Þorsteinn Már í yfirlýsingu: „Svona stundum við hjá Samherja einfaldlega ekki viðskipti“

Fjöldi skjala sem Samherji hefur lagt fram vegna mála­rekst­urs­ins í Namibíu var birtur í vef­gátt namibískra dóm­stóla í dag. Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri og fleiri varpa allri ábyrgð á meintu ólög­mætu athæfi á Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ara.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/Hringbraut

Í dag hefur verið gerður opin­ber mik­ill fjöldi skjala sem Samherji og starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa lagt fram til yfir­valda í Namibíu vegna mála­rekst­urs­ins sem teng­ist starf­semi Samherja þar í landi. Á meðal gagna er eið­svarin yfir­lýs­ing frá Þor­steini Má Bald­vins­syni for­stjóra Samherja, þar sem hann neitar allri aðkomu að nokk­urs­konar spill­ing­ar­málum eða ólög­mætum gjörn­ingum í Namibíu eða í tengslum við Namibíu.

Í yfir­lýs­ingu for­stjór­ans, sem lesa má í heild sinni hér, segir að ef Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja sem svo gerð­ist upp­ljóst­ari, hafi tekið þátt í ein­hverju ólög­legu athæfi hafi hann „sann­ar­lega aldrei látið mig vita af því“.

Þor­steinn Már hafnar því sömu­leiðis að hafa átt þátt í að, eða verið „aðal­arki­tekt­inn“ að, við­skipta­samn­ingum við Fischor og Namgomar. Jóhannes Stef­áns­son hafi gert þessa samn­inga og ef eitt­hvað ólög­mætt hafi falist í þeim, sé það „Hr. Stef­áns­son einn, og eng­inn annar, allra síst ég, sem tók þátt í því.“

Yfir­lýs­ing Þor­steins Más var und­ir­rituð í við­ur­vist full­trúa sýslu­manns á Egils­stöðum 27. maí, en Þor­steinn Már var staddur á Aust­ur­landi þann dag til þess að vera við­staddur, sem stjórn­ar­for­maður, er við­skipti með hluta­bréf í Síld­ar­vinnsl­unni í Nes­kaups­stað hófust með við­höfn.

Þorsteinn Már segist hafa verið grunlaus

Í yfir­lýs­ingu hans segir að Jóhannes Stef­áns­son hafi allt frá því hann var ráð­inn og þar til hann var lát­inn fara í des­em­ber árið 2016, stjórnað starf­semi Samherja í Namibíu sjálf­stætt. Þor­steinn Már seg­ist ekki hafa verið með eft­ir­lit með honum, né heldur veitt honum leið­bein­ingar. „Hefði hann unnið undir beinni stjórn minni, þá hefði hann verið rek­inn fyrir löngu,“ segir Þor­steinn Már í yfir­lýs­ingu sinni.

Hann neitar því að hann sjálfur hafi verið flæktur í, vitað af, eða svo mikið sem grunað að Jóhannes Stef­áns­son væri flæktur í „spillta samn­inga eða væri að flækja ein­hver namibísku fyr­ir­tækj­anna í spillta samn­inga á meðan hann var í starfi fyrir Sam­herj­a­sam­stæð­una.“

„Ég vissi sann­ar­lega ekki af né heldur sam­þykkti ég neina af hans meintu spilltu samn­ingum. Svona stundum við hjá Samherja ein­fald­lega ekki við­skipti,“ segir for­stjór­inn.

Fjallar um Seðlabankamálið

Í yfir­lýs­ingu sinni rekur Þor­steinn Már einnig gang hins svo­kallað Seðla­banka­máls, sem hófst með hús­leit Seðla­bank­ans hjá Samherja í mars árið 2012. Hann segir það mál hafa reynt gríð­ar­lega á æðstu stjórn­endur Samherja, þar með talið sig sjálfan.

Hann færir rök fyrir því að Seðla­banka­málið hafi verið þannig vaxið að í reynd hefði það verið ómögu­legt fyrir hann að vera eitt­hvað inni í rekstr­inum í Namibíu, eða eins og hann lýsir sjálfur: „Það hefði ein­fald­lega ekki verið neinn tími, bjarg­ráð eða orka hjá mér til þess að djúpt inn­vinkl­aður í fjar­læga, litla og fremur ómerki­lega starf­semi hinumegin á plánet­unni,“ skrifar Þor­steinn Már.

Ingvar hafi ekki þurft leyfi forstjóra til að greiða kostnað

Þor­steinn Már segir einnig í yfir­lýs­ing­unni að Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri hjá Samherja á Kýpur, eða að minnsta kosti fjár­mála­deildin „hans“, hafi ekki þurft sér­stakt leyfi frá sér til þess að fram­kvæma greiðslur vegna rekstr­ar­kostn­aðar, eins og Jóhannes Stef­áns­son hafi gefið í skyn. Raunin sé sú að Jóhannes sjálfur hafi stýrt greiðslum á kostn­aði vegna starf­sem­innar í Namibíu.

Ítarleg yfirlýsing Ingvars

Ingvar hefur sjálfur lagt fram 108 blað­síðna langa eið­svarna yfir­lýs­ingu, þar sem hann sver af sér sakir í mál­inu. Undir þá yfir­lýs­ingu tekur Egill Helgi Árnason, sem namibísk yfir­völd vilja einnig ákæra í mál­inu ásamt Aðal­steini Helga­syni, fyrr­ver­andi starfs­manni Sam­herj­a­sam­stæð­unnar sem kom að rekstri dótt­ur­fé­laga í Namibíu á árum áður.

Íslensk yfir­völd hafa hafnað fram­sals­beiðnum frá Namibíu vegna þeirra þriggja og því hefur ekki tek­ist að birta Íslend­ing­unum þremur ákæru með form­legum hætti. Ingvar gerir athuga­semd við vinnu­brögð sak­sókn­ar­ans í Namibíu hvað fram­sals­mál varðar í yfir­lýs­ingu sinni og segir hana hafa látið undir höfuð leggj­ast að láta dóm­stól­inn í Windhoek vita af því að nei­kvætt svar hefði borist um fram­sal frá Íslandi strax í febr­úar.

Hin ítar­lega yfir­lýs­ing Ingvars, sem und­ir­rituð var í sendi­ráði Íslands í Brussel í Belgíu 28. maí, inni­heldur svör við mörgum efn­is­at­riðum sem koma fram í eið­svar­inni yfir­lýs­ingu Jóhann­esar Stef­áns­sonar og sömu­leiðis yfir­lýs­ingu Mörthu Imalwa, sak­sókn­ara ákæru­valds­ins í Namibíu.

Ingvar kemur því ítrekað að, að ef eitt­hvað ólög­legt athæfi hafi átt sér stað í rekstri dótt­ur­fé­laga Samherja í Namibíu, þá hafi það verið að á ábyrgð Jóhann­esar eins. Hann kallar Jóhannes „stjörnu­vitni“ ákæru­valds­ins í mál­inu og segir að án vitn­is­burðar hans sé mál namibískra yfir­valda á hendur sér og öðrum erlendum sak­born­ingum algjör­lega hald­laust.

Fullyrðir að Jóhannes muni ekki koma til Namibíu

Ingvar full­yrðir sömu­leiðis í yfir­lýs­ingu sinni að Jóhannes Stef­áns­son muni ekki koma til Namibíu til þess að bera vitni í mál­inu — en ef hann myndi koma, kæmi einnig koma í ljós við gagn­leiðslur fyrir dómi að fram­burður hans héldi ekki vatni.

Ástæðan fyrir því að Ingvar telur að Jóhannes fari ekki suður til Namibíu til þess að bera vitni er sam­kvæmt honum sú að hvorki sak­sókn­ar­inn né Jóhannes sjálfur hafi sagt að hann ætli að sér að koma og bera vitni, né heldur hafi sak­sókn­ar­inn og Jóhannes sagt að hann njóti ein­hverrar frið­helgi í land­inu.

Jóhannes „veit að ef hann kemur til Namibíu verður hann hand­tek­inn og mun ekki losna gegn trygg­ingu,“ segir í yfir­lýs­ingu Ingvars, sem segir einnig að Jóhannes viti að hans bíði langur tími í fang­elsi í Namibíu fyrir þá glæpi sem hann hafi játað.

Ingvar segir að ef það hins vegar fari svo að sak­sókn­ar­inn bjóði Jóhann­esi frið­helgi, muni sú sama frið­helgi falla úr gildi ef Jóhannes beri vitni. Ef Jóhannes segi sann­leik­ann, muni erlendu sak­born­ing­arnir í mál­inu, Íslend­ing­arnir, ekki verða dæmdir fyrir nein meint brot. „Ef hann heldur áfram með núver­andi lygar, verður það sannað við gagn­leiðslu að hann hefur ekki sagt sann­leik­ann og hann verður sak­sóttur,“ segir Ingvar.

„Það verður ekki hægt að koma í veg fyrir að ég beri vitni“

Stundin sagði á dög­unum frá því, sem fram kemur í sam­skipta­gögnum innan úr Samherja sem Kjarninn hefur einnig undir höndum, að hin svo­kall­aða „skæru­liða­deild“ fyr­ir­tæk­is­ins hafilagt á ráðin um að koma í veg fyrir að Jóhannes færi til Namibíu.

Í sam­skiptum á milli starfs­manna Samherja snemma í apr­íl­mán­uði kom fram að til skoð­unar væri að kæra Jóhannes fyrir mein­tan þjófnað frá fisk­búðum í Namibíu, undir þeim for­merkjum að ef Jóhann­esi yrði talin trú um að þar með héldi ekki samn­ingur hans við namibísk stjórn­völd myndi hann pott­þétt ekki mæta í rétt­ar­sal. Um þetta voru þau Arna McClure lög­maður og Páll Stein­gríms­son sam­mála og sagði Páll hafa talað við Þorstein Má um kæru á hendur Jóhann­esi.

Í sam­tali við Stundina sagð­ist Jóhannes sjálfur ætla sér að bera vitni.

„Það verður ekki hægt að koma í veg fyrir að ég beri vitni,“ sagði Jóhannes Stef­áns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár