Björgólfur: Ekki vafi á að Samherja mistókst að verja félög sín gegn brotum einstaklinga

Annar forstjóri Samherja birti í gær langt bréf á alþjóðlegri sjávar­útvegs­fréttasíðu. Þar segir að einstak­lingar hafi framið brot í dóttur­félögum Samherja og kvartað yfir því að uppljóstr­arinn í málinu hafi ekki viljað ræða við rann­sakendur fyrir­tækisins.

Björgólfur Jóhannsson, annar forstjóri Samherja.
Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóri Samherja. Mynd: Samherji

„Það er enginn vafi að Samherja hefur mistekist að verja dóttur­félög sín gegn brotum einstaklinga. Okkur þykir það mjög leitt.“ Þetta skrifar Björgólfur Jóhannsson, annar forstjóri Samherja, í bréfi sem birt var í gær á sjávar­útvegs­frétta­vefnum Undercurrent News, sem flutt hefur fréttir af þróun mála í rann­sóknum á meintum mútum, peninga­þvætti og skatta­sniðgöngu Samherja i tengslum við viðskipti samstæðunnar í Namibíu sem Kveikur og Stundin opinberuðu í nóvember í fyrra.

Í bréfinu segir Björgólfur, sem tók við sem forstjóri Samherja eftir að málið kom upp þegar Þorsteinn Már Baldvinsson ákvað að stíga tíma­bundið til hliðar eftir opinberun áður­nefndra fjölmiðla, að Samherji muni í haust hefja birtingu á efni úr rannsókn norsku lögmanns­stofunnar Wikborg Rein á alþjóðlegri starfsemi samstæðunnar. Sú var ráðin af stjórn Samherja til að rannsaka ásakanir á hendur fyrir­tækinu eftir að þær komu fram, og hefur þegar skilað skýrslu sinni. Upphaf­lega sögðu forsvars­menn að allar niður­stöður Wikborg Rein yrðu birtar opinber­lega en hingað til hefur lítið sem ekkert verið greint frá því hvað norska lögmanns­stofan komst að.

Kvartar yfir því að uppljóstrari hafi ekki viljað hitta Wikborg Rein

Tilefni bréfs Björgólfs er viðtal sem Jóhannes Stef­ánsson, sem var einn forsvars­manna Samherja í Namibíu og sá sem uppljóstraði um starfs­hættina þar, fór í við norska viðskipta­blaðið Dagens Næringsliv í byrjun ágúst­mánaðar. Undercurrent news og fleiri alþjóð­legir miðlar hafa endursagt fréttir úr því viðtali.

Í bréfinu kvartar Björgólfur yfir því að Jóhannes hafi neitað að hitta og tala við rann­sakendur sem Samherji hefði ráðið til að fara yfir ásakanir hans. „Það virðist vera að hreinskilni og gegnsæi séu einungis mikilvæg þegar viðkomandi stendur ekki frammi fyrir krefjandi spurningum frá þeim sem hafa fulla innsýn í stað­reyndir mála. Hið umfangs­mikla rannsóknar­ferli sem pantað var af stjórn Samherja í nóvember í fyrra kom til vegna ásakana Jóhannesar Stef­ánssonar.“

Björgólfur segir að í gegnum þetta innra rannsóknar­ferli hafi Samherji haldið allskyns haghöfum upplýstum um stöðu mála. Þar á meðal séu bankar, viðskipta­vinir, endur­skoðendur, yfirvöld og aðrir sem hafi reglulega fengið uppfærðar upplýsingar um hvernig rann­sóknin gengi.

Fókusinn á Jóhannesi

Björgólfur opinberar að svokallaðar ráðgjafa­greiðslur sem eru, samkvæmt málflutningi Jóhannesar og gögnum sem voru birt í tengslum við opinberun Samherja­málsins mútu­greiðslur til að komast yfir hrossa­makrílkvóta í Namibíu, séu líka aðal­umfjöllunar­efni rann­sóknar Wikborg Rein á starfsemi Samherja.

Hann segir að greiðslurnar hafi verið rýndar af mikilli nákvæmni. Það sem sé óumdeilandlegt sé að Jóhannes hafi stofnað til þeirra sambanda við þá sem fengu umræddar greiðslur og hafi meira og minna séð um samskipti við þá þar til að hann hætti störfum hjá Samherja árið 2016.

Vert er að taka fram að Jóhannes gekkst við því í þætt­i Kveiks í nóvember í fyrra að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namib­íu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­­völd í Namib­­íu, hefði fengið laga­­lega stöðu upp­­­ljóstr­­ara og væri að aðstoð­a við rann­­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­­a. Hann gerði slíkt hið sama á Íslandi þar sem hann er nú með stöðu grunaðs manns í umfangs­mikilli efnahags­rannsókn héraðs­saksóknara ásamt nokkrum öðrum mönnum sem hafa ekki verið nafn­greindir.

Jóhannes sagði hins vegar við Kveik hann hefði ekki hafa gert neitt í Namibíu nema með aðkomu Þor­­steins Más, forstjóra og eins aðal­eiganda Samherja. Í gögnum málsins var einnig að finna úttekt sem sérfræðingar á vegum KPMG í Hollandi unnu á starfsemi Samherja, fyrir fyrir­tækið, og komst að þeirri niður­stöðu að forstjórinn væri nær einráður í fyrir­tækinu.

Mútu­greiðslurnar hefðu haldið áfram eftir að hann hætti störfum hjá Samherja og hann bæri einungis ábyrgð á því að greiða 20-30 prósent þeirra sem látnar hefðu verið af hendi.

Sjö manns sitja í gæslu­varðhaldi í Namibíu vegna rann­sóknar þarlendra yfirvalda á því, þar á meðal tveir fyrr­verandi ráðherra. Samherja­málið er einnig til rann­sóknar í Noregi.

Hefði viljað að málið yrði innanhúsmál

Björgólfur fullyrðir í bréfinu að Jóhannes sé sá eini sem Wikborg Rein hafi reynt að ná tali af, sem tengdist starfsemi Samherja í Namibíu, sem hafi neitað að tala við stofuna.

Hann telji að það hefði verið í samræmi við bestu venjur, megin­reglur og lög í ýmsum löndum, að uppljóstrari eins og Jóhannes myndi fyrst vekja athygli á því innan samstæðu Samherja ef hann teldi að eitthvað óeðlilegt, eins og ólöglegar mútu­greiðslur, væru að eiga stað. „Einungis ef slíkar tilraunir bæru ekki árangur væri tilhlýðilegt að fara með málið í fjölmiðla.“

Vert er að ítreka að Jóhannes hefur haldið því fram að æðsti yfirmaður Samherja, Þorsteinn Már, hafi alltaf vitað af því sem væri að eiga sér stað ásamt ýmsum öðrum hátt­settum starfs­mönnum. Auk þess hafa verið birtir tölvu­póstar og önnur gögn sem virðast sýna að umtals­verð vitneskja var um viðskipta­hætti Samherja í Namibíu víða innan samstæðunnar.

Markviss herferð gegn Samherja

Björgólfur segir að Jóhannes hafi þess í stað virst hafa ákveðið að taka þátt í mark­vissri herferð gegn Samherja. Til að undir­byggja þá ásökun vitnar Björgólfur í afrit af yfirheyrslu sem Jóhannes fór í hjá embætti héraðs­saksóknara á Íslandi 12. nóvember, sama dag og áður­nefndur þáttur Kveiks var sýndur.

Björgólfur segir að þar hafi Jóhannes útskýrt hvernig hann og Helgi Seljan, einn frétta­mannanna sem vann umfjöllunina um athæfi Samherja í Namibíu, hefði hent gaman af frétta­tilkynningu Samherja sem send hafði verið út daginn fyrir þáttinn. Björgólfur hefur eftir­farandi eftir Jóhannesi úr yfirheyrslunni: „Ég held að þeir viti ekki hvað þeir eigi að gera, þeir vita ekki hvaða gögn við erum með nákvæmlega og mér finnst, þetta er eins og þegar Helgi Seljan hringdi í mig í gær og sagði bara: þessi frétta­tilkynning er eiginlega bara djók, vegna þess að hún er svo veik, vegna þess að við erum með svo sterk gögn.“

Hægt er að lesa innihald umræddrar frétta­tilkynningar hér en þar var meðal annars kvartað yfir því að Samherji hefði ekki fengið að „setjast niður“ með Kveik til að fara yfir þær upplýsingar sem þátturinn byggði á. Eftir sýningu þáttarins birti Kveikur samskipti sín við Samherja í aðdrag­anda sýningu þáttarins sem sýndu að fyrsta viðtals­beiðni hafði borist tæpum mánuði fyrr og að önnur beiðni, með ítarlegum upplýsingum um efnis­atriði umfjöllunarinnar, hafi verið send rúmum tveimur vikum áður en að þátturinn var sýndur.

Í bréfi Björgólf er því haldið fram að slík hegðun sé í andstöðu við hugmyndina um bestu venjur alþjóð­lega þegar kemur að uppljóstrunum. Hann endurtekur að heppilegast og uppbyggilegast sé að taka á slíku innanhúss hjá fyrir­tækjum svo að hægt sé að breyta hinni brotlegu hegðun. Þess í stað hafi Jóhannes ákveðið að gera grín að því við frétta­mann hvernig Samherja hefði verið komið í opna skjöldu vegna málsins.

Hægt er að lesa bréf Björgólfs til Undercurrent news, sem er ritað á ensku, í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár