Samherji sendir yfirlýsingu vegna yfirvofandi umfjöllunar RÚV

Útgerðar­fyrirtækið Samherji hefur sent frá sér yfir­lýsingu, vegna yfir­vofandi umfjöllunar RÚV.

Útgerðar­fyrirtækið Samherji hefur sent frá sér yfir­lýsingu, þar sem segir að félagið hafi orðið þess áskynja að fyrr­verandi stjórn­andi félagsins í Namibíu, Jóhannes Stef­ánsson, hafi farið til fjölmiðla og „lagt fram alvarlegar áskanir á hendur núverandi og fyrr­verandi stjórn­endum Samherja“. „Við tökum þessu mjög alvarlega og höfum ráðið alþjóð­legu lögmanns­stofuna Wikborg Rein í Noregi til að framkvæma ítarlega rannsókn á starfseminni í Afríku. Þar til niður­stöður þeirrar rann­sóknar liggja fyrir munum við ekki tjá okkur um einstakar ásakanir,“ segir í yfir­lýsingu Samherja.

Jafnframt segir í yfir­lýsingunni, sem birt hefur verið á vef Samherja, að Samherji hafi vilja „setjast niður“ með RÚV til að fara yfir upplýsingar, en því hafi verið hafnað.

Á Facebook síðu RÚV hefur verið birt stutt myndband, þar sem fram kemur að Kveikur, frétta­skýringa­þáttur, sé að fara fjalla um málefni íslensks stór­fyrirtækis í þættinum á morgun.

„Við höfum sérstak­lega óskað eftir að fá að setjast niður með Ríkis­útvarpinu og fara yfir upplýsingar sem við teljum skipta máli í tengslum við fyrir­hugaða umfjöllun. Þeirri beiðni hefur jafn­harðan verið hafnað og hefur Ríkis­útvarpið aðeins talið sér fært að ræða við okkur fyrir framan mynda­vélar. Teljum við þær upplýsingar sem við búum yfir vera með þeim hætti að slíkt væri tillits­laust vegna hagsmuna þeirra einstaklinga sem málið varðar.

„Öll starfsemi Samherja og tengdra félaga var undir ítarlegri rannsókn árum saman án þess að nokkuð athuga­vert hafi fundist. Var allt okkar bókhald, tölvu­póstar og öll önnur gögn skoðuð ítarlega, þar með talið þeirra félaga sem sinntu útgerð við strendur Afríku frá árinu 2007. Við munum ekki nú, frekar en þá, sitja undir röngum og villandi ásökunum frá fyrr­verandi starfs­manni sem enn á ný eru matreiddar af sömu aðilum og fjöl­miðlum og í Seðla­bankamálinu,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.

Það sem við teljum rétt að koma á framfæri á þessum tíma­punkti er að þegar við urðum þess áskynja í ársbyrjun 2016 að ekki væri allt með felldu í rekstrinum í Namibíu sendum við fyrr­verandi rannsóknar­lögreglu­mann hjá sérstökum saksóknara til Namibíu. Eftir nokkurra mánaða vinnu hans var niður­staðan að segja umræddum starfs­manni upp störfum án tafar vegna óásættanlegrar framgöngu hans og hegðunar. Mikill tími hefur farið í að ná tökum á rekstrinum en starfs­maðurinn fyrr­verandi hefur samhliða, beint og ásamt samstarfs­mönnum sínum, krafist hárra fjárhæða frá Samherja.

Samherji hefur lagt sig fram um að vinna í samræmi við lög og reglur sem gilda í þeim löndum sem félagið starfar í. Höfum við í því samhengi unnið náið með stjórn­völdum í Namibíu, bæði með skatt­yfirvöldum og Seðla­banka Namibíu. Má þar nefna að frá síðari hluta árs 2016 hefur öllum virðisauka­skatt­skyldum fyrir­tækjum í Namibíu verið skylt að fara í gegnum ítarlega skoðun hjá skatt­yfirvöldum á tveggja mánaða fresti þar sem allir reikningar eru yfir­farnir. Á það við um okkar félög eins og öll önnur fyrirtæki í Namibíu.

Frá því að við hófum starfsemi í Namibíu hefur legið fyrir að um tíma­bundinn rekstur sé að ræða. Gerðir voru samningar við ýmsa kvótahafa, allt frá samningum til örfárra mánaða til fimm ára en umræddir samningar eru nú allir útrunnir. Þá hafa namibísk stjórn­völd unnið að breytingum á fiskveiði­stjórnunar­kerfinu á undan­förnum árum með það fyrir augum að draga úr notkun frysti­togara og auka vægi land­vinnslu ásamt því að leggja aukna áherslu á að eignar­hald og stjórnun sé í höndum innlendra aðila. Í því skyni hefur eitt skip þegar verið selt og viðræður staðið yfir frá byrjun þessa árs um sölu á öðrum rekstri Samherja í Namibíu til þarlendra aðila,“ segir í yfir­lýsingu Samherja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár