókn­ari segir í yfir­lýs­ingu sinni að það sé ljóst af því sem fram hafi komið að Jóhannes Stef­áns­son hafi ekki verið eini ein­stak­ling­ur­inn innan Samherja sem hafi vitað af „raun­veru­legu eðli“ þeirra samn­inga sem voru gerðir til þess að tryggja dótt­ur­fé­lagi Samherja veiði­heim­ildir. Það sýni greiðslur til félags­ins Tunda­vala í Dúbía, sem Ingvar sjálfur kom að því að fram­kvæma og héldu áfram eftir að Jóhannes var hættur að starfa fyrir Samherja í Namibíu.

Samherji hefur sagt í yfir­lýs­ingum sínum, og vísað til óbirtrar inn­an­húss­rann­sóknar á starf­sem­inni í Namibíu sem fyr­ir­tækið fól norsku lög­manns­stof­unni Wikborg Rein að fram­kvæma, að ekki fáist séð að aðrir núver­andi eða fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja en Jóhannes Stef­áns­son hafi bakað sér sak­næma ábyrgð með störfum sínum í Namibíu.

Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Samherja.
Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Samherja.

Namibíski sak­sókn­ar­inn er á annarri skoðun og segir stjórn­endur sex namibískra dótt­ur­fé­laga Samherja sem sæta ákæru, ekki geta firrt sig ábyrgð.

Einnig kemur fram í yfir­lýs­ingu hennar að hún hafi ekki gefið upp von um að fá einn eða fleiri stjórn­endur félaga Samherja til Namibíu, en eins og fram hefur komið er eng­inn fram­sals­samn­ingur í gildi á milli Íslands og Namibíu og íslenskir rík­is­borg­arar því ekki fram­seldir til Namibíu.

„Ísland mun ein­ungis hafa vald til þess að neita fram­sali ef sá eða þeir sem óskað verður eftir til fram­sals verða á Íslandi,“ segir í yfir­lýs­ingu sak­sókn­ar­ans, sem nefnir einnig að menn­irnir séu skráðir með fjölda heim­il­is­fanga í þeim gögnum sem séu til staðar í rann­sókn­inni og því sé erfitt að kom­ast nákvæm­lega að því hvar þeir haf­ist við.

Í yfir­lýs­ingu sak­sókn­ar­ans segir einnig að Namibía hafi ekki enn farið „form­lega“ fram á fram­sal. Þó hefur komið fram í máli vara­rík­is­sak­sókn­ar­ans Helga Magnúsar Gunn­ars­sonar að fram­sals­beiðni frá namibískum yfir­völdum hafi verið hafnað fyrr á þessu ári.

Imalwa virð­ist þannig halda því opnu að reyna að fá Íslend­ing­ana, einn eða fleiri, fram­selda vegna máls­ins, þó ekki verði það frá Íslandi.

Neitar því að velta Samherjasamstæðunnar hafi nokkra þýðingu

Í eið­svar­inni yfir­lýs­ingu Ingvars Júl­í­us­sonar, sem var 108 blað­síðna löng og lögð fram til dóm­stóls­ins í Namibíu 1. júní, sagði að umsvif dótt­ur­fé­laga Samherja í Namibíu hefði ein­ungis numið 0,6 pró­sentum af heild­ar­veltu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar á heims­vísu.

Í yfir­lýs­ingu Ingvars voru færð rök fyrir því að „það hefði ekki verið áhætt­unnar virði“ fyrir nokk­urt fyr­ir­tæki að „flækj­ast í spillt athæfi“ fyrir svo lítið hlut­fall af heild­ar­veltu sam­stæð­unnar.

Imalwa svarar þessu í yfir­lýs­ingu sinni og seg­ist hafna því að heild­ar­velta Sam­herj­a­sam­stæð­unnar á heims­vísu skipti nokkru máli hvað varðar það spillta athæfi sem lýst hafi verið í fyrri grein­ar­gerð hennar um mála­vexti, eins og þeir horfa við ákæru­vald­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið undanfarið ár